Brynjar segir hugmyndir Pírata vera „með þeim hætti“ að þeir eigi ekki að leiða nefndina

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem situr í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ætlar ekki að styðja Jón Þór Ólafsson, þing­mann Pírata, til for­mennsku í nefnd­inni. Hann mun taka við eftir að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir sagði for­mennsk­unni af sér á mánu­dag.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, mun ekki styðja Jón Þór Ólafsson, þing­mann Pírata, sem for­mann nefnd­ar­innar. „Hug­myndir þeirra eru með þeim hætti að þau eru ekki réttu aðil­arnir til að leiða þetta starf. Ég mun ekki styðja hann til for­mennsku,“ segir Brynjar við Morg­un­blaðið í dag.

Jón Þór mun taka við for­mennsku fyrir viku­lok eftir að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, sam­flokks­kona hans, sagði henni af sér á mánu­dag. Í ræðu sinni vegna þessa sagði hún að til­­raunir minn­i­hlut­ans í nefnd­inni til að sinna því eft­ir­lits­hlut­verki sem hún á að sinna hafi orðið „meiri­hlut­­anum til­­efni til vald­­níðslu og linn­u­­lausra árása.“

Bókaði á fyrsta fundi að hann treysti ekki Þórhildi Sunnu

Brynjar segir að hann hafi ekki treyst Þórhildi Sunnu fyrir for­mennsku í nefnd­inni frá því að hún hafi verið kosið, og frá þeim tíma hafi van­traust hans ein­ungis auk­ist. Sam­komu­lag er á milli meiri­hluta og minni­hluta á Alþingi að minni­hlut­inn stýri þremur fasta­nefndum Alþingis, þar á meðal stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Morg­un­blaðið hefur eftir Brynjari að hann hefði einnig sagt af sér í sporum Þór­hildar Sunnu, þar sem hún hefði tak­markað traust. Vísar hann meðal ann­ars þar í eigin bókun á fundi nefnd­ar­innar í sept­em­ber í fyrra, þegar Þór­hildur Sunna var kjör­inn for­maður, þar sem sagði meðal ann­ars: „Ég styð ekki til­lögu um að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir verði for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis.“ Á fundi nefnd­ar­innar 6. des­em­ber 2019 lagði Þor­steinn Sæmunds­son, full­trúi Mið­flokks­ins, fram bókun þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Formaður nýtur ekki míns trausts.“

Sagði formanninn vilja pólitískan rannsóknarrétt

Í síð­ustu viku, nánar til­tekið 10. júní, lagði svo Óli Björn Kárason, sam­flokks­maður Brynjars, fram bókun í nefnd­inni. Þar sagði hann að löngun Þór­hildar Sunnu til að breyta nefnd­inni í póli­tískan rann­sókn­ar­rétt virt­ist vera mik­il. „Mark­miðið er að nýta trún­að­ar- og valda­stöðu til að koma höggi á póli­tíska mótherja. Til­gang­ur­inn helgar með­al­ið,“ sagði í bókun Óla Björns.

Til­efnið var það sem hann kall­aði „ásak­anir og dylgjur for­manns stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, sem komu fram í bókun á fundi 5. júní sl. og end­ur­teknar efn­is­lega í fjöl­miðlum og þing­sal í garð sex nefnd­ar­manna“.

Óli Björn sagði þær ásak­anir alvar­legar og að ekki væri hægt að sitja undir þeim. „Brigsl um van­virð­ingu gagn­vart rétt­indum minni­hluta, leynd­ar­hyggju og lít­ils­virð­ingu gagn­vart hlut­verki nefnd­ar­innar sem veiki Alþingi, eru án inni­stæðu og til­efn­is­laus.“

Telur meirihlutann persónugera starfið í henni

Í bókun Þor­hildar Sunnu frá 5. júní var fjallað um ákvörðun meiri­hluta nefnd­ar­innar um að hætta frum­­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs Júl­í­us­­son­­ar, sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, vegna stöðu hans gagn­vart Sam­herja. Þar sagði meðal ann­ars: „Af­staða meiri hlut­ans ber merki um van­virð­ingu fyrir rétt­indum og hlut­verki minni hlut­ans á þingi, ýtir undir grun­semdir um sam­trygg­ingu og leynd­ar­hyggju, lít­ils­virðir sér­stakt eft­ir­lits­hlut­verk stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar og er til þess fallin að veikja Alþingi og traust almenn­ings á því. Minni hlut­inn harmar þessa afstöð­u.“

Í ræð­u sinni á mánu­dag, þegar hún sagði af sér for­mennsku, sagði Þór­hildur Sunna skýrasta dæmið vera hvernig hefði verið staðið í vegi fyrir því að frum­­kvæð­is­at­hugun fari fram á hæfi Krist­jáns Þórs. „Með þessu er meiri­hlut­inn að setja hætt­u­­legt for­­dæmi, veikja eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­­kvæmd­­ar­­vald­in­u.“

Hún sagði enn fremur að meiri­hlut­inn per­­són­u­­gerði starf nefnd­­ar­innar til að ná mark­miðum sín­­um. „Til þess að rétt­læta þessa aðför sína kýs meiri­hluti nefnd­­ar­innar að draga per­­sónu mína sífellt niður í svaðið og nota mig sem blóra­­böggul.“

Sú aðferð­ar­fræði sem hún upp­lifði að beitt væri í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, og feli að hennar mati í sér að skjóta sendi­boð­ann, sé „þaul­­­reynd þögg­un­­ar- og kúg­un­­ar­taktík. Ég mót­­mæli þess­­ari aðför, mér mis­­býður þetta leik­­rit og ætla ekki að taka þátt í því leng­­ur. Meiri­hlut­inn verður að finna sér aðrar átyllur til þess til að rétt­læta aðför sína að eft­ir­lits­hlut­verki nefnd­­ar­innar og þings­ins. For­­mennsku minni í þess­­ari nefnd er hér með lok­ið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár