Gjaldþrota félag Jóns Ásgeirs skuldaði skattinum tæpar 100 milljónir

Yfir­skattanefnd taldi 340 milljóna króna arðgreiðslur úr félagi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar hafa verið óheimilar og skilgreindi þær sem launa­greiðslur. Félagið greiddi ekki tæpar 100 milljónir af þessum skatti og er það nú gjald­þrota.

Fékk 340 milljónir úr félagi sem nú er gjaldþrota
Fékk 340 millj­ónir úr félagi sem nú er gjald­þrota Jón Ásgeir Jóhann­es­son tók 340 millj­ónir út úr félagi, sem hann átti, í formi arðs. Yfir­skatta­nefnd komst að því arð­greiðsl­urnar voru óheim­ilar og end­ur­á­kvarð­aði skatt á félagið og kall­aði greiðsl­urnar launa­greiðslur. Félagið varð svo gjald­þrota og skuld­aði búið Toll­stjóra tæpar 100 millj­ónir.

Þú blásól ehf., félag sem var í eigu fjár­festisins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, skuldaði skatta­yfirvöldum á Íslandi tæplega 100 milljónir króna en félagið er gjald­þrota og hefur búi þess verið lokað. Greint var frá skipta­lokum félagsins í lok nóvember en heildar­kröfur í búið námu rúmlega 102 milljónum króna. Þarf af voru rúmlega 99 milljónir króna frá Toll­stjóranum í Reykjavík, sem sér um innheimtu á skatta­skuldum og -sektum, en eftir­stöðvarnar, rúmlega 2 milljónir, var krafa frá Arion banka.  Engar eignir voru hins vegar í búinu og voru þessar kröfur því afskrifaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár