Kvarta til ráðuneytisins vegna bæjarstjórnar Hafnarfjarðar

Tveir vara­bæj­ar­full­trúar Bjartrar fram­tíðar í Hafn­ar­firði vilja að sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið taki til athug­unar tvo fyrr­ver­andi flokks­fé­laga sína sem viku þeim úr nefndum og ráðum á fundi í gær. Miklar deilur innan flokks­ins og bæj­ar­stjórn­ar­innar.

Tveir vara­bæj­ar­full­trúar í Hafn­ar­firði, þau Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir og Pétur Ósk­ars­son, hafa óskað eftir að sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið taki til umfjöll­unar ákvarð­anir Guð­laugar Krist­jáns­dóttur um setu í og úr bæj­ar­stjórn og hins vegar missi kjör­gengis og þá sam­hliða lausn frá störfum bæj­ar­full­trú­ans Einars Birkis Ein­ars­sonar.

Hefur lög­maður þeirra sent ráðu­neyt­inu form­legt erindi þessa efnis, að það taki málið til form­legrar athug­unar á grund­velli sveit­ar­stjórn­ar­laga þar sem mælt er fyrir um almennt stjórn­sýslu­eft­ir­lit ráð­herra með því að sveit­ar­fé­lög gegni skyldum sínum. Verði málið ekki tekið til umfjöll­unar form­lega af ráðu­neyt­inu áskilja þau sér rétt til að leggja fram stjórn­sýslu­kæru vegna máls­ins.

Vilja þau meina að Guðlaug hafi farið í ótíma­bundið leyfi frá störfum á grund­velli ákvæðis sveit­ar­stjórn­ar­laga sem geri ráð fyrir fjar­veru í að minnsta kosti einn mánuð vegna for­falla. Var til­kynnt um for­föll Guð­laugar þann 14. mars en hún tók sæti sitt aftur í sveit­ar­stjórn­inni á fundi hennar í gær. Vilja þau Borg­hildur og Pétur meina að þar sem hún hafi verið styttri tíma en einn mánuð frá störfum stang­ist það á við laga­á­kvæðið.

Síðara umkvört­un­ar­efni þeirra í erind­inu lýtur að kjör­gengi Einars Birkis Ein­ars­sonar. Þar vísa þau til þess að Einar sé með lög­heim­ili í Hafn­ar­firði á heim­ili systur sinnar. hann hins vegar búi í Kópavogi ásamt sam­býl­is­konu sinni. Í lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórnar segir að kjör­gengur sé sá sem meðal ann­ars á kosn­inga­rétt í sveit­ar­fé­lag­inu en þar er gerður áskiln­aður um lög­heim­ili í sveit­ar­fé­lag­inu. Vilja þau að ráðu­neytið afli upp­lýs­inga frá Einari um búsetu hans svo unnt sé að stað­festa hvort hann njóti enn kjör­gengis eða hvort leysa beri hann frá störfum sökum missi þess.

Hitafundur í gær

Málið á sér nokkuð skraut­legan aðdrag­anda en Guðlaug og Einar Birkir sögðu sig nýlega úr Bjartri fram­tíð en þau hafa starfað í meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þau munu starfa út kjör­tíma­bilið sem óháðr bæj­ar­full­trúar. Ástæða úrsagn­ar­innar var sögð vera sam­starfsörð­ug­leikar.

Í gær ákvað meiri­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar síðan á hita­fundi að víkja Borg­hildi og Pétri úr nefndum og ráðum á vegum bæj­ar­ins, sem þau hafa setið í fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar, og aðrir settir inn í stað­inn. Guðlaug lagði þetta til á bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum í gær, en hún er for­seti bæj­ar­stjórnar.

Borg­hildur og Pétur hafa setið í skipu­lags- og bygg­ing­ar­ráði fyrir flokk­inn sem og hafn­ar­stjórn en þar var Pétur vara­maður.

Í frétt Fjarð­ar­frétta af bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum í gær kom fram að svo mik­ill hiti hafi verið á fund­inum að óskað hafi verið eftir fund­ar­hléi þar sem gestum var vísað út. Í hléinu barst síðan mik­ill hávaði frá salnum og ljóst að bæj­ar­full­trúar öskr­uðu hvor á annan.

Tillagan um til­færslur þessar í nefndum og ráðum voru sam­þykktar eftir hléið, en full­trúar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna sátu hjá.

Formaðurinn stígur inn

Björt Ólafs­dóttir for­maður Bjartrar fram­tíðar skrif­aði á stjórn­ar­síðu flokks­ins í dag að henni þykir atburða­rásin bæði dap­ur­leg og skringi­leg.

„Því er ekki að neita að það er mér þung­bært að hafa eftir þessa atburða­rás. Hún er ekki sú sem ég hefði óskað fyrir Bjarta Framtíð. Þetta eru ekki þau stjórn­mál sem við viljum kenna okkur við. Það eru hins­vegar fram­boð, ýmist í burð­ar­liðnum, eða komin fram sem eru okkar, eða okkar fólk er partur af sam­eig­in­legum eða óháðum listum. Eftir allt sem á undan er gengið er ljóst að fram­boð í Hafna­firði er í upp­lausn. Þar er fólk þreytt eftir átök og rugl­ing og þau sem skip­uðu sæti á sam­eig­in­legum lista Bjartrar Fram­tíðar og Við­reisnar hafa dregið sig í hlé með miklum trega og eft­ir­sjá,“ segir Björt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár