Sjónarmið ráðherra á skjön við lögskýringargögn og mat Hæstaréttar

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra fullyrti að dómnefnd sem metur hæfni umsækjenda um embætti héraðs­dómara hefði „ekkert með sjálf­stæði dómstóla að gera“.

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra lítur svo á að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómara­embætti og störf hennar hafi ekkert með sjálf­stæði dómstóla að gera. 

„Sjálf­stæði dómstól­anna varðar ekki vinnu nefndarinnar. Þessi nefnd er sjálfstæð stjórn­sýslunefnd og hún hefur ekkert með sjálf­stæði dómstóla að gera. Sjálf­stæði dómstól­anna er tryggt með öðrum hætti, eins og í stjórnar­skrá með því t.d. að það er ekki hægt að víkja dómurum frá störfum, ráðherrar getur ekki veitt nein fyrirmæli til dómara og dómarar eiga bara að dæma eftir lögunum. Þannig er sjálf­stæði dómara tryggt,“ sagði ráðherra í Kastljósi í gærkvöldi.

Sjónar­miðin sem Sigríður lýsti ríma illa við álit Héraðs­dóms Reykja­víkur og Hæstaréttar Íslands sem fram koma meðal annars í nýlegum dómum um lögbrot dómsmála­ráðherra og Alþingis við skipun dómara við Landsrétt. Þá hafði verið gengið framhjá mati dómnefndar og einstaklingar skipaðir við dómstólinn með ólögmætum hætti, án fullnægjandi rann­sóknar í samræmi við ákvæði 10. gr. stjórnsýslu­laga.

Í dómi Héraðs­dóms Reykja­víkur sem kveðinn var upp þann 15. september 2017 er bent á að löggjöf um tilvist og störf dómnefnda til að meta hæfni umsækjanda um dómara­embætti hafi, allt frá því að ákvæði um slíkar dómnefndir voru fyrst lögfest árið 1989, helgast af því markmiði að „styrkja sjálf­stæði dómstól­anna og auka traust almennings á því að dómarar séu óháðir handhöfum framkvæmdar­valdsins“. 

Að sama skapi benti Hæstiréttur Íslands á, þann 19. desember 2017, að reglur um dómnefnd til að meta hæfni umsækjenda um dómara­stöður eiga rætur að rekja til laga­setningar sem hafði að markmiði að „styrkja sjálf­stæði dómstóla og auka traust almennings á því að dómarar væru óháðir handhöfum framkvæmda­valds“.

Loks má nefna að í greinar­gerð sem fylgir frumvarpi Rögnu Árna­dóttur, fyrr­verandi dómsmála- og mann­réttinda­ráðherra, til laga um breytingar á dómstóla­lögum sem samþykkt voru á Alþingi þann 19. maí 2010 og fólu í sér breytta skipun dómnefndar og aukið vægi hennar, er lögð sérstök áhersla á að „styrkja [þurfi] stöðu og sjálf­stæði dómstól­anna og tryggja sem best að þeir verði óháðir hinum tveimur þáttum ríkis­valdsins sem þeir hafa eftirlit með“. 

Í viðtalinu í Kastljósi var rætt um aðdrag­anda og skipun dómara við Landsrétt. Áréttaði Sigríður Andersen að hún væri ósammála þeirri niður­stöðu Hæstaréttar að hún hefði brotið stjórnsýslulög með því að víkja frá mati dómnefndar og skipa dómara án fullnægjandi rann­sóknar. „Að mínu mati gerði ég ekki annað síðasta sumar en að starfa samkvæmt gildandi lögum,“ sagði Sigríður sem þó tók fram að dómurinn hefði verið sér áfall.

Eins og Stundin fjallaði ítarlega um í gær á Guðlaugur Þór Þórðarson, settur dómsmála­ráðherra, nú í deilum við dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómara­stöður. Símon Sigvaldason, dómstjóri Héraðs­dóms Reykja­víkur, sagði í samtali við Stundina í vikunni að frekari tafir á skipun dómara gætu valdið verulegri röskun á starfsemi réttarins.

Uppfært kl. 21:30

Nokkrum klukku­stundum eftir að frétt Stundarinnar birtist steig Ingibjörg Þorsteins­dóttir, formaður Dómara­félags Íslands, fram í kvöld­fréttum RÚV og sagðist hafa hrokkið við þegar hún heyrði Sigríði halda því fram að dómnefndin hefði ekkert með sjálf­stæði dómstóla að gera, enda væri full­yrðingin kolröng. „Henni er ætlað að tryggja það að valið fari fram á faglegum forsendum og ég trúi því varla að ráðherra sé þessarar skoðunar,“ sagði Ingibjörg sem jafnframt gagnrýndi framgöngu Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar setts dómsmála­ráðherra gagnvart dómnefndinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár