Skýrt ákall um breytingar en erfitt að draga heildstæða ályktun

Formenn ríkis­stjórnar­flokkanna segja niður­stöður sveitar­stjórnar­kosningar skýrar en túlka hana með mismun­andi hætti. Formaður Framsóknar­flokksins segir flokkinn í borginni, sem vann mikinn kosninga­sigur, fara í meirihluta­viðræður af yfirvegun.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir erfitt að draga heild­stæða ályktun af niður­stöðu kosninganna, jafnt fyrir Vinstri græn sem aðra flokka. Ýmis tíðindi sé að finna í niður­stöðunum en erfitt að fá heildarsýn.

Hún hefði viljað uppskera betur á höfuð­borgar­svæðinu. „Þetta er fjölgun frá síðustu kosningunum en auðvitað verður maður að setja það í samhengi við að það voru ekkert afskaplega margir fulltrúar fyrir.“

Þetta er meðal þess sem fram kom á Sprengis­andi á Bylgjunni í morgun, þar sem Katrín ræddi niður­stöður sveitar­stjórna­kosninganna ásamt Áslaugu Örnu Sigurbjörns­dóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra og Loga Einars­syni, formanni Samfylkingarinnar.

Katrín segist lesa niður­stöðurnar þannig að Vinstri grænum hafi ekki tekist að byggja upp öflugt starf á sveitar­stjórnar­stiginu hér á höfuð­borgar­svæðinu. „Það er alveg á hreinu. Augljós­lega er þetta eitthvað sem við verðum að taka til okkar.“ Í umræðum í Silfrinu á RÚV um niður­stöðu kosninganna sagði Katrín að flokkurinn þurfi að velta fyrir sér hvort flokkurinn eigi erindi í borgar­stjórn eftir niður­stöðu kosninganna. Líf Magneu­dóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, heldur sínu sæti en flokkurinn tapar samt sem áður fylgi.

Besti árangur Framsóknar slakari en versti árangur Sjálfstæðisflokksins

Áslaug Arna segir það mikil­vægasta í niður­stöðum kosninganna að meirihlutinn í borginni er fallinn, sem eru skýr skilaboð um breytingar og í raun ágætis árangur. Áslaug Arna benti á að Framsókn er ekki með sínum mesta sigri að ná versta árangri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík og líkti sveitar­stjórnar­málunum við golf þar sem flokkar eru með mismun­andi forgjöf.

Logi líkti niður­stöðu Samfylkingarinnar í borginni, sem missti tvo borgar­fulltrúa, við Mackintosh-dollu þar sem megi finna góða og slæma mola. Hann hélt sig því við sælgætis­mynd­líkinguna því í viðtali á kosninga­vöku RÚV í gær líkti hann niður­stöðunni við nammibar, það er sæta og súra mola.

Borgarstjóri geti verið upplitsdjarfur

Logi segir það vera afrek að hafa stýrt borginni í 12 ár og ráðist í breytingar sem hafa skilað því að breyta Reykjavík úr þorpi í evrópska stórborg. „Ég tel að Dagur B. geti verið upplits­djarfur í dag og ég held að hann eigi möguleika,“ sagði Logi á Sprengis­andi.

Logi segir það ekki rétt að kjósendur vilji breytingar í borginni þar sem flokkar sem hafna borgar­línu, líkt og Sjálfstæðis­flokkur og Miðflokkur, hafi ekki riðið feitum hesti. Áslaug Arna hafnaði því og sagði það skýr skilaboð um breytingar þegar meirihlutinn fellur, og það í annað sinn.

Áslaug sagði Loga og borgar­stjóra vera að finna hækju fyrir fallinn meirihluta. Logi sagði engan hafa verið hækju í núverandi meirihluta. „Það eru margir flokkar sem geta komið að þessari nauðsyn­legu aðgerð sem við verðum að ráðast í í borginni. Það væri ótrúlega vont ef við færum í einhverri gamaldags, asnalegri flokka­pólitík að fórna þeim frábæra árangri sem náðst hefur á síðustu 12 árum.“

Kjósendur að átta sig á hvað Framsókn stendur fyrir

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, segir árangurinn hjá flokknum stórkost­legan hringinn í kringum landið. Hann segir ákveðna breytingu vera að eiga sér stað í íslensku samfélagi. „Það sem er að gerast er að almenningur á Íslandi er að opna augu sín fyrir því sem Framsókn stendur fyrir, er að hafna öfgum sem við sjáum kannski meira úti í heimi, þessari pólariseringu,“ sagði Sigurður Ingi í Silfrinu, sem telur flokkinn vera á réttri leið.

Sigurður Ingi tók undir orð Egils Helga­sonar þátta­stjórnanda um að það væri eðlileg krafa að Framsókn verði í borgar­stjórn og jafnvel að borgar­stjóri verði úr þeirra flokki. „Það vilja margir vinna með okkur, kannski af því að við erum öfgalaus, ég veit að flokkurinn í Reykjavík mun nálgast þetta af yfirvegun.“

Skýrt ákall um breytingar þegar meirihlutinn fellur aðrar kosningar í röð

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, var sérstak­lega spurður út í fylgi flokksins í Garðabæ, sem mælist í fyrsta sinn undir 50 prósentum. „Mér finnst nú mestu skipta að við erum með sjö af ellefu bæjar­fulltrúum,“ svaraði Bjarni í Silfrinu.

Hann benti á að Sjálfstæðis­flokkurinn er áfram stærsti flokkurinn á sveitar­stjórnar­stiginu með 110 fulltrúa á landsvísu, sex færri en eftir síðustu kosningar. „Ég veit að við erum að tapa sums staðar en í heildar­fjölda bæjar­fulltrúa er tapið ekki eins og það ber með sér, og ég ætla ekki að dylja það, en við höfum að sjálfsögðu metnað til að vera enn stærri, ekki bara í Reykjavík.“

Bjarni segir þróunin í borginni mega að hluta til mega rekja til fjölgun borgar­fulltrúa úr 15 í 23 sem tók gildi árið 2018. Þá segir hann það skýrt ákall um breytingar að aðrar kosningarnar í röð falli sitjandi meirihluti.

„Það er ekkert annað en sann­gjarnt að segja að þetta er ákall um breytingar, nákvæmlega hvernig úr spilast fer rosalega mikið eftir þessu fólki, hvernig það nær saman, hvernig það treystir hvert öðru, hvað Framsóknar­flokkurinn ætlar sér,“ sagði Bjarni, sem telur að Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í borginni, muni ekki útiloka samstarf við neinn flokk eins og sumir flokkar hafa gert. Hún sagði skýrt í viðtölum í morgun að flokkurinn muni ekki útiloka neinn flokk í viðræðum um meirihluta­samstarf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár