Helgi Seljan búinn að segja upp – RÚV á ekki að þurfa að stilla upp í vörn

Einn þekktasti frétta­maður landsins, sem hefur hlotið þrenn blaðamanna­verðlaun og fjórum sinnum verið valinn sjónvarps­maður ársins, hefur sagt upp störfum hjá RÚV.

Helgi Seljan, sem hefur starfað hjá frétta­skýringa­þættinum Kveik hjá RÚV á undan­förnum árum og þar áður hjá Kastljósi, hefur sagt upp störfum.

Helgi hefur verið í leyfi frá störfum um hríð en mun ekki snúa aftur til RÚV, þar sem hann hefur starfað frá árinu 2006, þegar því lýkur.

Stundin tilkynnti skömmu eftir að þessi frétt fór fyrst í loftið að Helgi hefði verið ráðinn til starfa hjá fjöl­miðlinum, í hlutverk rannsóknar­ritstjóra.

Í stöðu­uppfærslu sem Helgi birti inni lokuðu vefsvæði starfs­manna RÚV, þar sem hann greindi frá ákvörðuninni, segir hann að hún hafi hvorki tekin í skyndi eða af neinni vonsku. „Ég mat það bara sem svo að nú væri rétti tíminn til að takast á við nýjar áskoranir á nýjum stað. Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburðarrás undan­farinna missera hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfirleitt fór að velta þessum möguleika fyrir mér. Ég skil þó við RÚV sáttur við allt og alla, vitandi það að öll höfum við lært og munum draga lærdóm af því sem gengið hefur á.“

Atburðar­rásin sem Helgi vísar í er sú sem átt hefur sér stað eftir umfjöllun Kveiks um Samherjaskölin í nóvember. Hún hefur meðal annars falist í því að starfs­maður Samherja elti og áreitti Helga mánuðum saman, „Skæruliða­deild Samherja“ vann skipulega að því að reyna að draga úr trúverðug­leika hans, Samherji kærði hann fyrir siðanefnd RÚV og ýmis konar aðdróttanir voru settar fram gegn honum í þáttum sem Samherji lét framleiða og sýna á netinu. Stefán Eiríksson, útvarps­stjóri RÚV, sagði í yfir­lýsingu sem send var út í mars í fyrra, að Helgi hefði búið við „fordæma­lausar árásir“ af hálfu Samherja“.

Helgi hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín, þar á meðal þrenn blaðamanna­verðlaun og fjölda tilnefninga, meðal annars fyrir umfjöllun um Samherja­skjölin, samkeppnis­laga­brot Mjólkur­samsölunnar, áratuga­langa brotasögu kynferðis­brotamanns og þöggun trúfélaga og stofnana um þau, umfjöllun um bókhalds­brellur og skatta­sniðgöngu stór­iðju­fyrirtækja á Íslandi, lögbrot og aðgerðar­leysi eftirlits­stofnanna í sjávar­útvegi, mann­réttinda­brot gegn geðsjúkum í íslenskum fangelsum og brota­starfsemi á íslenskum vinnu­markaði.

Þá hefur hann fjórum sinnum verið valinn sjónvarps­maður ársins á Eddu­verðlauna­hátíðinni, síðast í fyrra. Þá völdu lesendur DV Helga mann ársins árið 2019.

Flótti fagmanna af RÚV

Helgi segir í stöðu­uppfærslu sinni að hann geri sér grein fyrir því að undan­farna mánuði hafi kvarnast hressilega úr hópi starfs­manna RÚV. Sú staðreynd geri ákvörðun hans ekki auðveldari. „Að lokum vil ég segja þetta: Ríkis­útvarpið og starfs­fólk þess á ekki að þurfa að stilla upp í vörn. Alls ekki. Ríkis­útvarpið á að sækja á. Innan þessarar stofnunar er ótæmandi bunki af hæfi­leikum, dugnaði og elju sem skilar sér til fólks á hverjum degi. Og þannig á það að vera áfram. Auk þess að vera fræðandi og skemmtilegt, á Ríkis­útvarpið líka að vera ögrandi og erfitt. Hlustendum og áhorf­endum er enginn greiði gerður með því að sitja undir kurteisis­hjali við skoðanir þess og heimsmynd öllum stundum. Þannig hefur það ekki verið og má ekki verða.“

Félagar hans úr Kveik, sem unnu umfjöllunina um Samherja­skjölin með Helga, þeir Aðalsteinn Kjartansson og Stefán Drengsson, hættu báðir störfum í fyrra og réðu sig annað. Aðalsteinn sagði í stöðu­upp­færslu sem hann setti á Facebook af þessu tilefni að eftir margra mán­aða umhugsun hafi hann kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að RÚV „sé ekki vinnu­staður fyrir mig eins og stend­ur.“ Annar samstarfs­félagi þeirra úr Kveik, Lára Ómars­dóttir, hætti störfum í febrúar í fyrra og réð sig sem samskipta­stjóra fjár­festinga­félags.

Á meðal annarra sem hafa hætt störfum hjá RÚV nýverið eru Rakel Þorbergs­dóttir, fyrr­verandi frétta­stjóri, Sunna Valgerðar­dóttir, sem réð sig til samkeppnis­aðila, Þórhildur Þorkels­dóttir, sem réð sig til BHM, Einar Þorsteinsson, einn umsjónar­manna Kastljóss, og Fanney Birna Jóns­dóttir, sem var annar umsjónar­manna Silfursins um árabil.

Aðrir sem hafa horfið á braut eru meðal annars Sigyn Blöndal, sem stýrði margskonar barnaefni hjá RÚV, íþrótta­frétta­maðurinn Haukur Harðarson og Milla Ósk Magnúsdóttir, sem gerðist aðstoðar­maður ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár