Sveitarfélög með undir eitt þúsund íbúa þurfi að skoða það alvarlega að sameinast öðrum

Verk­efnastjórn um starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa í sveitar­stjórnum segir að bæta þurfi vinnu­aðstæður, stuðla að mark­vissari viðbrögðum, tryggja réttindi og sann­gjarnari kjör ásamt því að sameina þurfi minni sveitar­félög öðrum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Eyþór Árnason

Sveitar­félög með undir eitt þúsund íbúa þurfa að taka það til alvarlegrar skoðunar að sameinast öðrum sveitar­félögum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í drögum að skýrslu verk­efna­stjórnar um starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa í sveitar­stjórnum sem birt var í samráðs­gátt stjórn­valda í morgun.

Sem stendur eru 29 þeirra 64 sveitar­félaga sem eru á Íslandi með íbúa­fjölda undir þeirri tölu. Til viðbótar eru tólf sveitar­félög til viðbótar með á milli eitt og tvö þúsund íbúa.

Í skýrslunni segir að verk­efna­stjórnin líti svo á að sameining sveitar­félag stuðli ekki einungis að öflugri sveitar­félögum sem veiti betri þjónustu við íbúa heldur líka að betri vinnu­aðstæðum og minna álagi á kjörna fulltrúa. „Með hliðsjón af því hvetur verk­efna­stjórnin sérstak­lega sveitar­stjórnir með undir eitt þúsund íbúa til þess að skoða alvarlega sameiningar­kosti við önnur sveitar­félög.“

Vilja „sanngjörn kjör“ fyrir sveitarstjórnarfulltrúa

Verk­efna­stjórnin var skipuð í fyrra­haust til að taka út starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa í sveitar­stjórnum. Ástæðan var sú að endurnýjun í hópi sveitar­stjórnar­manna hefur verið afar mikil hérlendis, og að afar hátt hlutfall gefi ekki kost á sér aftur til þátttöku í sveitar­stjórnum eftir að hafa setið í þeim í eitt kjör­tímabil. Formaður hópsins var Guðveig Eyglóar­dóttir sem skipuð var af innviða­ráðuneytinu. Á meðal annarra sem sátu í henni eru Gauti Jóhannesson, fyrr­verandi sveitar­stjóri á Djúpavogi, og Heiða Björg Hilmis­dóttir, borgar­fulltrúi í Reykjavík og nýkjörinn formaður Sambands íslenskra sveitar­félaga.

Í drögunum kemur fram að sameining ein og sér dugi ekki til að bæta starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa í sveitar­stjórnum.

Verk­efna­stjórnin segir að ríki og sveitar­félög verði að taka höndum saman um að bæta vinnu­aðstæður, stuðla að mark­vissari vinnu­brögðum, tryggja réttindi og sann­gjarnari kjör kjörinna fulltrúa í sveitar­stjórnum í því skyni að efla sveitar­félögin. „Með sama hætti er nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að draga úr hættunni á hvers kyns áreiti og ofbeldi í garð kjörinna fulltrúa. Brýnt er að veita kjörnum fulltrúum aukna fræðslu til að takast á við sífellt flóknara hlutverk sem og stuðning og ráðgjöf til að takast á við neikvæða fylgi­fiska þess.“

Styrkja þarf hlut kvenna

Í drögunum kemur fram að það hafi vakið eftirtekt verk­efna­stjórnarinnar að hlutfall kvenna á Norður­löndum í sveitar­stjórnum sé hæst hérlendis, en hvergi sé hins vegar meiri endurnýjun meðal kjörinna fulltrúa heldur en á meðal kvenna í íslenskum sveitar­stjórnum. „Sú staðreynd á væntanlega sinn þátt í því að konur eru ólíklegri en karlar til þess að gegna ábyrgðar­stöðum innan sveitar­stjórna. Ljóst er að bregðast þarf við óeðlilega háu endurnýjunar­hlutfall í sveitar­stjórnum með markvissu átakinu beggja stjórnsýslu­stiga til að tryggja áfram­haldandi eflingu sveitar­stjórnar­stigsins og styrkja hlut kvenna innan sveitar­stjórna.“

Kjör kjörinna fulltrúa eru einnig til umfjöllunar í drögunum, en Reykjavík er eina sveitar­félag landsins sem greiðir slíkum full laun. Innviða­ráðuneytið er þar hvatt til þess að endur­skoða kjara­ákvæði sveitar­stjórnar­laga í því skyni að stuðla að „sann­gjörnum kjörum fulltrúa“, tryggja að þeir verði ekki fyrir launatapi og njóti eðlilegra réttinda á vinnu­markaði.

Í því skyni er meðal annars mælt með því að teknar verði upp svokallaðar barna­greiðslur að danskri fyrirmynd til kjörinna fulltrúa með börn undir tíu ára aldri á sínu framfæri, „meðal annars til að standa straum af barna­gæslu og koma til móts við annað óhagræði foreldra ungra barna af fundum utan hefð­bundins vinnutíma. Með því væri sérstak­lega unnið gegn óeðlilega mikilli endurnýjun í sveitar­stjórnum meðal ungra foreldra, sér í lagi kvenna.“

Á meðal annarra tillagna sem mælt er með eru að tryggt verði að kjörnir fulltrúar hafi aðgang að nauðsyn­legum tækja­búnaði á borð við tölvu og síma eða þeim verði veittur styrkur til kaupa á slíkum tækjum. Jafnframt verði kjörnum fulltrúum tryggður aðgangur að hentugu húsnæði til að sinna skyldum sínum í þágu sveitar­stjórnar og taka á móti íbúum með erindi til hennar.

Hætt við að lögþvinga sameiningar

Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra lagði fram frumvarp á síðasta kjör­tímabili sem fól meðal annars í sér að sveitar­félög með undir eitt þúsund íbúa yrði gert að sameinast öðrum.

Þegar frum­varpið var samþykkt í fyrra­sumar hafði því hins vegar verið breytt á þann hátt að nú segir í því að stefnt skuli að því að lágmarks­íbúafjöldi verði undir eitt þúsund, en að sveitar­félög yrðu ekki þvinguð til að gera það. Áfram sem áður er það því í höndum sveitar­félaganna sjálfra að ákveða hvort þau hafi styrk til að sinna lögbundinni grunn­þjónustu.

Í greinar­gerð frum­varpsins var meðal annars fjallað um hag­ræn áhrif fækk­unar sveit­ar­fé­laga. Sam­kvæmt grein­ing­u er áætlað að hag­ræn áhrif kunni að verða 3,6 til fimm millj­arðar króna. vegna breyttra áherslna við rekstur sveit­ar­fé­laga. Í tilkynningu sem birt var á vef stjórnar­ráðsins vegna þessa sagði að með sameiningu gæti orðið til mögu­legur sparn­aður í rekstri stjórn­sýslu sveit­ar­fé­laga sem gæti nýst til að auka þjón­ustu­stig við íbúa sveit­ar­fé­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár