Enginn af stærstu eigendum Skeljungs samþykkti tilboðið

Sex lífeyris­sjóðir, sem eiga samtals rúmlega 37 prósent allra eignar­hluta í Skeljungi, höfnuðu allir yfirtöku­tilboði fjárfesta í félaginu í dag.

Lífeyris­sjóðirnir Frjálsi, Birta Festa, Stapi og Lífsverk hafa, ásamt Gildi, ákveðið að hafna yfirtöku­tilboði fjárfesta­hópsins Strengs ehf. á Skeljungi. Helsta ástæða lífeyris­sjóðanna var sú að tilboðs­verðið var of lágt miðað við eigið mat á virði félagsins.

Kjarninn hefur áður greint frá yfirtöku­tilboði Strengs í nóvember síðastliðnum, en að því félagi kemur Ingibjörg Pálma­dóttir, ásamt eigendum Re-Max á Íslandi, hjónunum Sigurði Bollasyni og Nönnu Björk Ásgríms­dóttur og fimm breskum fjár­festum. Tilboðs­frestur Strengs rann út kl. 16:00 í dag. 

Strengur bauðst til þess að kaupa alla útistandandi hluti félagsins á 8,315 krónur á hlut, sem var 6,6 prósentum yfir gengi félagsins í byrjun nóvember­mánaðar. Þessa stundina kostar hver hlutur í Skeljungi hins vegar 9,03 krónur og gætu því hluthafar fengið meira fyrir sína hluti í Kaup­höllinni en Strengur er tilbúinn að borga.

Fyrir tveimur vikum síðan greindi Frétta­blaðið frá því að lífeyris­sjóðurinn Gildi, sem er stærsti hluthafi Skeljungs að Strengi undan­skildum, ætlaði sér að hafna yfirtöku­tilboðinu, sökum þess hversu lágt yfir­tökugengið væri miðað við eigið mat á virði félagsins. Á þeim tíma stóð hlutabréfa­verð Skeljungs í 8,65 krónum á hlut. Árni Guðmundsson, framkvæmda­stjóri sjóðsins, sagði hann einnig leggjast gegn yfir­lýstum áformum Strengs um að skrá Skeljung af markaði.

Í samtali við Kjarnann fyrr í dag stað­festir Jón L Árnason, framkvæmda­stjóri Lífsverks, einnig að sjóðurinn ætlaði sér að hafna tilboðinu vegna lágs verðs á yfirtöku­tilboðinu og áforma Strengs um að afskrá félagið.

Eftir að tilboðs­frestinum lauk staðfestu lífeyris­sjóðirnir Birta, Festa og Frjálsi svo að þeir hefðu hafnað tilboðinu sömuleiðis. Í samtali við Kjarnann sagði Soffía Gunnars­dóttir, forstöðu­maður eigna­stýringar hjá Birtu, að sjóðurinn hafi verið með verðmats­greiningar á félaginu til grund­vallar, en niður­stöður þeirra bentu til þess að félagið væri verð­mætara en það sem yfirtöku­tilboðið hljóðaði upp á. Sama hljóð var í Gylfa Jónassyni, framkvæmda­stjóri Festu, sem staðfesti að sjóðurinn hafi ekki heldur tekið tilboðinu.

Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðu­maður eigna­stýringar hjá Arion banka, stað­festir einnig að Frjálsi lífeyris­sjóðurinn hafi hafnað yfirtöku­tilboði Strengs þar sem tilboðs­verðið hafi ekki verið nægilega hátt. Þó segir Hjörleifur Arnar að sjóðurinn sé jákvæður gagnvart fjárfesta­hópnum að baki Strengi, en bætir hins vegar við að Frjálsi myndi frekar kjósa að hafa Skeljung skráðan á hlutabréfa­markaði heldur en ekki. Arion banki var einn af tveimur umsjónar­aðilum með tilboði Strengs.

Samtals eiga Gildi, Festa, Birta, Frjálsi og Lífsverk 34 prósent af Skeljungi samkvæmt hluthafa­skrá félagsins, en sjóðirnir eru stærstu hluthafar félagsins ef eignarhalds­félögin Strengur og Strengur Holding eru undan­skilin.

Uppfært kl. 17: 51: Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmda­stjóri Stapa lífeyris­sjóðs, sem á 3,38 prósenta hlut í Skeljungi, staðfesti einnig að sjóðurinn hafi ekki tekið tilboði Strengs þar sem tilboðið var talið vera of lágt miðað við virði félagsins. Einnig taldi sjóðurinn það æskilegt að félag á borð við Skeljung eigi að vera skráð á hlutabréfa­markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár