Þórhildur Sunna segir af sér sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar

Þing­maður Pírata segir meiri­hlut­ann í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hafa sýnt af sér vald­níðslu. Hún segir hann sífellt draga per­sónu hennar niður í svaðið og nota hana sem blóra­böggul. Hún sagði af sér for­mennsku í nefnd­inni í dag.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, hefur sagt af sér for­mennsku í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Þetta til­kynnti hún við upp­haf þing­fundar í dag klukkan 15. Í ræðu sinni sagði hún að til­raunir minni­hlut­ans í nefnd­inni til að sinna því eft­ir­lits­hlut­verki sem hún á að sinna hafi orðið „meiri­hlut­anum til­efni til vald­níðslu og linnu­lausra árása.“

Skýrasta dæmið sé hvernig staðið hafi verið í vegi fyrir því að frum­kvæð­is­at­hugun fari fram á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, vegna stöðu hans gagn­vart Samherja en meiri­hluti nefnd­ar­innar, skip­aður stjórn­ar­þing­mönnum og þing­manni Mið­flokks­ins, lagði til að henni yrði hætt fyrir viku síðan. „Með þessu er meiri­hlut­inn að setja hættu­legt for­dæmi, veikja eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Hún sagði enn fremur að meiri­hlut­inn per­sónu­gerði starf nefnd­ar­innar til að ná mark­miðum sínum. „Til þess að rétt­læta þessa aðför sína kýs meiri­hluti nefnd­ar­innar að draga per­sónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóra­böggul. Þessi aðferð­ar­fræði; að skjóta sendi­boð­ann, er þaul­reynd þögg­unar- og kúg­un­ar­taktík. Ég mót­mæli þess­ari aðför, mér mis­býður þetta leik­rit og ætla ekki að taka þátt í því lengur. Meiri­hlut­inn verður að finna sér aðrar átyllur til þess til að rétt­læta aðför sína að eft­ir­lits­hlut­verki nefnd­ar­innar og þings­ins. For­mennsku minni í þess­ari nefnd er hér með lokið.“

Vitnaði í fræga ræðu bróður Þorvalds Gylfasonar

Þór­hildur Sunna hóf ræðu sína í dag á því að vitna í fræga ræðu Vil­mundar Gylfa­sonar, þáver­andi þing­manns og for­manns Banda­lags jafn­að­ar­manna, um varð­hunda valds­ins. Ræða Vil­mundar fjallar um aðferðir þeirra sem valdið hafa til að halda upp­reisn­ar­mönnum niðri og gagn­rýni úti. Þór­hildur Sunna sagði að fátt hefði breyst síðan að Vil­mundur flutti sína ræðu. 

Afsögn Þór­hildar Sunnu ber upp sama dag og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mætti fyrir nefnd­ina til að ræða verk­lag hans við til­nefn­ingar í stöður.

Sá fundur var boð­aður í kjöl­far þess að Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að starfs­­­maður fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­­­­­mála­ráðu­­­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­­­nefnd­­­ar­innar að ráðu­­­neytið gæti ekki stutt að Þor­­­valdur Gylfa­­­son, hag­fræð­i­­­pró­­­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­­­stjóri nor­ræna fræða­­­tíma­­­rits­ins Nordic Economic Policy Review. Þor­valdur er bróðir Vil­mundar, sem lést árið 1983. Hægt er að hlusta á ræðu Vil­mundar hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár