Fimm forvitnilegar (og covid-lausar) fréttir

Stór­merkilegur fundur í Argentínu, fugl vakinn upp frá dauðum, úlfur á landshorna­flakki, „frosnar“ skjald­bökur teknar í skjól og alveg einstak­lega áhugaverð mörgæs. Það er ýmislegt að frétta úr heimi dýranna.

1. Risa risaeðla

Leifar tröll­vaxinnar risaeðlu, sem fundust í Argentínu árið 2014, eru líklega elstu leifar títanseðlu sem fundist hafa til þessa. Eðla þessi, sem var um 20 metrar að lengd, hefur reikað um svæði sem nú heitir Patagónía fyrir um 140 milljónum ára.

Títanseðlur tilheyrðu ætt graseðla enda jurtaætur en þar sem þær voru svo gríðar­lega stórar hefur fjöl­skylda þeirra stundum verið nefnd trölleðlur. Henni tilheyrir til dæmis einnig hin þekkta þórseðla. Trölleðlur eru taldar stærstu dýr sem nokkru sinni hafa gengið um jörðina.

Eftir að stein­gerðar leifar eðlunar fundust í suðvestur­hluta Argentínu voru þær grafnar upp og rann­sakaðar ítarlega. Vísinda­mennirnir hafa nú skilað greiningu sinni á fundinum og m.a. komust þeir að því að um leiða deili­tegund títanseðlu er að ræða og ljóst að hún var uppi um lengri tíma en áður var talið. Nú þykir ljóst að þær voru þegar komnar fram á sjónar­sviðið við upphaf Krítar­tímabilsins en því lauk fyrir um 66 milljónum ára, sem markaði endalok risa­eðlanna á jörðinni.

2. Var þá lifandi eftir allt saman

Í 180 ár var talið að fuglinn brúna­slúðra (e. black-browed babbler) væri útdauður, rétt eins og risa­eðlurnar forðum. Einn uppstoppaður fugl af þessari tegund var reyndar allan þann tíma eina sönnun þess að hann hefði raun­verulega verið til. Á fimmta áratug nítjándu aldar sá leiðangur, undir stjórn Charles Lucien Bonaparte, frænda Napoleons, fuglinn í Austur-Indíum. Bonaparte lýsti fuglinum síðar fyrir vísinda­mönnum og gaf honum nafn sem þýða mætti brúna­slúðra á íslensku.

En svo spurðist ekki til hans í um 180 ár. Allt þar til nýverið er tveir menn, Muhammad Suranto og Muhammad Rizky Fauzan, sáu fugl á eyjunni Borneó í október á síðasta ári sem þeir könnuðust ekki við. Þeim tókst að fanga fuglinn og mynda hann en slepptu honum að því loknu.

Upplýsingunum deildu þeir svo á netinu með öðru áhuga­fólki um fugla.

Það leið ekki á löngu þar til sérfræðingar staðfestu að þarna væri hún loks komin, brúnaslúðran, eftir að hafa verið talin af í áratugi.

„Við áttum engan veginn von á þessu,“ segir Razky Fauzan í samtali við Guardian. „Við fundum einfald­lega fugl sem við könnuðumst ekki við.“

Meira en 1.700 fugla­tegundir eru á eyjum Indónesíu. Margar eyjanna eru lítt kannaðar. Á síðasta ári fundust fimm nýjar tegundir söngfugla á eyjunum.

3. Löng ganga gráúlfs vekur athygli

Gráúlfur lagði nýverið að baki mörg hundruð kílómetra ferðalag frá Oregon til Kaliforníu. Úlfurinn ber stað­setningar­tæki og er ferða­lagið það lengsta sem merktir úlfar hafa farið í.

Um er að ræða karldýr sem vísinda­menn þekkja sem OR-93. Margir fagna tíðindunum því þó að OR-93 sé ekki fyrsti úlfurinn sem fer frá Oregon til Kaliforníu eru þeir ekki margir á þeim slóðum. Úlfum var útrýmt í Kaliforníu á síðustu öld. Sú útrýming var studd af hinu opinbera og gerð til að vernda búfé.

OR-93 dvelur nú í Sierra Nevada-fjall­garðinum, sem fer bæði um Kaliforníu og Nevada.

Gráúlfar hafa notið verndar um hríð og stofnar þeirra hafa tekið vel við sér á ákveðnum svæðum. Hins vegar ákvað ríkis­stjórn Donalds Trump að taka gráúlfinn af lista yfir dýr í útrýmingar­hættu og er hann því aftur eltur – hundeltur – og drepinn.

Í síðustu viku mátti veiða 119 úlfa í Wisconsin, svo dæmi sé tekið. Mun fleiri dýr voru þó drepin, að minnsta kosti 216. Oft eru hundar notaðir til að þefa úlfa uppi áður en þeir eru svo skotnir.

Þekkt er að á þeim stöðum þar sem úlfar hafa átt endurkomu hafa margir aðrir þættir vist­kerfisins einnig tekið við sér og jafnvægi komist á.

4. Skjaldbökur teknar í skjól

Í kulda­kastinu í Texas um miðjan febrúar hófu sjálfboða­liðar umfangs­miklar björgunar­aðgerðir á skjald­bökum úr sjónum undan ströndum ríkisins. Dýra­verndunar­samtökin Sea Turtle Inc., björguðu yfir 4.500 skjald­bökum á nokkurra daga tímabili. Farið var út á bátum og einnig á sundi til að sækja dýrin og koma þeim fyrir innandyra.

Sæskjaldbökur eru sérlega viðkvæmar fyrir hita­breytingum í sjónum. Þegar sjórinn kólnar eins og hann gerði við Texas í febrúar, halda þær meðvitund en geta nær ekkert hreyft sig. Þetta ástand verður svo til þess að þær eiga á hættu að drepast. Fimm sæskjaldbökur halda til í námunda við Texas og eru þær allar í útrýmingar­hættu eða viðkvæmri stöðu.

Þegar mesti kuldinn var um garð genginn var skjald­bökunum sleppt í hafið á nýjan leik.

5. Mörgæs í merkilegum lit

Í leiðangri á Suðurskauts­landinu árið 2019 sá belgíski ljós­myndarinn Yves Adams, eins og vænta mátti, hóp kónga­mörgæsa. Þær eru auðþekkjanlegar á svörtum og gulum fjöðrunum á hálsinum. En ein þeirra vakti sérstaka athygli ljós­myndarans. Mörgæsin sú var ólík hinum að lit. Hún hafði gult höfuð, fölbleikan gogg en engar fjaðrir voru svartar.

Adams var staddur á eyjunni Suður-Georgíu og var að taka búnað sinn saman þegar hann sá hina einstöku mörgæs og náði af henni mörgum myndum sem hann hefur loksins birt opinber­lega.

Engu er líkara en að mörgæsin hafi farið í klórbað en skýringin á útlitinu er erfða­fræðileg og felst í skorti á ákveðnum litar­efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár