Ummæli forsætisráðherra ekki í samræmi við mat Útlendingastofnunar

„Það hefur aldrei verið látið standa á fjár­veitingum til Útlendinga­stofnunar eða kæru­nefndarinnar til að ýta undir sem skjótasta máls­meðferð,“ sagði Bjarni Benediktsson í umræðum um útlendinga­löggjöfina. Raunin er sú að Útlendinga­stofnun hefur ekki fengið þá fjármuni og þann mannafla sem stofnunin hefur kallað eftir til að geta hraðað máls­meðferð og haldið í við fjölgun hælis­umsókna.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra fullyrti í umræðum um breytingar á útlendinga­löggjöfinni fyrr í vikunni að á undan­förnum árum hefði aldrei staðið á fjár­veitingum til Útlendinga­stofnunar til að ýta undir sem skjótasta máls­meðferð hælis­umsókna. 

„Það hefur aldrei staðið á því. Það væri kannski einhver innstæða fyrir orðum háttvirts þingmanns ef ríkis­stjórnin hefði haldið þannig á málum að fjár­veitingar til þessara mikilvægu stofnana væru stöðvaðar. Við höfum aldrei farið þá leið,“ sagði Bjarni í andsvari við ræðu Kolbeins Óttars­sonar Proppé, þingmanns Vinstri grænna. 

Kolbeinn Ótt­arrs­son Proppéþing­maður Vinstri grænna

Kolbeinn hafði þá sett orð forsætis­ráðherra um mikilvægi þess að hraða máls­meðferð hælis­umsókna í samhengi við fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar.

„Það er athyglis­vert að heyra hæstvirtan ráðherra tala um löngun hans til að setja aukna fjármuni í að hraða máls­meðferð. Það er ekki svo langt síðan að hér var lagt fram frumvarp til fjárlaga. Ég veit ekki betur en þar sé staðan sú að ekki er mætt þeim kröfum Útlendinga­stofnunar eða þörfum sem hún þarf til að hraða máls­meðferð,“ sagði Kolbeinn og spurði: „Af hverju birtist þessi löngun hæstvirts ráðherra ekki í fjárlaga­vinnunni?“

Bjarni vísaði því alfarið á bug að ekki væri nægilegir fjármunir settir í hröðun máls­meðferðar. „Við höfum ávallt tryggt þá fjármuni sem hefur þurft til þess að tryggja sem besta máls­meðferð. Það eru engin dæmi um annað. Þannig að allt þetta tal um fjárlög og framkvæmd fjárlaga er bara út í hött,“ sagði hann. „Það hefur aldrei verið látið standa á fjár­veitingum til Útlendinga­stofnunar eða kæru­nefndarinnar til að ýta undir sem skjótasta máls­meðferð.“

„Við höfum ávallt tryggt þá fjármuni sem hefur þurft til þess að tryggja sem besta máls­meðferð. Það eru engin dæmi um annað“

Raunin er hins vegar sú að á þessu ári var Útlendinga­stofnun ekki tryggt það fjármagn sem stofnunin hefur sagst þurfa til að halda í við fjölgun hælis­umsókna og hraða afgreiðslu þeirra. Fyrir vikið lengdist meðal­afgreiðslu­tími hælis­umsókna á fyrri hluta ársins.

Fram kemur í gögnum Útlendinga­stofnunar um mannafla­þörf vegna afgreiðslu hælis­umsókna árið 2017, sem fjár­laganefnd Alþingis fékk í febrúar á þessu ári, að fjölgun umsókna kalli á aukinn mannafla ef halda eigi kostnaði niðri. „Þarf að gerast fyrir sumarið, svo unnt sé að þjálfa starfs­menn og viðhalda mála­vinnslu yfir sumarfrís­tímann,“ segir í glæru­kynningu sem þing­nefndinni var sýnd.

Útlendingastofnun sagðist þurfa 43
nýja starfsmenn en fékk talsvert færri

Útlendinga­stofnun taldi sig þurfa 29 viðbótar­starfsmenn til að geta hraðað afgreiðslu umsókna og 14 viðbótar­starfsmenn til að sinna móttöku og þjónustu við hælis­leitendur. Þann 28. apríl impraði Útlendinga­stofnun á þessu vegna fjármála­áætlunar ríkis­stjórnarinnar sem þá var til umfjöllunar í fjár­laganefnd. 

Sigríður Andersendóms­mála­ráð­herra

Fram kom að á meðan fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar gerði ráð fyrir því að fjöldi umsækjenda um vernd færi aldrei fram úr 700 á hverju ári telji stofnunin nærtækara að miða við 2000 umsækjendur. Til að mæta þessu, og tryggja að mannafli væri til staðar á öllum stjórnsýslu­stigum, þyrfti að hækka framlag til sviðsins um 7 milljarða en ekki 2 eins og áætlun ríkis­stjórnarinnar fæli í sér. 

Þann 11. ágúst var loks tilkynnt að Útlendinga­stofnun fengi heimild til að ráða tíma­bundið tíu nýja starfs­menn. Þegar frétta­stofa RÚV spurði Sigríði Á. Andersen dómsmála­ráðherra hvort það hefði ekki þurft að auka þennan liðsauka fyrr svaraði hún: „Ég veit það ekki. Ég er ekki með yfirsýn yfir starfsmanna­hætti hjá Útlendinga­stofnun. En það liggur að minnsta kosti fyrir að hún fær hann núna.“

Stofnun látin „viðhalda ásættanlegum málshraða“

Fram kom í gögnum Útlendinga­stofnunar að ef hraða ætti afgreiðslu hælis­umsókna þyrfti 301 milljónar króna aukningu til fjárlaga­liðarins 06-398. Til að halda í við fjölgun hælis­leitenda þyrfti svo 187 milljóna aukningu til fjárlaga­liðar 06-399 sem tekur til móttöku og þjónustu við hælis­leitendur. Í frumvarpi fráfar­andi ríkis­stjórnar til fjárlaga fær Útlendinga­stofnun hins vegar aðeins 166,6 milljóna króna auka­framlag „til að viðhalda ásættanlegum málshraða hælis­umsókna“ eins og það er orðað í greinar­gerð. Hins vegar eru útgjöld til fjárlaga­liðarins 06-399 stóraukin, eða úr rúmum milljarði í 2,7 milljarða. 

Eins og Stundin fjallaði um fyrr í mánuðinum var kostnaður vegna útlendinga­mála rúmum milljarði meiri á fyrri hluta ársins 2016 en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Samkvæmt afkomu­greinargerð ríkis­sjóðs voru fjár­heimildir verulega „vanáætlaðar í fjárlaga­gerð í ljósi fordæma­lausrar fjölgunar hælis­umsókna á síðustu mánuðum ársins 2016“. Útlendinga­stofnun birtir nákvæma tölfræði um fjölda hælis­umsókna í hverjum mánuði en auk þess fékk fjár­laganefnd Alþingis ítarlega kynningu frá fulltrúum innan­ríkis­ráðuneytisins á fjárþörf vegna hælis­umsókna og þjónustu við hælis­leitendur þann 12. desember 2016. Voru þá dregnar upp þrjár sviðs­myndir. Í einni þeirra var áætlað að fjár­vöntunin, miðað við frum­varpið sem þá lá fyrir, næmi meira en tveimur milljörðum á árinu. Bjartsýnni spár gerðu ráð fyrir 1,2 milljarða og 892 milljóna fjár­vöntun, en nú liggur fyrir að fram­úrkeyrslan, aðeins á fyrri hluta ársins, nam 1200 milljónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár