Sýn tilkynnti FME um meðferð innherjaupplýsinga í forstjóratíð Heiðars

Sýn tilkynnti Fjármála­eftirlitinu í febrúar um hvernig farið var með innri upplýsingar hjá félaginu árið 2022, þegar Heiðar Guðjónsson var forstjóri þess. Um svipað leyti seldi hann sig úr félaginu fyrir 2,2 milljarða. Þeir hafa höfðað skaða­bótamál.

Forstjórinn
For­stjór­inn Heiðar var bæði for­stjóri og stærsti fjár­festir­inn í Sýn þegar hin athygl­is­verða upp­lýs­inga­miðlun – eða skortur á miðlun – átti sér stað. Mynd: Sýn

Sýn tilkynnti Fjármála­eftirlitinu fyrr á þessu ári um það hvernig farið var með innri upplýsingar hjá félaginu árið 2022, þegar Heiðar Guðjónsson var stærsti eigandi og forstjóri fyrir­tækisins.

Málið tengist meðal annars rekstrarspá sem virðist ekki hafa farið rétta boðleið innan félagsins um svipað leyti og Heiðar seldi fjár­festum stóran hlut í fyrir­tækinu. Þessir sömu fjár­festar hafa stefnt Heiðari fyrir dóm og krefjast skaðabóta, að því er Morgun­blaðið greinir frá.

Málið snýr meðal annars að uppfærðri rekstrarspá Sýnar vegna tekna af svokallaðri IoT-starfsemi, eða þjónustu sem tengir tæki og búnað við fjarskiptanet. Samkvæmt Sýn virðist þeirri spá ekki hafa verið miðlað innan félagsins eins og verklags­reglur gerðu ráð fyrir.

Félagið greinir frá þessu í tilkynningu til Kaup­hallarinnar og segir tilefnið vera umfjöllun um máls­höfðun Gavia Invest á hendur Heiðari og félagi hans Úrsus.

Málið kom upp þegar núverandi stjórn og stjórn­endur Sýnar fóru yfir eldri rekstrar­gögn vegna áætlana­gerðar fyrir árið 2026. Þá komu fram upplýsingar sem urðu til þess að farið var að skoða nánar hvernig farið hefði verið með upplýsingar um rekstrarspá félagsins árið 2022.

Stjórn Sýnar fékk í kjölfarið óháð lögfræði­álit og ákvað eftir þá yfirferð að upplýsa Fjármála­eftirlitið um málið og afhenda því gögn.

Atvikin sem núverandi stjórn taldi ástæðu til að vekja athygli Fjármála­eftirlitsins á áttu sér stað um svipað leyti og Heiðar átti í milljarða­viðskiptum með hlutabréf í Sýn.

Eignarhalds­félag Heiðars seldi í júlí 2022 nýstofnuðu félagi undir forystu Reynis Grétars­sonar 12,72 prósenta hlut sinn í Sýn. Með viðskiptunum seldi Heiðar allan hlut sinn í félaginu og lét jafnframt af störfum sem forstjóri.

Sýn tekur fram í tilkynningu sinni að félagið taki ekki afstöðu til þess hvort lög eða reglur hafi verið brotin. Fjármála­eftirlitið hafi heldur ekki komið neinni niður­stöðu eða afstöðu á framfæri við félagið vegna málsins.

Í yfir­lýsingu stjórnar Sýnar segir jafnframt að þessi atvik frá árinu 2022 hafi engin áhrif á daglegan rekstur félagsins í dag og að rekstur og afkoma séu í samræmi við birtar áætlanir.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár