Rúmlega tvö prósent hluthafa tóku yfirtökutilboði í Skeljungi

Jón Ásgeir Jóhannesson, sem fer fyrir fjárfesta­hópnum Strengi, þakkar hluthöfum sem ekki tóku yfirtöku­tilboði hópsins á Skeljungi fyrir traustið sem þeir sýna honum á framtíð fyrir­tækisins.

Einungis 2,56 prósent hluthafa Skeljungs tóku yfirtöku­tilboði fjárfesta­hópsins Strengs sem lauk í gær. Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnar­formaður Strengs hf. og Skeljungs hf. segist þakka núverandi hluthöfum sem tóku ekki tilboðinu fyrir traustið sem þeir sýna fjárfesta­hópnum fyrir framtíðar­rekstri Skeljungs.

Þetta kemur fram í tilkynningu á Kaup­höllinni sem kom út í dag. Samkvæmt henni fór Strengur hf. og tengdir aðilar með 38 prósent atkvæða fyrir yfirtöku­tilboðið og hefur hlutur þeirra nú stækkað í 41,6 prósent eftir að leiðrétt hefur verið fyrir eigin hlutum.

Kjarninn greindi frá því í gær að lífeyris­sjóðirnir, Gildi, Stapi, Birta, Festa, Lífsverk og Frjálsi, sem eru stærstu eigendur Skeljungs að Strengi undan­skildum, hafi allir hafnað yfirtöku­tilboði hópsins. Samkvæmt tals­mönnum flestra sjóðanna var megin­ástæða höfnunarinnar sú að tilboðs­verðið hafi verið of lágt, en margir þeirra sögðust einnig vera mótfallnir yfir­lýstum áformum Strengs um að skrá félagið af hlutabréfa­markaði á Kaup­höllinni.

Í tilkynningunni sem birtist í Kaup­höllinni virðist Jón Ásgeir hins vegar túlka það svo að þeir sem ekki tóku tilboðinu deili sýn fjárfesta­hópsins á framtíðar­rekstur fyrir­tækisins. „Með tilboðinu fengu þeir hluthafar sem ekki deildu þeirri sýn tækifæri til að selja bréf sín með álagi m.v. síðasta viðskiptadag fyrir gerð tilboðsins,” er haft eftir honum í tilkynningunni.

„Strengur þakkar öðrum hluthöfum það traust og þá trú sem þeir hafa á þeirri vegferð sem kynnt hefur verið. Strengur mun í krafti atkvæða sinna fylgja eftir þeirri sýn, öllum hluthöfum Skeljungs til hagsbóta," bætir Jón Ásgeir við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár