Segir Þórhildi Sunnu hafa viljað breyta nefndinni í „pólitískan rannsóknarrétt“

Óli Björn Kárason bók­aði á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar fyrr í þessum mán­uði að þáver­andi for­maður nefnd­ar­innar, sem sagði af sér í dag, hefði það mark­mið að „nýta trún­aðar- og valda­stöðu til að koma höggi á póli­tíska mótherja.“

Óli Björn Kárason er formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Hann situr einnig í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Óli Björn Kárason er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar. Hann situr einnig í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Mynd: Bára Huld Beck


Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, lét bóka á fundi nefnd­ar­innar í síð­ustu viku, nánar til­tekið 10. júní, að löngun Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata og þá for­manns nefnd­ar­innar, til að breyta henni í póli­tískan rann­sókn­ar­rétt virt­ist vera mikil. „Mark­miðið er að nýta trún­aðar- og valda­stöðu til að koma höggi á póli­tíska mótherja. Til­gang­ur­inn helgar með­alið,“ sagði í bókun Óla Björns.

Tilefnið var það sem hann kall­aði „ásak­anir og dylgjur for­manns stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem komu fram í bókun á fundi 5. júní sl. og end­ur­teknar efn­is­lega í fjöl­miðlum og þing­sal í garð sex nefnd­ar­manna“. Óli Björn sagði þær ásak­anir alvar­legar og að ekki væri hægt að sitja undir þeim. „Brigsl um van­virð­ingu gagn­vart rétt­indum minni­hluta, leynd­ar­hyggju og lít­ils­virð­ingu gagn­vart hlut­verki nefnd­ar­innar sem veiki Alþingi, eru án inni­stæðu og til­efn­is­laus.“

Í bókun Þor­hildar Sunnu frá 5. júní var fjallað um ákvörðun meiri­hluta nefnd­ar­innar um að hætta frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, vegna stöðu hans gagn­vart Sam­herja. Þar sagði meðal ann­ars: „Afstaða meiri hlut­ans ber merki um van­virð­ingu fyrir rétt­indum og hlut­verki minni hlut­ans á þingi, ýtir undir grun­semdir um sam­trygg­ingu og leynd­ar­hyggju, lít­ils­virðir sér­stakt eft­ir­lits­hlut­verk stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og er til þess fallin að veikja Alþingi og traust almenn­ings á því. Minni hlut­inn harmar þessa afstöðu.“

Þór­hildur Sunna sagði af sér for­mennsku í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd við upp­haf þing­fundar í dag. Í ræðu sinni vegna þessa sagði hún að til­raunir minni­hlut­ans í nefnd­inni til að sinna því eft­ir­lits­hlut­verki sem hún á að sinna hafi orðið „meiri­hlut­anum til­efni til vald­níðslu og linnu­lausra árása.“

„Tilgangurinn helgar meðalið“

Í ræð­unni sagði hún skýrasta dæmið vera hvernig hefði verið staðið í vegi fyrir því að frum­kvæð­is­at­hugun fari fram á hæfi Krist­jáns Þórs. „Með þessu er meiri­hlut­inn að setja hættu­legt for­dæmi, veikja eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­in­u.“

Hún sagði enn fremur að meiri­hlut­inn per­sónu­gerði starf nefnd­ar­innar til að ná mark­miðum sín­um. „Til þess að rétt­læta þessa aðför sína kýs meiri­hluti nefnd­ar­innar að draga per­sónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóra­böggul.“

Óli Björn sagði í sinni bókun að engin til­raun hefði verið gerð í des­em­ber 2019, þegar ákveðið var að hefja frum­kvæð­is­at­hug­un­ina, að koma í veg fyrir að hún færi fram. „Formaður telur sig hins vegar þess umkom­inn að ásaka und­ir­rit­aðan og aðra nefnd­ar­menn um að virða ekki rétt minni­hluta. [...}Aldrei frá því að frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hófst hefur meiri­hluti nefnd­ar­innar lagt steina í götur minni hlut­ans eða staðið í vegi fyrir að gestir kæmu á fund eða upp­lýs­inga aflað.“

Gögn sem nefndin hefði aflað og umsagnir gesta sem komið hefðu á fund nefnd­ar­innar hefðu hins vegar ekki gefið til­efni til ann­ars en að frum­kvæð­is­at­hugun verði hætt. „Ekkert hefur komið fram um að fram­kvæmd eða verk­lag ráð­herra hafi farið í bága við lög og reglur. Frum­kvæð­is­at­hug­un­inni er því sjálf­hætt. Löngun for­manns nefnd­ar­innar til að breyta nefnd­inni í póli­tískan rann­sókn­ar­rétt virð­ist hins vegar mikil. Mark­miðið er að nýta trún­aðar- og valda­stöðu til að koma höggi á póli­tíska mótherja. Til­gang­ur­inn helgar með­alið.“

Í ræðu sinni í dag sagði Þór­hildur Sunna að sú aðferð­ar­fræði sem hún upp­lifði að beitt væri í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, og feli að hennar mati í sér að skjóta sendi­boð­ann, sé „þaul­reynd þögg­un­ar- og kúg­un­ar­taktík. Ég mót­mæli þess­ari aðför, mér mis­býður þetta leik­rit og ætla ekki að taka þátt í því leng­ur. Meiri­hlut­inn verður að finna sér aðrar átyllur til þess til að rétt­læta aðför sína að eft­ir­lits­hlut­verki nefnd­ar­innar og þings­ins. For­mennsku minni í þess­ari nefnd er hér með lok­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár