Falsfréttaritari fannst látinn í Arizona

Paul Horner, fals­frétta­ritarinn sem taldi sig hafa átt sök á því að Donald Trump var kjörinn forseti, fannst látinn.

Donald Trump var aldrei talinn líklegur til að vinna í forsetakosningunum í fyrra.
Donald Trump var aldrei tal­inn lík­legur til að vinna í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra. Mynd: EPA

Fals­frétta­ritarinn Paul Horner fannst látinn á heimili sínu nærri Phoenix, Arizona í Banda­ríkjunum í gær. Hann varð þekktur fyrir að skrifa falskar fréttir í aðdrag­anda forseta­kosninganna vestanhafs í fyrra.

Lögreglu­fulltrúi í Arizona sagði í samtali við AP-frétta­stofuna að vísbendingar á vettvangi hafi bent til þess að Horner hafi óvart neytt of stórs skammts af eitur­lyfjum. Enn á þó eftir að staðfesta dánar­orsökina en ekki er talið að dauði hans hafi borið að með saknæmum hætti.

Horner skrifaði margar falskar fréttir sem hann miðaði að stuðnings­mönnum Donalds Trump, forseta­fram­bjóðanda Repúblikana í kosningunum. Fréttirnar hans fengu oftar en ekki gríðar­lega mikla dreifinu á Facebook og Twitter.

Í samtali við frétta­blogg bandaríska dagblaðsins The Washington Post í fyrra, sagðist Horner halda að hann ætti einhvern þátt í því að Trump hafi verið kjörinn. „Fréttunum mínum var alltaf dreift af stuðnings­mönnum Trumps. Ég held að Trump sé í Hvíta húsinu út af mér,“ sagði hann.

„Stuðnings­mennirnir hans sannreyna ekkert – þeir deila bara öllu og trúa öllu. Kosninga­stjórinn hans deildi frétt eftir mig um að mótmælandi hafi fengið greitt 3.500 dollara og sagði það staðreynd. Ég meina, ég skáldaði það. Ég keypti falska auglýsingu á Craigslist.“

Í samtalinu sagði Horner að hann hafi birt bull­fréttirnar til þess að láta stuðnings­menn Trumps líta illa út. „Ég hélt að þeir myndu sannreyna fréttirnar og að það myndi láta þá líta ver út. Ég meina, svona virkar það alltaf: Einhver deilir einhverju sem ég skrifa, komast svo að því að það er bull og þá líta þeir út eins og hálfvitar.“

„En stuðnings­menn Trumps – þeir héldu bara áfram að ýta undir ósönnu fréttirnar! Þeir sannreyna aldrei neitt! Og nú er hann í Hvíta húsinu. Þegar ég lít til baka þá held ég að ég hafi hjálpað kosninga­baráttunni hans frekar en að skaða hana. Mér líður illa með það,“ sagði Horner.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár