Mynd: Mannlíf

Nýtt Ísland og nýjar valdablokkir

Á Íslandi er að finna ansi kröft­ugar fjár­fest­inga­blokkir einka­fjár­festa sem hafa verið að láta á sér kræla í fjár­fest­ingum í atvinnu­líf­inu. Og hafa getu til að gera enn meira.

Á árunum 2012 til 2018 átti sér stað mesta efna­hags­lega upp­sveifla í Íslands­sög­unni. Hún var að grunni til sköpuð með fjár­magns­höftum. Gjald­eyrir flæddi inn í landið, ekki síst frá erlendum ferða­mönnum, en lítið sem ekk­ert úr land­inu á sama tíma vegna hafta.

Pen­ing­arnir sem voru fastir innan hafta voru að uppi­stöðu í eigu líf­eyr­is­sjóða, fag­fjár­festa á borð við trygg­inga­fé­laga og erlendra aðila sem höfðu annað hvort verið festir inni með hafta­upp­setn­ingu eða valið að fjár­festa í kröfum á fallin íslensk fyr­ir­tæki og banka með von um óða­hagnað. Fjár­munir þess­ara aðila flæddu því inn í íslenskar fjár­fest­ingar.

Þegar höft­unum var lyft, sem gerð­ist að stærstu leyti vorið 2017, gátu fag­fjár­fest­arnir farið með fjár­muni sína í ann­ars­konar fjár­fest­ingar. Það hafa þeir margir hverjir gert. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa verið að taka fjár­muni úr virkri stýr­ingu hjá verð­bréfa­sjóðum til að fjár­festa meira erlendis og erlendu fjár­fest­inga­sjóð­irnir hafa minnkað nær allar stöður sínar nema í Marel og Arion banka. Lítill sem eng­inn áhugi virð­ist vera erlendis frá á mik­illi fjár­fest­ingu hér­lendis, eins og sást ljós­lega þegar bindi­skylda var lækkuð niður í núll fyrr á þessu ári, aðgerð sem var til þess fall­inn að reyna að örva erlenda fjár­fest­ingu. Síðan að það var gert hefur erlend fjár­fest­ing verið minni en hún var á sama tíma í fyrra. Þetta er hið nýja Ísland.

Eftir stendur mark­aður sem þarf þá virki­lega á nýju blóði að halda en virð­ist í erf­ið­leikum með að trekkja að nýja fjár­fest­ingu. Hér inn­an­lands er hins vegar að finna ansi kröft­ugar fjár­fest­inga­blokkir einka­fjár­festa sem hafa verið að láta á sér kræla í fjár­fest­ingum í atvinnu­líf­inu. Og hafa getu til að gera enn meira.

Stærstu leikendurnir í íslensku viðskiptalífi:

Stoðir

Umsvifa­mesti einka­fjár­festir­inn á hluta­bréfa­mark­aðnum í dag er gam­al­kunnur: Stoðir. Félagið hét áður FL Group og var meðal ann­ars stærsti eig­andi Glitnis banka fyrir hrun.

Félagið fór í greiðslu­stöðvun þegar sá banki fór á haus­inn og kröfu­hafar þess tóku það yfir. Vorið 2017 keyptu svo félög, í eigu stórra hlut­hafa í TM sem voru margir hverjir lyk­il­­menn í FL Group á árunum fyrir hrun, ráð­andi hlut í Stoð­u­m.

Þá áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­lenska drykkj­­ar­vöru­fram­­leið­and­­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­tökutil­boð og eftir sátu um 18 millj­arðar króna í Stoð­um. Þeir fjár­munir hafa verið not­aðir í fjár­fest­ingar á und­an­förnum miss­er­um.

Eigið fé Stoða var 23,2 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Hlut­hafar Stoða eru 54 tals­ins. Stærstu hlut­haf­arnir eru S121 ehf. (64,5 pró­sent), Lands­bank­inn og sjóðir í stýr­ingu Stefnis, sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka.

Stærstu end­an­legu eig­endur S121 hafa margir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örvari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, líka stóran hlut.

Auk þess á eig­in­kona Jóns Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/Stoða og núver­andi stjórn­ar­for­manns Stoða, og fjöl­skylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórn­inni sitja Sig­­ur­jón Páls­­son og Örvar Kjærne­sted. Fram­­kvæmda­­stjóri félags­­ins er Júl­­íus Þor­finns­­son.

Helstu eignir Stoða eru 4,96 pró­sent hlutur í Arion banka, 14,05 pró­sent hlutur í Símanum og 9,97 pró­sent hlutur í trygg­inga­fé­lag­inu TM. Stoðir eru stærsti ein­staki eig­and­inn í bæði Símanum og TM, og langstærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í Arion banka. Örvar og Einar Örn sitja báðir í stjórn TM, og Jón Sig­urðs­son sæk­ist nú hart eftir því að kom­ast í stjórn Símans.

Samherji

Sjáv­ar­út­vegs­ris­inn er þekkt­astur fyrir umfang sitt í þeim geira, enda stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins. Samherja-sam­stæðan á alls 7,1 pró­sent af úthlut­uðum kvóta hér­lendis beint. Síld­ar­vinnslan heldur svo á 5,3 pró­sent allra afla­heim­ilda, en hún er í 44,6 pró­sent eigu Sam­herja auk þess sem Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

Berg­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Þá er ótalið Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, sem heldur á 1,3 pró­sent kvót­ans, og er að öllu leyti í eigu Sam­herja. Sam­an­lagt er afla­hlut­deild þess­ara félaga 16 pró­sent. Auk þess á Samherji vit­an­lega umfangs­mikla sjáv­ar­út­vegs­starf­semi í Evrópu og Afríku.

Samherja-sam­stæðan ,sem sam­anstendur af tveimur félögum, átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok síð­asta árs og því í mjög góðri stöðu til að láta líka vel til sín taka á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði þegar tæki­færi opn­ast. Það hefur hún gert nokkrum sinnum nú þegar.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.
Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Sam­herji hf. keypti stóran hlut í Olís fyrir nokkrum árum. Það félag rann síðan saman við smá­söluris­ann Haga og í kjöl­farið eign­að­ist Samherji alls 9,26 pró­sent hlut í Högum. Í síð­ustu viku var greint frá því að Samherji hefði selt helm­ing hluta­bréfa sinna í Högum og að eftir við­skiptin standi eign­ar­hlutur sam­stæð­unnar í 4,22 pró­sentum.

Sam­herji Holding er líka stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­skip, með 27,1 pró­­sent eign­­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­steins­­­son, fram­­kvæmda­­stjóri við­­skipta­­þró­unar hjá sam­stæð­unni, er stjórn­­­ar­­for­­maður Eim­­skips og í jan­úar í ár var Vil­helm Már Þor­­steins­­son, frændi hans, ráð­inn sem for­­stjóri skipa­­fé­lags­ins.

Helstu eig­endur og stjórn­endur Sam­herja eru frænd­­­­urn­ir, for­­­­stjór­inn Þor­­­­steinn Már Bald­vins­­­­son og útgerð­­­­ar­­­­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­­­­son. Þeir eiga sam­tals 65,4 pró­sent í sam­stæð­unni. Helga S. Guð­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins Más, á 21,3 pró­sent.

Auk þess er SVN eigna­fé­lag, félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar, lang stærsti einka­fjár­festir­inn í Sjóvá með 13,97 pró­sent hlut. Samherji á 44,6 pró­sent í eigu Samherja auk þess sem Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Þá er Samherji líka stór eig­andi í Jarð­bor­unum í gegnum Kaldbak ehf.

Kaupfélag Skagfirðinga

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sam­vinnu­fé­lag með um 1.600 félags­menn, er risa­fyr­ir­tæki á íslenskan mæli­kvarða. Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri, hefur leitt félagið um ára­bil sem for­stjóri og var afkoma félags­ins á árinu 2018 sú besta í 130 ára sögu félags­ins. Upp­bygg­ing kaup­fé­lags­ins hefur verið veru­lega umfangs­mikil á und­an­förnum árum, en í lok árs í fyrra var eigið fé félags­ins rúm­lega 35 millj­arðar og heild­ar­eignir námu 62,3 millj­örðum króna.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­sent heild­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­sent í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum sem er með fimm pró­sent heild­ar­afla­hlut­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­ías Cecils­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­ar­kvóti þess­ara þriggja ótengdu aðila 10,6 pró­sent.

Kaup­fé­lagið hefur tekið þátt á skráðum hluta­bréfa­mark­aði, meðal ann­ars með því að eiga um tíma hlut í bæði Högum og Brim. Þá á Kaup­fé­lag Skag­firð­inga 20 pró­sent hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Útgerðarfélag Reykjavíkur

Brim er eina félagið sem skráð er í Kauphöll sem á kvóta. Alls fer það með 10,4 pró­sent af öllum kvóta sem úthlutað hefur verið. Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á allt að 56 pró­sent hlut í því félagi. Það félag var 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn með 3,9 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík með 1,3 pró­sent afla­hlut­deild. Stærstu ein­stöku eig­endur þess eru Guð­mundur Krist­jáns­son, aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og for­stjóri Brims, og tvö systk­ini hans með sam­an­lagðan 36,66 pró­sent end­an­legan eign­ar­hlut.

Sam­an­lagður kvóti þess­ara þriggja félaga var því 15,6 pró­sent í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Útgerð­ar­fé­lagið hefur ein­beitt sér að fjár­fest­ingum innan síns geira og á líka 1,96 pró­sent hlut í Iceland Seafood, sem var skráð á markað fyrir nokkrum vikum.

Guðmundur Kristjánsson í Brimi.
Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi.

Eignir Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur voru metnar á 59,7 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót og eigið fé þess 27,3 millj­arðar króna.

Eyrir Invest

Eigið fé var 366 millj­ónir evrur um síð­ustu ára­mót. Á gengi dags­ins í dag er það 50,4 millj­arðar króna í íslenskum krónum. Langstærsta eign félags­ins er Marel, en Eyrir Invest á 24,69 pró­sent hlut í því langstærsta félagi í íslensku Kaup­höll­inni. Marel var líka skráð í Kaup­höll­inni í Amster­dam fyrr á þessu ári. Bréf í Marel hafa hækkað um 59 pró­sent á þessu ári og mark­aðsvirði félags­ins er nú 453 millj­arðar króna. Miðað við það er eign­ar­hlutur Eyris Invest í Marel 111,8 millj­arða króna virði. Eign Eyris Invest var metin á 72,6 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel.
Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Marel.

Stærstu eig­endur Eyris Invest um síð­ustu ára­mót voru feðgarnir Þórður Magn­ús­son (20.6 pró­sent) og Árni Oddur Þórð­ar­son (17,9 pró­sent), en Árni Oddur er einnig for­stjóri Marel.

Hvalur ehf.

Hinn 18. apríl var til­kynnt um það að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefði keypt rúm­lega þriðj­ungs­hlut í HB Granda af félög­unum Vogun hf. og Fisk­veiði­fé­lag­inu Venusi fyrir 21,7 millj­arða króna, en við­skiptin voru form­lega frá­gengin í byrjun maí. Hvalur hf. er eig­andi Vogunar en Venus á 43 pró­sent hlut í Hval hf. Eigendur Venusar eru Kristján Loftsson og Birna Lofts­dóttir.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Hvals fyrir árið 2018 var eigið fé þess 26,5 millj­arðar króna í lok þess árs. Hvalur er meðal ann­ars stærsti ein­staki eig­andi Origo (11 pró­sent) og á 1,45 pró­sent hlut í Arion banka. Þá keypti Hvalur fyrir einn millj­arð króna í Marel í byrjun árs, en sú fjár­fest­ing hefur marg­borgað sig. Auk þess er Hvalur langstærsti hlut­haf­inn í Hamp­iðj­unni.

Kristján Loftsson. Mynd: Úr safni
Kristján Loftsson. Mynd: Úr safni

Hvalur hf. rekur líka hval­­stöð­ina í Hval­­firði, gerir út hval­veið­i­­­skip og vinnur afurð­irn­­ar. Sá hluti starf­sem­innar hefur skilað miklu tapi árum saman.

Aðrir stórir leikendur

Töluvert hefur farið fyrir hópnum sem ráðið hefur í trygg­inga­fé­lag­inu VÍS á und­an­förnum árum. Þar er um að ræða hjónin Svan­hildi Nönnu Vig­fús­dóttur og Guðmund Örn Þórð­ar­son, sem eiga 7,25 pró­sent hlut í VÍS, 6,93 pró­sent í Kviku banka og hlut í Korta­þjón­ust­unni í gegnum félag sitt K2B ehf. Innan VÍS hafa þau myndað blokk með nokkrum öðrum einka­fjár­festum, meðal ann­ars Óska­beins­hópnum, sem á 2,48 pró­sent í VÍS, og er í eigu Gests Breið­fjörð Gests­son­ar, Sig­urðar Gísla Björns­son­ar, Andra Gunn­ars­sonar og Fann­ars Ólafs­son­ar.

Brim­garðar, félag í eigu systk­in­anna Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu, Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gísla­barna, er nokkuð umfangs­mikið í skráðum eignum, sér­stak­lega í fast­eigna­fé­lögum. Það á í Eik (6,9 pró­sent), Reitum (2,1 pró­sent), í Reginn (2,73 pró­sent) og Heima­völlum (3,01 pró­sent). Brim­garðar hafa líka átt hlut í Icelandair. Eigið fé Brim­garða nam 2.959 millj­ónum króna í lok síð­asta árs en á sama tíma átti félagið eignir upp á 10.998 millj­ónir króna.

Snæból er fjár­fest­inga­fé­lag í jafnri eigu hjón­anna Finns Reyrs Stef­áns­sonar og Stein­unnar Jóns­dóttur. Það á stóran hlut í Sjóvá (8,64 pró­sent), í Heima­völlum (7,47 pró­sent) auk þess sem það á þrjú pró­sent hlut í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel. Alls átti Snæból um tíu millj­arða króna í eigin fé um síð­ustu ára­mót.

Félagið Stormtré er að stærstu leyti í eigu Hregg­viðs Jóns­sonar. Það er aðal­eig­andi Veritas Capital sem á meðal ann­ars Vistor, sem flytur inn til Íslands lyf og aðrar tengdar vörur. Auk þess á Stormtré 2,5 pró­sent hlut í smá­sölu­fé­lag­inu Festi.

Eigið fé Storm­trés var 6,8 millj­arðar króna í lok síð­asta árs.

Stálskip var stofnað sem útvegs­fyr­ir­tæki árið 1970 en seldi frysti­togar­ann sinn og allan kvóta árið 2014. Í kjöl­farið var því breytt í fjár­fest­inga­fé­lag, en það er í eigu hjón­anna Guðrúnar Lár­us­dóttur og Ágústs Sig­urðs­sonar og þriggja barna þeirra. Guðrún er fram­kvæmda­stjóri, en hún er 86 ára gömul. Á meðal fjár­fest­inga Stál­skipa má nefna 8,59 pró­sent hlut í Heima­völlum en alls voru eignir félags­ins metnar á 11,9 millj­arða króna í lok síð­asta árs. Þar af voru verð­bréf sem metin voru á 3,1 millj­arð króna en uppi­staðan, 6,3 millj­arðar króna, voru geymdar á banka­bók.

Guðrún Lárusdóttir.
Guðrún Lár­us­dóttir.

Þá verður að telja til félagið 365 ehf., sem er að eiga end­ur­komu í heim hluta­bréfa­fjár­fest­inga, fyrst með kaupum í Högum og svo í Skelj­ungi eftir að það los­aði sig út úr fjöl­miðla­rekstri eftir 16 ár í slíkum. Eigandi þess er Ingi­björg Pálma­dóttir og eig­in­maður hennar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sett­ist nýverið í stjórn Skelj­ungs þar sem 365 á 4,32 pró­sent hlut.

365 seldi fjöl­miðla sína til tveggja aðila. Annars vegar til fjar­skipta­fé­lags­ins Sýnar, þar sem Heiðar Guð­jóns­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður og núver­andi for­stjóri, er stærsti ein­stak­lings­hlut­haf­inn í gegnum Ursus (9,2 pró­sent). Heiðar á líka stóran hlut í HS Veitum. Sýn keypti ljós­vaka­miðla 365 og vef­inn Vísi.is.

Hinn aðil­inn sem keypti fjöl­miðla af 365 var Helgi Magn­ús­son, sem á nú Frétta­blaðið og tengda miðla að öllu leyti. Hann hefur verið mjög umsvifa­mik­ill í íslensku athafna­lífi á und­an­förnum árum í gegnum félögin Hofgarða, Varðberg og Eign­ar­halds­fé­lagið Hörpu, sem hann á með öðrum. Hann hefur til að mynda átt hluti í Bláa lón­inu, þar sem hann er stjórn­ar­for­maður, og hefur lengi átt vænan hlut í Marel, en hann hefur verið að selja sig niður þar und­an­farið. Helgi hefur fjár­fest í Iceland Seafood, Stoðum og Kviku banka á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár