Bandaríkin munu girða fyrir fjárfestingar styrkþega í Kína

Bandarísk yfirvöld munu veita tugum milljarða dollara í að niður­greiða fram­leiðslu á tölvu­kubbum á næstu árum. Fyrir­tækin sem hljóta styrki mega á sama tíma ekki opna nýjar hátækni­verksmiðjur á kínverskri grundu, samkvæmt viðskipta­ráðherra landsins.

Tölvukubbar eru bráðnauðsynlegir í langflest raftæki, stór og smá. Bandaríkin ætla að setja mikið fé í að auka framleiðslu á þeim innanlands.
Tölvukubbar eru bráð­nauð­syn­legir í lang­flest raf­tæki, stór og smá. Banda­ríkin ætla að setja mikið fé í að auka fram­leiðslu á þeim inn­an­lands. Mynd: Pexels

Bandarískum tækni­fyrirtækjum sem þiggja ákveðnar niður­greiðslur frá hinu opinbera verður bannað að byggja nýjar hátækni­verksmiðjur í Kína næsta áratuginn. Þetta hefur Biden-stjórnin í Banda­ríkjunum gefið út, en kvaðirnar tengjast nýjum áætlunum um að auka fram­leiðslu á hálf­leiðurum (e. semiconductors), sem í daglegu tali eru einfald­lega kallaðir tölvu­kubbar, þar innanlands.

Bandarísk stjórn­völd ætla, samkvæmt löggjöf sem samþykkt var í ágúst, að setja tugi milljarða bandaríkja­dala af opinberu fé í það að auka fram­leiðslu á tölvu­kubbum í Banda­ríkjunum á næstu árum, en í dag eru rúm 10 prósent tölvu­kubba í heiminum öllum framleidd þar í landi, á meðan að þorri fram­leiðslunnar fer fram í löndum Austur-Asíu.

Skortur á tölvu­kubbum eftir að virðis­keðjur hikstuðu eða rofnuðu í kórónu­veiru­faraldrinum hefur valdið marg­víslegum vandræðum hjá framleiðslu­fyrirtækjum um allan heim. Hafa vandræðin sem af þessu hlutust orðið hvati fyrir ríki til að setja púður í að styðja við fram­leiðslu á þessum íhlutum, sem eru nauðsyn­legir í stór og smá raftæki.

Á vef Guardian er fjallað um þessi mál og haft eftir að Ginu Raimondo, viðskipta­ráðherra Banda­ríkjanna, að settar verði upp kvaðir til að tryggja að þau fyrirtæki sem hljóta niður­greiðslu á grund­velli Chips-löggjafarinnar, eins og hún er kölluð, ógni ekki á sama tíma þjóðar­öryggi.

„Þeim verður ekki heimilt að nýta þetta fé til þess að fjárfesta í Kína, þau mega ekki þróa hátækni sína í Kína og mega ekki senda nýjustu tækni úr landi,“ er haft eftir Raimondo á vef Guardian.

Viðskipta­ráðuneyti Banda­ríkjanna mun úthluta alls 39 milljarða dollara niður­greiðslum til fyrir­tækja sem setja á fót nýjar tölvukubba­verksmiðjur á bandarískri grundu á næstu árum. Það jafn­gildir tæpum 5.600 milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins í dag.

Þetta er þó einungis einn angi Chips-löggjafarinnar, sem alls felur í sér 280 milljarða dollara fjárútlát til hátækni­framleiðslu og rannsókna, með það fyrir augum að auka samkeppnis­hæfni Banda­ríkjanna gagnvart Kína.

Er Joe Biden Bandaríkja­forseti skrifaði undir löggjöfina snemma í ágúst­mánuði kallaði hann löggjöfina mikils­verða „fjár­festingu í Ameríku sjálfri“ af því tagi sem einungis ætti sér stað einu sinni á hverri mannsævi.

Þrátt fyrir þau stóru orð hefur verið bent á að alllangur tími kann að líða þar til ábatinn af þessari umfangs­miklu niður­greiðslum bandarískra stjórn­valda til hátækni­framleiðslu komi í ljós. Í frétt Axios segir að verksmiðjurnar sem þarf að byggja fyrir fram­leiðsluna séu afar flóknar, og að þrjú til fimm ár geti tekið að koma nýrri verksmiðju af þessu tagi á laggirnar.

Það þýði að líklega verði fyrstu ríkis­styrktu tölvu­kubbarnir í Banda­ríkjunum ekki tilbúnir til notkunar fyrr en árið 2025.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár