Fjölmiðlabanni Hvíta hússins harðlega mótmælt

New York Times, CNN og Politico fengu ekki að vera með fulltrúa á opnum blaðamanna­fundi Hvíta hússins.

Hvíta húsið meinaði í gær nokkr­um banda­rísk­um fjöl­miðlum aðgang að dag­leg­um blaða­manna­fundi. Fjöl­miðlarnir CNN, New York Times og Politico fengu ekki að vera með fulltrúa á fundinum og var þessari ákvörðun harðlega mótmælt.

Ritstjórnir allra fjöl­miðlanna sögðu ákvörðunina fráleita og fordæma­lausa. Hún væri til þess fallinn að grafa undan frjálsri fjöl­miðlun, og gæfi til kynna að Hvíta húsið vildi aðeins hafa í kringum sig fjölmiðla sem flyttu fréttir sem þóknast stjórn Donalds Trump, Bandaríkja­forseta.

Sean Spicer, fjölmiðla­fulltrúi Trump í Hvíta húsinu, hefur gagnrýnt fjölmiðla harðlega fyrir þeirra framgöngu: Margt af því sem frá honum hefur komið hefur verið rakið sem rangindi, nánast umsvifa­laust, af fjöl­miðlum. Hann hefur sjálfur aldrei viðurkennt að fara með rangt mál, og það hefur Donald Trump ekki heldur gert.

Hann hefur sérstak­lega gagnrýnt New York Times og segir fjöl­miðilinn flytja „falskar fréttir“. Engin nákvæm efnisleg gagnrýni hefur þó komið fram, en New York Times hefur hins vegar endur­tekið kannað hvort málflutningur Trumps standist skoðun og fyrir­liggjandi stað­reyndir, og hefur hann í mörgum tilvikum ekki gert það.

View image on Twitter

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár