Öllum 46 ríkissaksóknurum sem Obama skipaði skipt út

Jeff Sessions dómsmála­ráðherra, sem staðinn var að ósannindum eiðsvarinn frammi fyrir þinginu, er byrjaður að láta til sín taka.

Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Jeff Sessions, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforesta hefur krafist afsagnar allra þeirra 46 ríkis­saksóknara sem skipaðir voru í embætti í átta ára valdatíð Baracks Obama. Það er dómsmála­ráðuneyti Jeff Sessions sem stendur að ákvörðuninni, og hefur þegar komið því til skila að ríkis­saksókn­ararnir segi tafarlaus af sér.

Í Banda­ríkjunum er hefð fyrir því að hátt­settir, pólitískt skipaðir embættis­menn innan stjórnar­ráðsins og undir­stofnanna stjórn­valda, séu beðnir að segja af sér í kjölfar manna­skipta í Hvíta húsinu. Þetta á meðal annars við um ríkis­saksóknara en þeir eru 93 talsins.

Ákvörðunin kom þó verulega á óvart, að því er segir í New York Times, þar sem nær enginn aðdragandi var að henni, og fyrir­varinn fyrir skiptin því lítill. Þetta getur sett dómsmál í uppnám sem nú eru í gangi og hafa Demó­kratar í þinginu þegar komið þeim skila­boðum á framfæri. 

Fólk sem er í forsvari fyrir ráðuneyti Sessions hefur hafnað þessu, og sagt að fólk verið skipað fljótt og skiptin muni ganga vel fyrir sig. Auk þess geti aðrir saksókn­arar tekið við keflinu og klárað þau mál sem þarf að klára. 

Óhætt er að segja að Sessions sé undir pressu eftir að hann var staðinn að ósannindum frammi fyrir þingnefnd í Banda­ríkjunum, þar sem hann sagðist ekki hafa verið í samskiptum við Rússa. Gögn birtust síðar sem sýndu glögglega, að Sessions hafði verið í samskiptum við Rússa í aðdrag­anda forseta­kosninganna í Banda­ríkjunum, fyrst í júlí og síðan í september. Í bæði skiptin fundaði hann með Sergey Kislyak, sendi­herra Rússlands í Banda­ríkjunum. 

Óskað hefur verið eftir því í þinginu, að sérstök rannsókn fari fram á tengslum Sessions og fleiri, þar á meðal Michael Flynn, fyrr­verandi þjóðar­öryggis­ráðgjafa, en hann var einnig staðinn að ósannindum, þegar koma að samskiptum við Rússa, og þurfti því að segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár