„Ekkert annað en launaþjófnaður“

Halldór Grönvold hjá ASÍ og Drífa Snædal hjá Starfs­greina­sambandinu líta félagsleg undirboð hestaleigu­fyrirtækja, sem Stundin fjallaði um í nýjasta tölublaði, alvarlegum augum.

Halldór Grönvold, aðstoðar­framkvæmdar­stjóri ASÍ, segir að félags­legu undir­boðin hjá hesta­leigum sem Stundin fjallaði um í nýjasta tölublaði séu skólabókar­dæmi um brota­starfsemi sem sé alltof algeng í ferða­þjónustu á Íslandi. 

Drífa Snædal, framkvæmda­stjóri Starfs­greina­sambands Íslands, er sama sinnis og segir sambandið hafa verulegar áhyggjur af félags­legum undir­boðum hjá hestaleigu­fyrirtækjum. 

Umfangið er gríðarlegt, en upplýsingar sem Stundin aflaði frá hesta­leigum benda til þess að sum fyrir­tækjanna spari sér tugi milljóna á hverju ári með því að notfæra sér ódýrt erlent vinnuafl, sjálfboða­liða og fólk í ólaunaðri vinnu, og öðlist þannig gríðarlegt samkeppnis­forskot gagnvart þeim fyrir­tækjum sem fylgja lögum og greiða starfs­fólki samkvæmt kjara­samningum. 

„Í raun er þetta ekkert annað en launa­þjófnaður,“ segir Halldór Grönvold og bendir á að ólíkt því sem tíðkast víða annars staðar séu kjara­samningar á Íslandi lágmarks­réttindi samkvæmt lögum. Það að fylgja þeim ekki feli í sér launa­þjófnað.

Birtingar­myndirnar séu einkum þrenns konar. „Í fyrsta lagi eru greidd laun langt undir kjara­samningum, það er ein myndin. Önnur myndin er þegar starfs­menn eru ráðnir sem sjálfboða­liðar en látnir vinna störf sem kjara­samningar gilda um. Í þriðja lagi er algengt að menn skýli sér á bak við að fólk komi í einhvers konar starfsnám eða starfs­þjálfun. Í grunninn er þetta ekkert annað en brota­starfsemi, því um þessi störf gilda kjara­samningar og kjara­samningar kveða á um lágmarks­réttindi varðandi laun og önnur starfs­kjör. Allt annað er með öllu ólíðandi.“

„Í grunninn er þetta ekkert
annað en brota­starfsemi“

Samkvæmt íslenskum lögum eru sjálfboða­störf einungis réttlætanleg þegar um er að ræða vinnu fyrir mannúðar- eða hjálpar­samtök, verkefni sem lúta að náttúru­vernd eða störf sem ellegar væru ekki unnin. Um önnur störf gilda ákvæði kjara­samninga. Ólaunuð vinna við „efnahags­lega starfsemi“ – það er fram­leiðslu og sölu á vöru eða þjónustu á markaði, oftast í hagnaðar­skyni og í samkeppni við fyrirtæki í sömu atvinnu­starfsemi – felur hins vegar í sér óásættanleg undirboð. 

Halldór segir mörg dæmi um að fólki sem hefur starfað á launum hjá ferða­þjónustu­fyrirtækjum sé rutt út og ungt fólk, ólaunað eða á launum langt undir kjara­samningum, tekið inn í staðinn. „Þetta kemur líka auðvitað niður á þeim fyrir­tækjum sem starfa heiðar­lega, þeirra samkeppnis­staða verður óásættanleg. Loks er verið að hafa af tekjur af samfélaginu, því það fylgir þessari brota­starfsemi að ekki eru greiddir skattar og skyldur til að halda uppi samneyslunni.“

Hann bendir á að oft setji strik í reikninginn að ungt fólk sem kemur til Íslands til að sinna ólaunaðri vinnu sjái ekki ástæðu til að sækja rétt sinn. Auk þess séu starfs­menn gjarnan ótryggðir og átti sig ekki á því hvaða staða kemur upp ef þeir slasast við vinnu. 

En hvað er til ráða? „Í fyrsta lagi þarf að upplýsa fólk um réttindi þess, bæði atvinnu­rekendur og launamenn, um þær reglur sem gilda hérna svo menn geti ekki skákað í skjóli þess að segjast ekki vita betur. Í öðru lagi þarf að reyna að fá einstaklingana sem er brotið á til að koma fram fyrir skjöldu og sækja rétt sinn. Í þriðja lagi höfum við, okkar fulltrúar, heimild til að fara inn á vinnu­staði og fá upplýsingar um ráðningar­samninga, launa­seðla og vinnu­skýrslur og kanna hvort verið sé að efna kjara­samninga. Ríkis­skattstjóri hefur auðvitað ríkari heimildir til að fara yfir bókhald fyrir­tækjanna, og það hlýtur að koma til kasta þess embættis þegar menn stunda einbeitta brota­starfsemi. Embættið áætlaði fyrir nokkrum árum að ríkið færi á mis við um 80 milljarða á ári vegna skatta­undanskota og það er alveg ljóst að verulegur hluti af þessu á sér stað í ferða­þjónustunni þar sem er mjög mikið um launa­þjófnað.“ 

Drífa Snædal hjá Starfs­greina­sambandinu segir að sambandið hafi haft sérstakar áhyggjur af þessum geira.

„Því þarna er oft spilað inn á að það sé eftirsóknar­vert að fá að umgangast íslenska hestinn, jafnvel svo eftirsóknar­vert að það þurfi ekki að greiða fólki laun fyrir að vinna við það,“ segir hún í samtali við Stundina. 

Hún bendir á að ólaunuð vinna er sjaldan talin fram til skatts. „Svo á auðvitað að gefa hlunnindi upp til skatts, svo þarna er líklega verið að svíkja sameiginlega sjóði um háar fjárhæðir.“ Þá séu tryggingamál starfs­fólk áhyggju­efni. 

Starfs­menn séu ekki skyldu­tryggðir og hesta­leigurnar geti bakað sér skaða­bótaskyldu þegar starfs­menn slasast. „Fyrir­tækin eru að leika sér að eldinum, varðandi laun, gagnvart skattinum og gagnvart tryggingum starfs­fólks. Ef manneskja örkumlast er fyrir­tækið skaða­bótaskylt gagnvart öllum skaðanum og tekju­missinum og það eru fordæmi fyrir því að háar fjárhæðir lendi á fyrir­tækjunum. En fyrst og fremst er þessi starfsemi, ólaunaða vinnan, svik við fólkið sem þarna starfar og samfélagið allt.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár