Viðreisn fer ein fram í Hafnarfirði

Viðreisn er hætt við að bjóða fram lista í sveitar­stjórnar­kosningunum með Bjartri framtíð.

Viðreisn hyggst tefla fram eigin lista í Hafnar­firði í sveitar­stjórnar­kosningunum 26. maí, en hætt hefur verið við fyrir­hugað sameiginlegt framboð Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í Hafnar­firði.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans í dag, þá er töluverð ólga innan Bjartrar framtíðar í bænum, og því er orðið ljóst að ekkert verður af sameiginlegu frambði.

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, formaður Viðreisnar, staðfesti við Vísi í dag að Viðreisn færi fram með eigin framboð í Hafnar­firði.

Björt Ólafs­dóttir, formaður Bjartrar framtíðar, segir á Facebook síðu sinni, að ljóst sé, að framboðið fyrir­hugaða sé í „upplausn“. „Eftir allt sem á undan er gengið er ljóst að framaboð í Hafna­firði er í upplausn. Þar er fólk þreytt eftir átök og rugling og þau sem skipuðu sæti á sameiginlegum lista Bjartrar Framtíðar og Viðreisnar hafa dregið sig í hlé með miklum trega og eftirsjá,“ segir Björt.

Eins og greint var frá í dag, þá hafa tveir vara­bæj­ar­full­trúar í Hafn­ar­firði, þau Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir og Pétur Ósk­ars­son, óskað eftir að sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið taki til umfjöll­unar ákvarð­anir Guð­laugar Krist­jáns­dóttur um setu í og úr bæj­ar­stjórn og hins vegar missi kjör­gengis og þá sam­hliða lausn frá störfum bæj­ar­full­trú­ans Ein­ars Birkis Ein­ars­son­ar.

Hefur lög­maður þeirra sent ráðu­neyt­inu form­legt erindi þessa efnis, að það taki málið til form­legrar athug­unar á grund­velli sveit­ar­stjórn­ar­laga þar sem mælt er fyrir um almennt stjórn­sýslu­eft­ir­lit ráð­herra með því að sveit­ar­fé­lög gegni skyldum sín­um. Verði málið ekki tekið til umfjöll­unar form­lega af ráðu­neyt­inu áskilja þau sér rétt til að leggja fram stjórn­sýslu­kæru vegna máls­ins.

Vilja þau meina að Guð­laug hafi farið í ótíma­bundið leyfi frá störfum á grund­velli ákvæðis sveit­ar­stjórn­ar­laga sem geri ráð fyrir fjar­veru í að minnsta kosti einn mánuð vegna for­falla. Var til­kynnt um for­föll Guð­laugar þann 14. mars en hún tók sæti sitt aftur í sveit­ar­stjórn­inni á fundi hennar í gær. Vilja þau Borg­hildur og Pétur meina að þar sem hún hafi verið styttri tíma en einn mánuð frá störfum stang­ist það á við laga­á­kvæð­ið.

Síð­ara umkvört­un­ar­efni þeirra í erind­inu lýtur að kjör­gengi Ein­ars Birkis Ein­ars­son­ar. Þar vísa þau til þess að Einar sé með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði á heim­ili systur sinn­ar. hann hins vegar búi í Kópa­vogi ásamt sam­býl­is­konu sinni. Í lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórnar segir að kjör­gengur sé sá sem meðal ann­ars á kosn­inga­rétt í sveit­ar­fé­lag­inu en þar er gerður áskiln­aður um lög­heim­ili í sveit­ar­fé­lag­inu. Vilja þau að ráðu­neytið afli upp­lýs­inga frá Ein­ari um búsetu hans svo unnt sé að stað­festa hvort hann njóti enn kjör­gengis eða hvort leysa beri hann frá störfum sökum missi þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár