Benedikt segir ráðherra ekki hafa áhuga á aukinni þróunaraðstoð

Framkvæmda­stjóri SOS barna­þorpanna segir stefnu ríkis­stjórnarinnar á sviði þróunar­aðstoðar „lýsa ákveðinni sjálfs­elsku þjóðar sem hefur nóg til alls.“ Fjármála­ráðherra kennir ótilgreindum ráðherra eða ráðherrum um að ekki sé meiri fjármunum varið til þróunar­aðstoðar en raun ber vitni.

Þróunar­aðstoð er ekki „áhugamál“ allra ráðherra í ríkis­stjórn Íslands. Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, greindi frá þessu á opnum fundi Viðreisnar í kvöld. 

Eins og Stundin hefur áður greint frá gerir fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar ráð fyrir að Ísland verði áfram undir meðaltali OECD-ríkja og langt undir meðaltali Norður­landanna hvað varðar framlög til þróunar­samvinnu sem hlutfall af vergum þjóðar­tekjum næstu fimm ári. Var fjármála­ráðherra gagn­rýndur fyrir þetta á fundi Viðreisnar í dag og spurður hvort ekki mætti gera betur. 

„Jújú, auðvitað er hægt að gera betur á þessu sviði en þá þurfum við að taka peningana einhvers staðar annars staðar og það er bara ákvörðun sem þarf að taka,“ svaraði Benedikt. „Þetta er áhugamál margra í ríkis­stjórninni að auka þetta en kannski ekki alveg allra.“

„Þetta er áhugamál margra í ríkis­stjórninni að auka þetta en kannski ekki alveg allra“

Árið 2013 náðist þver­pólitísk sátt um aukin framlög til þróunar­samvinnu á Alþingi. 39 þingmenn úr öllum flokkum samþykktu þings­ályktun þar sem mörkuð var sú stefna að árið 2019 rynnu 0,7% af vergum þjóðar­tekjum Íslendinga til þróunar­mála. Þetta eru hátt í þrefalt hærri framlög en núverandi ríkis­stjórn vill verja til mála­flokksins árið 2019 og allt til ársins 2022.

Framlög Íslendinga til þróunar­samvinnu nema 0,25% af vergum þjóðar­tekjum á þessu ári og samkvæmt áætlunin fjármála­ráðherra munu þau nema 0,26% út áætlunar­tímabil fjármála­áætlunarinnar. 

Ragnar Schram, framkvæmda­stjórir SOS Barna­þorpanna á Íslandi, skilaði fjár­laganefnd Alþingis umsögn um fjármála­áætlunina í dag. Þar harmar hann stefnu ríkis­stjórnarinnar hvað varðar framlög til þróunar­mála.

„Í ljósi þess að Ísland hefur stutt markmið Sameinuðu þjóðanna í áraraðir um að iðnríki skuli veita sem nemur 0,7% af vergum þjóðar­tekjum í þróunar­samvinnu verður að segja að umrædd markmið um 0,26% eru allt of lág og lýsa ákveðinni sjálfs­elsku þjóðar sem hefur nóg til alls,“ skrifar Ragnar.

„Lýsa ákveðinni sjálfs­elsku
þjóðar sem hefur nóg til alls“

Þá gerir hann athugasemd við þá aðferða­fræði ríkis­stjórnarinnar að setja þróunar­samvinnu annars vegar og móttöku flótta­manna og hælis­leitenda hins vegar undir sama hatt í fjármála­áætluninni. Með þessu sé verið að „klípa af þróunar­löndunum það sem þau ættu að fá samkvæmt ákvörðunum stjórn­valda“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár