Tíu fjárfestar vilja eignast Skeljung

Ingibjörg Pálma­dóttir, ásamt eigendum Re-Max á Íslandi, hjónunum Sigurði Bollasyni og Nönnu Björk Ásgríms­dóttur og fimm breskum fjár­festum, yrðu eigendur Skeljungs ef nýtt yfirtöku­tilboð þeirra verður samþykkt.

Þrjú eignarhalds­félög, sem samtals eiga 36 prósenta hlut í Skeljungi hf., gerðu tilboð um að kaupa upp allt hlutafé félagsins í morgun. Að baki þessara þriggja félaga eru tíu virkir fjárfesta, enn fimm þeirra eru erlendir. Ingibjörg Pálma­dóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar stjórnar­formanns félagsins, myndi ein eiga rúmlega þriðjung af félaginu, verði tilboðið samþykkt.

Tilkynningin um yfirtöku­tilboðið barst á vef Kaup­hallarinnar í morgun. Þar segir að hlutur þriggja félaga sem eiga nú Skeljung muni verða sameinað í eignarhalds­félagið Strengur ehf.

Þessi þrjú félög eru 365 hf., RES 9 ehf, og RPF ehf. Með sameiningunni á einn lögaðili 36 prósenta hlut í olíu­fyrirtækinu, en þá þarf lögum samkvæmt að gera tilboð í yfirtöku á öllu félaginu.

Ef af yfir­tökunni yrði myndi eignar­hlutur félags Ingibjargar, 365 hf., verða 38 prósent, á meðan félagið RES 9 ehf. myndi eiga 38 prósent og RPF ehf. myndi eiga 24 prósent.

Hjón í Panamaskjölum og breskir fjárfestar

Félagið RES 9 ehf. er að hluta til í eigu Sigurðar Bolla­sonar fjár­festis og eiginkonu hans, Nönnu Bjarkar Ásgríms­dóttur. Sigurður var meðal umsvifamestu Íslendinganna í Panama­skjölunum, en samkvæmt umfjöllun Stundarinnar var hann, ásamt viðskipta­félaga sínum Magnúsi Ármanni, tengdur 20 skúffu­félögum í Panama.

RES 9 er einnig í eigu félagsins No. 9 Investments Ltd, sem er skráð í Bretlandi. Helstu eigendur þess félags eru Bretarnir Stefan John Cassar, John Mccarthy, Hanna Maura Mccarthy-Bridges, Sean John Mccarthy og Ray Flannery.

Seldu hlut í Kviku til hjónanna

Félagið RPF ehf. er svo í eigu viðskipta­félaganna Þórarins Arnars Sævars­sonar og Gunnars Sverris Harðar­sonar, sem báðir eru eigendur Re-Max á Íslandi, auk þess sem Þórarinn er stjórnar­maður í Skeljungi. Félagarnir voru með stærstu hluthöfum Kviku banka, með allt að níu prósenta eignar­hlut. Samkvæmt Viðskipta­blaðinu seldu þeir þó mestallan hlut sinn í bankanum í síðasta mánuði til hjónanna Sigurðar og Nönnu Bjarkar.

Vaxandi ítök í félaginu

Kjarninn hefur áður fjallað um vaxandi ítök Ingibjargar Pálma­dóttur í Skeljungi, en hún keypti fyrst hlut í félaginu eftir að hafa minnkað hlut sinn í Högum í fyrra. Eigin­maður hennar, Jón Ásgeir Jóhannesson, settist í kjölfarið í stjórn félagsins þegar Ingibjörg átti rúmlega 4 prósent í fyrir­tækinu og varð svo stjórnar­formaður eftir að hún var búin að eignast meira en tíu prósenta hlut.

Hjónin komu einnig fyrir í Panama­skjölunum, þar sem þau voru prókúru­hafar félags sem var í eigu Ingibjargar og fjár­magnaði rekstur annarra félaga sem tengd voru Jóni Ásgeiri með einhverjum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár