Telur raforkusamninginn við Rio Tinto sanngjarnan

Lands­virkjun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að aðstæður á álmörkuðum séu mjög krefjandi og að fyrir­tækið eigi nú í samtali við Rio Tinto.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­virkjun á nú í samtali við Rio Tinto, eiganda álversins í Straumsvík, en fyrir­tækið tilkynnti í morgun að það ætlaði að hefja „sér­staka end­ur­skoðun á starf­semi álvers­ins í Straums­vík til að meta rekstr­ar­hæfni þess til fram­tíð­ar­.“

Í tilkynningu frá Lands­virkjun kemur fram að aðstæður á álmörkuðum séu mjög krefjandi um þessar mundir, meðal annars út af lágu álverði, minni eftir­spurn og mikilli framleiðslu­aukningu í Kína undan­farin ár. „Einnig hefur álverið í Straumsvík lent í rekstrar­erfiðleikum sem hefur meðal annars haft áhrif á afkomu þess.“

Þá segir að Lands­virkjun og álverið í Straumsvík hafi átt í farsælu og löngu viðskipta­sambandi frá stofnun. Núgildandi raforku­samningur milli Lands­virkjunar og Rio Tinto hafi verið í gildi síðan 2010.

Sýna því skilning að aðstæður séu krefjandi

Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, segir að þau hjá Lands­virkjun sýni því skilning að aðstæður fyrir­tækisins séu krefjandi og eigi þau í samtali við Rio Tinto til þess að fá sameiginlega sýn á stöðu mála. „Við höfum sagt og teljum áfram að raforku­samningurinn sé sanngjarn fyrir báða aðila og að það séu fleiri þættir en raforku­verðið sem hafa áhrif á þeirra stöðu en þetta erum við að greina nánar í sameiningu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár