„Hér skautar lögreglustjórinn fyrir norðan á afar þunnum ís“

Þingmenn þriggja stjórnar­andstöðu­flokka hafa gagnrýnt lögregluna á Norður­landi á samfélags­miðlum síðasta sólar­hring vegna yfirheyrsla yfir blaða­mönnum.

Efri röð: Hanna Katrín, Helga Vala og Þórhildur Sunna. Neðri röð: Björn Leví, Sigmar og Jóhann Páll.
Efri röð: Hanna Katrín, Helga Vala og Þór­hildur Sunna. Neðri röð: Björn Leví, Sigmar og Jóhann Páll. Mynd: Samsett mynd

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata tjáðu sig með afgerandi hætti á samfélags­miðlum eftir að fréttir bárust af því að lögreglan á Norður­landi hefði boðað blaðamenn í yfirheyrslu fyrir meint brot á lögum um friðhelgi einka­lífsins.

Kjarninn greindi frá því í gær að Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri Kjarn­ans og Arnar Þór Ing­ólfs­son blaða­maður mið­ils­ins hefðu fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi, sem er stað­sett á Akur­eyri, á meintu broti á frið­helgi einka­lífs­ins. Þeim var greint frá þessu sím­leiðis í gær og þeir boð­aðir í yfir­heyrslu hjá rann­sókn­ar­lög­reglu­manni emb­ætt­is­ins sem mun gera sér ferð til Reykja­víkur til að fram­kvæma hana.

Aðal­steinn Kjart­ans­son blaða­maður á Stund­inni er sömu­leiðis með stöðu sak­born­ings í mál­inu og hefur einnig verið boð­aður í yfir­heyrslu. Þá var greint frá því á vef RÚV í gærkvöldi að Þóra Arn­órs­dóttir rit­stjóri Kveiks hefði einnig verið boðuð í yfir­heyrslu.

Skautað á hálum ís

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar og fyrr­verandi fjölmiðla­maður tjáði sig um málið í gær í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu sinni. „Við búum sem sagt í landi þar sem blaðamenn fá réttar­stöðu sakbornings í yfirheyrslum fyrir að skrifa fréttir. Hér skautar lögreglu­stjórinn fyrir norðan á afar þunnum ís, vægast sagt.

Það er fullkomlega heimilt að skrifa fréttir upp úr svona gögnum, ef upplýsingarnar varða almannahag. Það er nánast daglegt brauð. Man ekki betur en að Samherji hafi beðist velvirðingar vegna hegðunar þessarar skæruliða­deildar í framhaldi af frétta­skrifunum sem eru undir í þessu máli. Ef Aðalsteinn Kjartansson og Þórður Snær Júlíusson þurfa að svara til saka en ekki Þorbjörn Þórðarson og Jón Óttar spæjari, þá er kerfið okkar mein­gallað,“ skrifaði hann.

Formaður BÍ: Óskiljanleg og óverjandi ákvörðun

Hanna Katrín Friðriksson þing­flokks­formaður Viðreisnar gerði málið einnig að umtals­efni á Facebook-síðu sinni í gær. „Svo það eru þá fjöl­miðlarnir sem voru vondu kallarnir. Og þessir almannahags­munir sem eru alltaf að reyna að þykjast vera eitthvað merkilegt. Vesalings skæru­liðarnir. Og auðvitað aumingja Samherji.“

Hún deildi með færslunni frétt RÚV þar sem fjallað er um yfir­lýsingu formanns Blaðamanna­félags Íslands, Sigríðar Daggar Auðuns­dóttur, vegna málsins. Sigríður Dögg sagði í yfir­lýsingu sem hún sendi frá sér í gær að ákvörðun lögreglunnar á Norður­landi um að kalla til blaðamenn til yfirheyrslu vegna umfjöllunar þeirra um svokallaða skæruliða­deild Samherja, væri óskiljanleg og óverjandi.

„Því er óskiljanlegt og nær óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu eingöngu til þess að fá þær upplýsingar frá þeim að þeir muni ekki gefa upp heimildar­menn sína. Það má beinlínis túlka sem óeðlileg afskipti lögreglu af starfi blaða­manna sem tefur þá að auki frá öðrum störfum á meðan og hefur þar af leiðandi hamlandi áhrif á störf þeirra. Evrópu­ráðið hefur bent á að þessu til viðbótar geti afskipti lögreglu sem þessi af blaða­mönnum dregið úr vilja almennings til þess að láta blaða­mönnum í té upplýsingar, sem hafi einnig áhrif á rétta almennings til upplýsinga,“ sagði Sigríður Dögg.

Árás á fjölmiðla og „algjörlega ólíðandi“

Þingmaður Samfylkingarinnar lagði einnig orð í belg. „Þetta er árás á fjölmiðla og algjör­lega ólíðandi.“ Þetta sagði Helga Vala Helga­dóttir á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Minni á að við erum í 16. sæti heims­lista yfir frelsi fjölmiðla á sama tíma og önnur norræn ríki raða sér í efstu sætin. Að starfa í fjöl­miðlum er ekki vel launað starf hér á landi og krefst þess að fólk, amk það sem fæst við fréttir og frétta­tengt efni, sé alltaf á vakt. Þetta verður að lífsstíl og vaktinni lýkur aldrei. Þegar ofsóknir auðfólks bætast svo við verður þetta starf nánast óverjandi amk fyrir fjölskyldu­fólk. Við verðum að opna augun fyrir þessari stöðu því án sjálf­stæðra fjölmiðla veikist lýðræðið og þar með réttar­ríkið.“

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum blaða­maður sagði á Facebook í gær að frétta­flutningur af skæruliða­deild Samherja hefði átt brýnt erindi við almenning.

„Þessi afskipti lögreglu af störfum fjölmiðla­fólks vekja með manni ugg svo ekki sé fastar að orði kveðið og kalla á skýringar.“

Kallar á frekari skýringar

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar sagði í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag að sjálf­stæðir fjöl­miðlar væru grundvallar­atriði í heil­brigðu lýðræðis­samfélagi.

„Í siðuðum ríkjum er blaða­mönnum tryggðar aðstæður sem ætlað er að tryggja að þeir geti sinnt störfum sínum í þágu almannahags­muna. Alþjóða­stofnanir leggja ríka áherslu á að gætt sé fyllstu varkárni þegar blaðamenn eru rann­sakaðir og íslensk lög tryggja þeim rétt til að vernda heimildar­menn sína.“

Hann sagði jafnframt að það væri fáheyrt ef tilgangurinn með yfirheyrslum lögreglu væri að blaðamenn gæfu upp heimildar­menn sína og vert væri að minna á að samkvæmt dómum Mann­réttinda­dómstólsins hefðu blaðamenn bæði rétt á og bæru í raun skylda til þess að halda trúnað við heimildar­menn sína.

„Þessi rannsókn kemur mér því mjög spánskt fyrir sjónir og kallar á frekari skýringar,“ skrifaði hann.

Segir að þetta standist ekki lög

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þingmaður Pírata sagði í athugasemd við færslu ritstjóra Kjarnans þar sem hann deilir frétt af málinu að þetta væri fáránlegt og stæðist ekki lög.

Benti hún á að nefndar­álit allsherjar- og menntamála­nefndar gerði það mjög skýrt að ákvæðið sem lögreglu­stjórinn vísar í undan­skilur vinnu blaða­manna.

„Ég var fram­sögumaður á nefndar­áliti allrar allsherjar- og menntamála­nefndar og lagði áherslu á að tryggja að vinna blaða­manna yrði undan­skilin þessu ákvæði við vinnu mína í nefndinni og nefndin var öll á bak við þá tillögu.“

„Hvers vegna lögreglan lætur hafa sig út í þetta er stórfurðulegt“

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata deildi frétt Stundarinnar um málið í gær og spurði hvað í ósköpunum væri eiginlega í gangi.

„Dettur einhverjum hérna í hug að það sé tilviljun að það er lögreglan á Akureyri sem fer að skipta sér af þessu?

Ég á ekki orð. Ef þessu verður einhvern vegin troðið í einhvers konar saksókn og dómsmál þá eru lög um fjölmiðla og hlutverk þeirra algerlega ónýtt. Hitt finnst mér líklegra að það sé hreinlega um ofsóknir að ræða – hvers vegna lögreglan lætur hafa sig út í þetta er stór­furðulegt,“ skrifaði hann.

RÚV leitaði til Lilju Alfreðs­dóttur menningar- og viðskipta­ráðherra varðandi viðbrögð og segir hún í skriflegu svari við fyrir­spurn frétta­stofu RÚV í dag að hún tjái sig ekki um einstaka mál sem eru til rann­sóknar. Segir hún að brýnt sé að fjöl­miðlar geti sinnt sínu mikilvæga lýðræðis­hlutverki og stuðlað þannig að málefnalegri umræðu í þjóð­félaginu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár