Hagræn áhrif fækkunar sveitarfélaga geti orðið fimm milljarðar

Nýlega voru breyt­ingar á sveit­ar­stjórn­ar­lögum sam­þykktar en ein meg­in­breyt­ingin felur í sér að stefnt skuli að því að lág­mark­s­í­búa­fjöldi sveit­ar­fé­laga verði ekki undir 1.000 manns. Upp­haf­lega stóð til að lög­festa lág­mark­s­í­búa­fjölda.

Ráðherra sveitarstjórnarmála mun ekki hafa frumkvæði að sameiningum sveitarfélaga með færri en 1.000 íbúa eins og upphaflega var lagt til í frumvarpi Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Ráðherra sveit­ar­stjórn­ar­mála mun ekki hafa frum­kvæði að sam­ein­ingum sveit­ar­fé­laga með færri en 1.000 íbúa eins og upp­haf­lega var lagt til í frum­varpi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Um síð­ustu helgi var stjórn­ar­frum­varp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra um breyt­ingu á sveit­ar­stjórn­ar­lögum sam­þykkt. Í lög­unum segir meðal ann­ars að stefnt skuli að því að lág­mark­s­í­búa­fjöldi sveit­ar­fé­laga verði ekki undir 1.000 manns. Það er talið hafa í för með sér mikla hag­ræð­ingu í rekstri minni sveit­ar­fé­laga og að þau verði betur í stakk búin til að sinna lög­bund­inni grunn­þjón­ustu í kjöl­farið.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er fjallað um hag­ræn áhrif fækk­unar sveit­ar­fé­laga. „Samkvæmt grein­ing­unni er áætlað að hag­ræn áhrif kunni að verða 3,6–5 millj­arðar kr. vegna breyttra áherslna við rekstur sveit­ar­fé­laga. Þannig kann mögu­legur sparn­aður sem verður í rekstri stjórn­sýslu sveit­ar­fé­laga að verða nýttur til að auka þjón­ustu­stig við íbúa sveit­ar­fé­laga,“ segir í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

„Við höfum nú náð sam­stöðu um að stefnt skuli að því að lág­mark­s­í­búa­fjöldi sveit­ar­fé­laga verði 1.000 manns. Það er nú í höndum sveit­ar­fé­laga hvernig þau geti best náð því mark­miði og hafi styrk til að sinna lög­bund­inni grunn­þjón­ustu. Sveit­ar­fé­lög hafa sýnt frum­kvæði og víða um land er sam­ein­ingum ýmist lokið eða þær verið sam­þykktar. Annars staðar eru við­ræður í gangi,“ er haft eftir Sigurði Inga í til­kynn­ing­unni.

Gengið mun skemur en til stóð

Fyrsta grein nýsam­þykkts laga­breyt­inga­frum­varps fjallar um lág­mark­s­í­búa­fjölda. Þar segir að stefnt skuli að því að íbúa­fjöldi sveit­ar­fé­laga verði ekki undir 1.000. Sé íbúa­fjöld­inn undir þeim við­miðum við almennar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar skal sveit­ar­stjórn þess, innan árs frá kosn­ingum, leit­ast við að ná mark­miðum um lág­mark­s­í­búa­fjölda með því að hefja form­legar sam­ein­ing­ar­við­ræður á grund­velli 119. greinar sveit­ar­stjórn­ar­laga, sem fjallar um sam­ein­ingar, eða að vinna álit um stöðu sveit­ar­fé­lags­ins, getu þess til að sinna lög­bundnum verk­efnum og um þau tæki­færi sem fel­ast í mögu­legum kostum sam­ein­ingar sveit­ar­fé­lags­ins við annað eða önnur sveit­ar­fé­lög.

Sé slíkt álit unnið skal það svo sent sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyti og það kynnt íbúum. Sveit­ar­stjórn tekur svo end­an­lega ákvörðun um það hvort hefja eigi samn­inga­við­ræður um sam­ein­ingu. Ákveði sveit­ar­stjórn að gera það ekki geta tíu pró­sent þeirra sem eiga kosn­inga­rétt í sveit­ar­fé­lag­inu óskað eftir almennri atkvæða­greiðslu og skal nið­ur­staða hennar vera bind­andi.

Til stóð að ganga mun lengra til að ná fram mark­miði um lág­mark­s­í­búa­fjölda. Þegar frum­varp Sigurðar Inga var lagt fram var lagt til að ráð­herra ætti að hafa frum­kvæði að því að sam­eina sveit­ar­fé­lög. „Nú hefur íbúa­fjöldi sveit­ar­fé­lags verið lægri en sem greinir í 1. mgr. [1.000 íbúar] í þrjú ár sam­fleytt og skal þá ráð­herra eiga frum­kvæði að því að sam­eina það öðru eða öðrum nær­liggj­andi sveit­ar­fé­lögum,“ segir í upp­haf­legri mynd frum­varps­ins. Í þess­ari mynd frum­varps­ins var ráð­herra heim­ilt að veita sveit­ar­fé­lögum fjög­urra ára und­an­þágu frá þess­ari reglu að feng­inni umsögn ráð­gjaf­ar­nefndar.

Í takt við tillögu starfshóps minni sveitarfélaga

Fjöldi smærri sveit­ar­fé­laga sendi inn umsagnir við frum­varpið þar sem lög­fest­ing 1.000 íbúa lág­marks var mót­mælt. Var fyr­ir­huguð breyt­ing meðal ann­ars kölluð lög­þvingun og breyt­ingin sögð stang­ast á við sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti íbúa smærri sveit­ar­fé­laga.

Vel á annan tug smærri sveit­ar­fé­laga greindi frá stuðn­ingi við til­lögu starfs­hóps minni sveit­ar­fé­laga í sínum umsögnum. Endanleg nið­ur­staða um mark­mið um lág­mark­s­í­búa­fjölda er nokkuð svipuð til­lögu starfs­hóps­ins, með nokkrum breyt­ingum þó. Til að mynda er gert ráð fyrir að sveit­ar­stjórn skuli ræða sam­ein­ingu innan við sex mán­uðum eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í stað árs og að 15 pró­sent kjós­enda geti knúið fram kosn­ingu um sam­ein­ingu í stað tíu pró­senta í til­lögum starfs­hóps­ins.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi til­lög­unni segir að það sé ekki ein­ungis tala íbúa sem ráði því hversu vel sveit­ar­fé­lög geti sinnt lög­bund­inni þjón­ustu. „Burðir sveit­ar­fé­laga til þjón­ustu, mögu­leikar til efl­ingar og þró­unar eru ekki bundnir við íbúa­fjölda nema öðrum þræði, en land­fræði­legir þættir og lega t.d. m.t.t. sam­gangna og vega­lengda, hefur þar einnig vægi svo og inn­viðir.“

Þar segir einnig að það ætti alltaf að vera í höndum sveit­ar­fé­lag­anna sjálfra og íbúa þeirra að ráða för þegar sam­ein­ingar sveit­ar­fé­laga eru ann­ars vegar. „Sveit­ar­fé­lög og íbúar þeirra ættu alltaf að hafa síð­asta orðið um örlög sveit­ar­fé­laga og mögu­leika til sam­ein­ingar, það verður öllum til heilla. Enda í bestu sam­ræmi við gild­andi lög, Evr­ópu­ráðs­samn­ing um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt sveit­ar­fé­laga og stjórn­ar­skrá lands­ins.“

Varðandi lág­mark­s­í­búa­fjölda var umsögn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga sam­bæri­leg þeirri frá starfs­hópi minni sveit­ar­fé­laga. Í umsögn­inni var lagt til að stefnt yrði að því að lág­mark­s­í­búa­fjöldi hvers sveit­ar­fé­lags yrði 1.000 án þess að bein­línis lög­festa lág­markið. Í umsögn­inni var orða­lag til­lög­unnar sagt „vísa betur til mark­miða þings­á­lykt­unar um stefnu í mál­efnum sveit­ar­fé­laga um að ekk­ert sveit­ar­fé­lag hafi færri en 1.000 íbúa heldur en orða­lag í vinnu­skjali.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitastjórnarmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár