Chelsea Manning fær frelsi

Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur ákveðið að stytta dóm uppljóstr­arans Chelsea Manning.

Chelsea Manning
Chelsea Manning Hefur verið í fang­elsi, og oft ein­angrun, frá því að upp komst að hún hefði lekið gögnum sem sýndu hvernig almennir borg­arar féllu vegna árása Banda­ríkj­anna. Mynd: United States Army

Bandaríski uppljóstrarinn Chelsea Manning verður frelsuð úr fangelsi í maí eftir ákvörðun Baracks Obama Bandaríkja­forseta, nokkrum dögum áður en hann lætur af embætti.

Þetta kom fram hjá New York Times rétt í þessu.

Manning var dæmd í 35 ára fangelsi fyrir að leka gögnum um brot bandaríska hersins gegn almennum borgurum til uppljóstrara­síðunnar Wikileaks árið 2010. Um var að ræða harðasta dóm fyrir leka trúnaðar­gagna í sögu Banda­ríkjanna. Hún hefur afplánað sjö ár af dómnum og hefur verið innilokuð í einangrun. Rannsóknar­miðillinn. Manning hefur undir­gengist pyndingar í fangelsis­vist sinni. Meðal annars var hún dæmd til 14 daga einangrunar­vistar síðasta haust vegna hegðunar sinnar í tengslum við sjálfsvígs­tilraun hennar. Hún reyndi að svipta sig lífi í annað skiptið í október í fyrra. 

Hér á síðu Wikileaks má sjá hluta af þeim uppljóstrunum sem Chelsea Manning kom á framfæri. Myndband sem sýnir árás sem kostaði meðal annars tvo frétta­menn lífið var sýnt í fréttum Sjón­varpsins 5. apríl 2010, en Kristinn Hrafnsson, sem þá var frétta­maður RÚV, ferðaðist til Bagdad til að undirbúa birtinguna.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár