Bankastjóri Alþjóðabankans varar við áhrifum aukinnar sjálfvirkni

Þjóðir heimsins þurfa að vera búin undir miklar breytingar vegna aukinnar sjálf­virkni, meðal annars með tilkomu gervi­greindar.

Jim Yong Kim, banka­stjóri Alþjóða­bankans, segir að þjóðir heimsins séu nú að ganga í gegnum lærdóms­tíma vegna aukinnar sjálf­virkni í atvinnu­háttum, sem muni leiða til þess að milljónir starfa muni hverfa, og ný störf skapast á öðrum vettvangi.

Kim segir að hætta sé á því að það geti skapast mikið ójafnvægi meðan þetta gengur yfir, og það geti leitt til erfið­leika.

Alþjóða­bankinn heldur ársfund sinn í næstu viku, en hann hyggst á næstunni gefa þessari þróun sérstak­lega gaum, og greina mannauð þjóða meðal annars með tilliti til menntunar, til að geta greint hvernig þróun mála er á vinnu­mörkuðum einstakra ríkja.

Í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC segir Kim að bankinn vilji með þessari greiningar­vinnu, koma fram með upplýsingar sem sýni hversu brýnt það sé fyrir þjóðir, að rýna í mannauð og menntun, með tilliti til þessara miklu samfélags­breytinga.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn spáir því að hagvöxtur á heimsvísu verðu um 3,5 prósent á þessu ári, og 3,6 prósent árið eftir.

Í nýlegri greiningu sjóðsins segir þó, að töluverð hætta sé á því að breytingar á hinu pólitíska sviði, í átt að meiri tollamúrum og hömlum á alþjóðleg viðskipti, geti leitt til þess að hagvöxtur minnki. Þetta geti auk þess verið hættulegt á tímum þar sem hagkerfi séu að breytast, meðal annars vegna aukinnar sjálfvirkni­væðingar í atvinnu­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár