Ætlar að logsjóða grilltunnu í garðinum

Þjóð­lagatón­list­ar­mað­ur­inn Snorri Helgason er mik­ill mat­gæð­ingur og mjög upp­á­tækja­samur í eld­hús­inu. Hann eldar meira að segja oftar en vinir hans sem eru mennt­aðir kokkar. Snorri telur upp fimm rétti sem skipa stóran sess í lífi hans.

Féll fyrir barbíkjúinu
Féll fyrir bar­bíkjúinu Snorri Helgason tón­list­ar­maður er mik­ill áhuga­maður um mat­ar­gerð af ýmsu tagi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kalkúnn

Kalkúnn hefur lengi verið fjöl­skyldu­réttur hjá mér og er í raun­inni fyrsti rétt­ur­inn til að verða upp­á­halds­mat­ur­inn minn. Mamma og pabbi bjuggu í Banda­ríkj­unum áður en ég fædd­ist, en þegar þau fluttu heim tóku þau með sér upp­skrift sem hefur verið afar vin­sæl á heim­il­inu. Á þeim tíma var auð­vitað ekki hægt að fá kalkún á Íslandi þannig að mamma, sem var flug­freyja, smyglaði honum alltaf til lands­ins og við eld­uðum hann síðan á gamlárs­kvöld. Núna eru pabbi og mamma flutt út til Dan­merkur, en við Heiða systir mín höldum sið­unum við og eldum kalkún­inn eftir upp­skrift for­eldra okkar á þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­inni. Það tekur alveg sex eða átta tíma að elda mat­inn, þannig að þetta er afsökun til að eyða deg­inum saman með mökum okkar og hafa það huggu­legt.

 Egg, beikon og bakaðar baunir

Þetta er önnur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Líf mitt í fimm réttum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár