Fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokks formaður stýrihóps gegn hatursorðræðu

Aðstoðar­maður ríkis­stjórnarinnar um samhæfingu mála og fyrr­verandi þingmaður Fram­sóknar leiðir starfshóp gegn haturs­orðræðu. Vara­þingmaður Pírata á sæti í hópnum og ætlar að beita sér fyrir því að fjöl­breyttar raddir fái að heyrast við vinnu hópsins.

Dagný Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, er formaður starfshóps gegn hatursorðræðu sem hefur störf í næstu viku.
Dagný Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er for­maður starfs­hóps gegn hat­urs­orð­ræðu sem hefur störf í næstu viku. Mynd: Stjórnarráðið

Dagný Jóns­dóttir, aðstoðar­maður ríkis­stjórnarinnar um samhæfingu mála og fyrr­verandi þingmaður Framsóknar­flokksins, er formaður starfs­hóps gegn haturs­orðræðu sem mun hefja störf í næstu viku.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra ákvað í síðasta mánuði að skipa starfshóp gegn haturs­orðræðu til að bregðast við vísbendingum um vaxandi haturs­orðræðu í íslensku samfélagi.

Katrín átti meðal annars fund með Lenyu Rún Taha Karim, vara­þingmanni Pírata, og Vigdísi Häsler, framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna, í apríl þar sem þær ræddu leiðir til að takast á við kynþátta­fordóma og útlendinga­andúð, bæði kerfis­lægt og í samfélaginu öllu.

Lenya á sæti í starfs­hópnum og er hún skipuð án tilnefningar af forsætis­ráðherra. „Ég mun beita mér fyrir því að fjöl­breyttar raddir fái að heyrast við vinnu hópsins, þessi starfs­hópur þarf fyrst og fremst að gæta hagsmuna þeirra hópa sem verða fyrir haturs­orðræðu og því mikilvægt að sjónarmið þeirra fái hljóm­grunn í vinnunni framundan,“ segir Lenya í samtali við Kjarnann.

Kjarninn fjar­lægði frétt sem unnin var upp úr við­tali við Lenyu sem birt­ist um miðjan apríl vegna rasískra ummæla sem skrifuð voru við deil­ingu frétt­ar­innar á Face­book-­síðu Kjarn­ans.

Í við­tal­inu ræddi Lenya einnig um rasísk ummæli Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra sem hann lét falla um Vigdísi Häsler í mót­­töku sem Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn hélt í til­­efni af Bún­­að­­ar­­þingi bænda­­sam­tak­anna. Vig­­dís vildi fá for­yst­u­­­fólk úr Fram­­­sókn­­­ar­­­flokknum til að taka mynd með sér þar sem hún „plank­aði“ á meðan að það hélt á henni. Við þessar aðstæður á Sig­­­urður Ingi að vísað til Vig­­­dísar sem „hinnar svört­u“.

Sig­­urður Ingi baðst afsök­unar og fund­aði nokkrum dögum síðar með Vig­­­dísi sem birti í kjöl­farið færslu á Face­­­book þar sem hún sagði að þau hefðu átt „hrein­skil­ið, heið­­­ar­­­legt og opið sam­tal“. Sagð­ist Vig­­­­dís hafa með­­­­­tekið af­­­­sök­un­­­­ar­beiðni Sig­­­­urðar Inga og að hún hefði upp­­­­lifað hana sem ein­læga. Mál­inu væri lokið af henn­ar hálfu. Sig­urður Ingi hefur verið kærður fyrir brot á siða­reglum Alþingis en hefur ekki tjáð sig meira um málið heldur aðeins vísað í afsök­un­ar­beiðni sína á Face­book.

Starfshópurinn hefur störf í næstu viku

Nú hefur fyrr­verandi þingmaður Framsóknar­flokksins verið skipuð formaður starfs­hóps gegn haturs­orðræðu. Dagný sat á þingi fyrir Framsóknar­flokkinn 2003-2007. Í dag starfar hún sem aðstoðar­maður ríkis­stjórnarinnar um samhæfingu mála.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda sem send var út í apríl þegar tilkynnt var um ráðningu Dagnýjar segir að hún muni vinna að því að „sam­hæfa stefnu og aðgerðir í mála­flokkum sem heyra undir fleiri en eitt ráðu­neyti. Meðal umfangs­mik­illa áherslu­mála rík­is­stjórn­ar­innar sem snerta mál­efna­svið flestra ráðu­neyta eru sjálf­bærni, rétt­lát umskipti og aukin sam­keppn­is­hæfn­i“. Nú mun hún einnig gegna formennsku í starfs­hópi gegn haturs­orðræður og er fyrsti fundur hópsins áætlaður næst­komandi þriðjudag, 28. júní. Ellefu aðalmenn og átta varamenn eiga sæti í starfs­hópnum, en hann skipa:

Aðalmenn:

Dagný Jóns­dóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, forsætis­ráðuneyti

Áshildur Linnet, félags- og vinnu­markaðs­ráðuneyti

Hákon Þorsteinsson, dómsmála­ráðuneyti

Jón Fannar Kolbeinsson, Jafnréttis­stofu

Lenya Rún Taha Karim, skipuð án tilnefningar, forsætis­ráðuneyti

Margrét Steinars­dóttir, Mann­réttinda­skrifstofu Íslands

Nichole Leigh Mosty, Fjöl­menningar­setri

Ólafur Örn Bragason, embætti ríkis­lögreglu­stjóra

Rán Ingvars­dóttir, skipuð án tilnefningar, forsætis­ráðuneyti

Stefán Snær Stef­ánsson, mennta- og barnamála­ráðuneyti

Þórður Kristjánsson, Sambandi íslenskra sveitar­félaga

Varamenn:

Anna Lilja Björns­dóttir, Jafnréttis­stofu

Donata Honkowicz Bukowska, mennta- og barnamála­ráðuneyti

Eyrún Eyþórs­dóttir, embætti ríkis­lögreglu­stjóra

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, Mann­réttinda­skrifstofu Íslands

Kristín Jóns­dóttir, dómsmála­ráðuneyti

Kristín Ólafs­dóttir, Sambandi íslenskra sveitar­félaga

Linda Dröfn Gunnars­dóttir, Fjöl­menningar­setri

Stefán Daníel Jónsson, félags- og vinnu­markaðs­ráðuneyti

Var lofað góðu samráði við hagsmunahópa

Meg­in­hlut­verk hóps­ins verður að skoða hvort stjórn­völd skuli setja fram heild­stæða áætlun um sam­hæfðar aðgerðir stjórn­valda gegn hat­urs­orð­ræðu.

Í því skyni verður starfs­hópnum falið að gera til­lögur um útfærslu á aðgerðum sem miði að því að vinna gegn hat­urs­orð­ræðu í íslensku sam­fé­lagi, til dæmis í formi vit­unda­vakn­ing­ar­her­ferðar eða ann­arra aðgerða. Sam­ráð verði haft við hags­muna­sam­tök í vinnu starfs­hóps­ins.

„Ég er fyrst og fremst þakklát að það hafi verið hlustað á kröfur þeirra hópa sem kölluðu eftir úrbótum í málefnum sem varða haturs­orðræðu og að mér sé treyst fyrir setu í starfs­hópnum,“ segir Lenya í samtali við Kjarnann.

Að hennar mati samanstendur hópurinn af fagfólki en hún segir mikilvægt að haft verði ríkt samráð við hagsmuna­hópa.

„Þessi starfs­hópur er saman­settur af fagfólki sem mun takast á við þetta flókna verkefni af fagmennsku og á lausna­miðaðan hátt, eins lengi og það sé haft gott samráð við viðeigandi hópa, eins og mér var lofað við skipun þessa hóps. Ég mun allavega beita mér fyrir því af fullum krafti að allar raddir sem hafa hagsmuna að gæta fái að koma sínum sjónar­miðum á framfæri innan hópsins og stuðla að ríku samráði,“ segir Lenya.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár