Rio Tinto íhugar að loka álverinu í Straumsvík

Eigendur álversins í Straumsvík segja að raforku­verð á Íslandi sé ekki samkeppnis­hæft og boða endur­skoðun á starfsemi versins. Til greina komi að loka álverinu.

Rio Tinto, sem á álverið í Straumsvík, ætlar að hefja „sérstaka endur­skoðun á starfsemi álversins í Straumsvík til að meta rekstrar­hæfni þess til framtíðar“.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu félagsins. Í fyrir­hugaðri endur­skoðun verða allar leiðir skoðaðar, þar á meðal frekari framleiðslu­minnkun og mögulega lokun. Endur­skoðunar­ferlinu verður lokið á fyrri helmingi árs 2020.

Í tilkynningunni segir að Rio Tinto vilji leita leiða til þess að bæta samkeppnis­stöðu álversins, en að gert sé ráð fyrir því að rekstur þess verði áfram óarðbær til skemmri tíma sökum ósamkeppnishæfs orkuverðs og lágs verðs á áli í sögulegu samhengi.

Rio Tinto segist nú leita allra leiða til að gera álverið arðbært og samkeppnis­hæft á alþjóða­mörkuðum, meðal annars með samtali við stjórn­völd og Lands­virkjun. Það samtal snýst um að reyna að lækka raforku­verð sem samið var um í nýjum samningum sem gerðir voru árið 2010.

Alf Barrios, forstjóri Rio Tinto Aluminium, segir í tilkynningu á vef félagsins, að framlag álversins til íslensks efnahags­lífs sé umtals­vert og félagið muni vinna náið með þeim sem eiga gagnkvæma hagsmuni að því að treysta framtíð þess. Þar með talið ríkis­stjórn Íslands, Lands­virkjun, starfs­fólki, stéttar­félögum og sveitar­félögum.

Vegna taprekstrar hefur fram­leiðsla álversins í Straumsvík þegar verið minnkuð í 85 prósent af afkasta­getu álversins. Áætluð fjárhagsleg áhrif þess á tekjur Lands­virkjun, sem selur því rafmagn, er tekju­minnkun um 2,5 milljarða króna á ári. Álverið er að fullu í eigu Rio Tinto og þar starfa um 500 manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár