Apple með fulla vasa fjár og meira til

Tíu ár eru um þessar mundir frá því Steve Jobs kynnti til leiks nýja vöru. iPhone símann.

Eitt af því sem gerir stöðu Apple óvenju­lega þessi miss­erin er lausa­fjár­staða fyr­ir­tæk­is­ins.
Eitt af því sem gerir stöðu Apple óvenju­lega þessi miss­erin er lausa­fjár­staða fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: EPA

Verð­mætasta hluta­félag í heimi í dag, sé horft til markaðs­virðis miðað við skráð gengi í gær, er hugbúnaðar­risinn Apple. Verð­miðinn á fyrir­tækinu er nú kominn í 811 milljarða Bandaríkja­dala eða sem nemur tæplega 90 þúsund milljörðum krónum.

Framundan er hjá fyrir­tækinu að kynna nýja vöru, iPhone 8, en á þessu ári eru tíu ár frá því að frumkvöðullinn Steve Jobs kynnti fyrsta iPhone símann, sem gjör­breytti farsíma- og hugbúnaðar­geiranum. „Ég er búinn að bíða eftir þessum degi í tvö og hálft ár,“ sagði Jobs áður en hann kynnti símann til sögunnar.

Óhætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar á þessum áratug, og ótrúlegar tækni­framfarir átt sér stað, ekki síst vegna möguleika sem opnuðust með snjall­símunum.

Velgengni Apple á þessum tíma hefur verið með ólíkindum, og raunar án fordæma í viðskipta­sögunni. Fyrir­tækið hefur selt meira en milljarð símtækja og mörg hundruð milljónir eintaka af spjald­tölvum og öðrum varningi, og lagt grunninn að stór­veldinu sem fyrir­tækið er orðið.

Tim Cook, forstjórinn sem tók við stjórnar­taumunum þegar Steve Jobs lést úr krabba­meini, segir að Apple muni ekki síst einblína á Asíu­markað í fram­tíðinni, og hefur nefnt Indland sem helsta hávaxtarsvæðið.

Eitt af því sem gerir stöðu Apple óvenju­lega þessi misserin er lausafjár­staða fyrir­tækisins. Fyrir­tækið á 256 milljarða Bandaríkja­dala í lausu fé frá rekstri (Cash on hand), eða sem nemur um 30 þúsund milljörðum króna. Ekkert fyrirtæki utan fjármála­geirans á nándar nærri jafn mikið af lausu fé til umráða.

Upphæðin dugar til að kaupa allan íslenska hlutabréfa­markaðinn 25 sinnum, og ríflega það. Apple gæti líka keypt Morgan Stanley bankann (88 ma. USD), Goldman Sachs (79 ma. USD), Tesla (55 ma. USD) og stóran hlut í Netflix (67 ma. USD), fyrir þessa fjárhæð, svo dæmi sé tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár