Strengur nú kominn með yfir 45 prósent í Skeljungi

Stærsti eigandi Skeljungs varð enn stærri eftir að hafa keypt 90 milljón hluti í félaginu. Nú á hópurinn yfir 45 prósent eignar­hlut í félaginu, en hann var með rúm 38 prósent fyrr í vikunni.

Fjárfesta­hópurinn Strengur, sem náði ekki að taka yfir Skeljung með yfirtöku­tilboði sem rann út á mánudaginn, hefur nú aukið eignar­hlut sinn í félaginu. Eignar­hlutur Strengs í Skeljungi nemur nú rúmlega 45 prósentum.

Kjarninn hefur áður greint frá yfirtöku­tilboði Strengs, en þar bauðst hópurinn til að kaupa alla útistandandi hluti félagsins á 8,3 krónum á hlut. Einungis rúmlega tvö prósent hluthafa þáðu tilboðið, en með því stækkaði eignar­hlutur hópsins úr 38 prósentum í 41,6 prósent, eftir að leiðrétt hefur verið fyrir eigin hlutum.

Til viðbótar við kaup á hlutum þeirra sem þáðu yfirtöku­tilboðið bætti Strengur við sig rúmlega 90 milljón hlutum í gær, samkvæmt tilkynningu frá Fjármála­eftirlitinu. Þar af keypti hópurinn 40 milljón hluti á 8,75 krónum á hlut og rúmlega 50 milljón hluti á 9,67 krónum á hlut. Miðað við kaupgengi Skeljungs í dag, sem er 9,91 krónur á hlut, voru 50 milljón hlutir því keyptir á 2 prósenta afslætti og 40 milljón hlutir keyptir á 12 prósenta afslætti.

Stærstu eigendur Skeljungs að Strengi undan­skildum eru lífeyris­sjóðirnir Gildi, Stapi, Birta, Festa, Lífsverk og Frjálsi, en saman eiga þeir um 37 prósent atkvæða í félaginu. Enginn lífeyris­sjóðanna þáði yfirtöku­tilboðið, en samkvæmt tals­mönnum flestra þeirra var megin­ástæða höfnunarinnar sú að tilboðs­verðið hafi verið of lágt, auk þess sem margir þeirra sögðust einnig vera mótfallnir yfir­lýstum áformum Strengs um að skrá félagið af hlutabréfa­markaði í Kaup­höllinni.

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar­formaður Strengs, virtist þó túlka höfnun á kaup­tilboði fjárfesta­hópsins sem merki um að aðrir eigendur deildu sýn fjárfesta­hópsins á framtíðar­rekstur félagsins. Framkvæmda­stjórar lífeyris­sjóðanna þvertaka þó fyrir það og segja kaup­tilboðið einfald­lega hafa verið of lágt, samkvæmt frétt sem birtist í Viðskipta­blaðinu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár