Merkel: Evrópusambandið tilbúið að hefja viðræður um Brexit

Staða Theresu May versnaði til muna eftir þing­kosningarnar í Bretlandi.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands. Mynd: EPA

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, segir að Evrópu­sambandið (ESB) sé tilbúið að hefja viðræður um útgöngu Bretlands úr ESB.

Í viðtali við breska ríkis­útvarpið segir Merkel að hún telji ekkert í vegi fyrir því að hefja viðræðurnar um útgöngu Bretlands í samræmi við fyrri tíma­áætlun, en samkvæmt henni þá eiga viðræðurnar að hefjast 19. júní.

Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, boðaði til þing­kosninga með skömmum fyrirvara í vor í þeirri von, að fá sterka umboð til að leiða landið í viðræðunum við ESB. Kosningarnar fóru illa fyrir Íhalds­flokkinn, sem May leiðir, og tókst honum ekki að fá 326 þingsæti, sem þarf til að tryggja meirihluta í þinginu.

May hefur þegar fundað með Elísa­betu II Eng­lands­drottn­ingu og óskað eftir umboði til þess að mynda nýja minni­hluta­stjórn íhalds­flokks­ins. Lýð­ræð­is­legi sam­bands­flokk­ur­inn í Norð­ur­-Ír­landi hefur sam­þykkt að ræða sam­starf við íhalds­menn um að verja minni­hluta­stjórn­ina falli og kjósa með lyk­il­málum svo þau fái fram­gang.

Fjölmörg erfið mál bíða úrslausnar, en ekkert er þó stærra en úrsögn Bretlands úr ESB og margir einstakir mála­flokkar sem tengjast útgöngunni, sem fara þarf í gegnum. Kostnaðurinn við útgöngu gæti orðið mikill fyrir Breta, og mun koma í ljós þegar samninga­viðræðurnar hefjast, hverjar kröfurnar verða af beggja hálfu.

Skipting þingsæta í kosningunum var sem hér segir:

  • Íhalds­flokkurinn – 318 (-12)
  • Verkamanna­flokkurinn – 261 (+31)
  • Frjáls­lyndir demó­kratar (LD) – 12 (+3)
  • Skoski þjóðar­flokkurinn (SNP) – 35 (-19)
  • Lýðræðis­legi sambandsfl. (DUP) – 10 (+2)
  • Sjálfstæðis­flokkur Bretlands (UKIP) – 0 (0)
  • Græningjar – 1 (0)
  • Aðrir – 12
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár