Barnshafandi burðardýr í einangrun á Suðurnesjum

Barns­haf­andi kona situr nú í gæslu­varð­haldi í fang­els­inu á Akureyri. Hún var hand­tekin fyrir að smygla fíkni­efnum. Evr­ópu­nefnd um pynt­ingar varar við ofnotkun Íslend­inga á ein­angr­un­ar­vist­unum.

Ung kona fékk fregnir af að hún væri barns­haf­andi í ein­angr­un­ar­klefa á Suð­ur­nesjum. Hún var hand­tekin við komu til lands með kókaín inn­vortis. Hún fékk enga sér­með­ferð í ein­angrun þrátt fyrir að vera barns­haf­andi. 
Konan var hand­tekin við kom­una til lands­ins í upp­hafi sein­asta mán­aðar og fund­ust á henni 600 grömm af kóka­íni inn­vortis. Í við­tali við Stundina lýsir hún því hvernig henni var haldið í ein­angrun á lög­reglu­stöð­inni á Suð­ur­nesjum í nærri þrjár vikur þrátt fyrir að lög­reglu væri kunn­ugt um að hún væri ólétt. Konan, sem við skulum kalla Önnu til þæg­inda, er enn ein erlend kona í neyð sem er hand­tekin hér á landi fyrir fíkni­efna­smygl.
Anna hefur búið í litlum bæ í nágrenni Düs­seldorf í Þýska­landi undan­farin ár en hún á stóra fjöl­skyldu í Nígeríu sem hún hefur þurft að fram­fleyta. Að hennar sögn átti hún að fá um 3.000 evrur fyrir ferð­ina, ríf­lega 400 þús­und krónur. „Ég átti engan pen­ing og var þung­lynd,“ segir konan.

Óléttupróf í einangrun

Anna seg­ist í raun­inni ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað hún var að gera. Hana hafi sár­lega vantað fé til að greiða skóla­gjöld systk­ina sinna í Nígeríu sem og kostnað vegna sjö ára sonar síns í Þýska­landi. Hún hafði auk þess hug á að fara sjálf í hönn­un­ar­skóla. „Ég vissi ekki hvað ég var með á mér. Mig sár­vant­aði fé og var kynnt fyrir ákveðnu fólki. Mér datt í raun­inni ekki í hug að þetta gæti verið hættu­legt. Þegar ég var hand­tekin og þeir fundu 600 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár