Meirihlutinn segir allt verklag sitt við könnun á hæfi Kristjáns Þórs hafa verið eðlilegt

Þeir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna sem sitja í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hafa sent frá sér sam­eig­in­lega til­kynn­ingu í kjöl­far afsagnar Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur sem for­manns nefnd­ar­innar.

Líneik Anna Sævarsdóttir var framsögumaður frumkvæðisathugunarmálsins í nefndinni. Hún er ein þingmannanna sem skrifa undir yfirlýsinguna
Líneik Anna Sæv­ars­dóttir var fram­sögu­maður frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­máls­ins í nefnd­inni. Hún er ein þing­mann­anna sem skrifa undir yfir­lýs­ing­una Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, sem sam­anstendur af full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, segir að frum­kvæð­is­at­hugun nefnd­ar­innar á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í ljósi stöðu hans gagn­vart útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja, hafi að einu og öllu verið í sam­ræmi við hlut­verk nefnd­ar­innar og verk­lag allt verið eðli­legt. Allar ásak­anir um annað byggi á öðru en stað­reyndum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem meiri­hlut­inn sendi frá sér í dag. Afar óvenju­legt er að meiri­hluti nefndar sendi frá sér slíka til­kynn­ingu. Undir til­kynn­ing­una skrifa Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson frá Sjálf­stæð­is­flokki, Þórunn Egils­dóttir og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir frá Fram­sókn­ar­flokki og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé frá Vinstri grænum.

Tilefnið er afsögn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, sem for­manns nefnd­ar­innar. Hún sagði af sér for­mennsk­unni á mánu­dag og í ræðu sinni á þingi vegna þessa sagði hún að til­raunir minni­hlut­ans í nefnd­inni til að sinna því eft­ir­lits­hlut­verki sem hún á að sinna hefðu orðið „meiri­hlut­anum til­efni til vald­níðslu og linnu­lausra árása.“

Skýrasta dæmið sé hvernig staðið hafi verið í vegi fyrir því að frum­kvæð­is­at­hugun fari fram á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, vegna stöðu hans gagn­vart Sam­herja en meiri­hluti nefnd­ar­inn­ar, skip­aður stjórn­ar­þing­mönnum og þing­manni Mið­flokks­ins, lagði til að henni yrði hætt fyrir viku síð­an. „Með þessu er meiri­hlut­inn að setja hættu­legt for­dæmi, veikja eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­in­u,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Hún sagði enn fremur að meiri­hlut­inn per­sónu­gerði starf nefnd­ar­innar til að ná mark­miðum sín­um. „Til þess að rétt­læta þessa aðför sína kýs meiri­hluti nefnd­ar­innar að draga per­sónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóra­böggul. Þessi aðferð­ar­fræði; að skjóta sendi­boð­ann, er þaul­reynd þögg­un­ar- og kúg­un­ar­taktík. Ég mót­mæli þess­ari aðför, mér mis­býður þetta leik­rit og ætla ekki að taka þátt í því leng­ur. Meiri­hlut­inn verður að finna sér aðrar átyllur til þess til að rétt­læta aðför sína að eft­ir­lits­hlut­verki nefnd­ar­innar og þings­ins. For­mennsku minni í þess­ari nefnd er hér með lok­ið.“

Í fullu samræmi við þingsköp

Í til­kynn­ingu meiri­hlut­ans, sem lesa má í heild sinni hér að neðan, er máls­með­ferð á frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs rakin ítar­lega. Þar kemur fram að 15. júní síð­ast­lið­inn, sama dag og Þór­hildur Sunna sagði af sér, hefði for­seti Alþingis sent erindi þar sem fram kom að afgreiðsla nefnd­ar­innar þann 5. júní á frum­kvæð­is­at­hugun, þegar ákveðið var að láta hana niður falla, hefði verið í fullu sam­ræmi við þing­sköp. „Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hefur meðal ann­ars það hlut­verk að kanna ákvarð­anir ein­staka ráð­herra og verk­lag þeirra að eigin frum­kvæði. Þannig sé tryggt að lög­gjaf­inn hafi eft­ir­lit með fram­kvæmda­vald­inu. Þá er almenn­ingi einnig gert kleift að fylgj­ast vel með slíkum athug­unum bæði með opnum fundum þar sem ráð­herra situr fyrir svörum eða með aðgengi að fund­ar­gerðum og bók­unum um málið.

Nið­ur­staðan er svo gerð öllum ljós að lok­inni rann­sókn sem bygg­ist á gesta­komum sér­fræð­inga í mál­inu, upp­lýs­inga­beiðnum frá ráðu­neytum, opnu sam­tali við ráð­herra og öðru sem hjálpar þing­mönnum að kom­ast að upp­lýstri nið­ur­stöðu.“

Meiri­hlut­inn telur að frum­kvæð­is­at­hugun stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á hæfi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hafi að einu og öllu verið í sam­ræmi við þetta hlut­verk nefnd­ar­innar og verk­lag allt verið eðli­legt. „Allar ásak­anir um annað byggja á öðru en stað­reyndum.“

Yfir­lýs­ing meiri­hlut­ans í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár