Miðflokkurinn í aðildarferli hjá Evrópuflokki

Flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar sækist eftir aðild að ECR, flokki íhalds­manna og umbóta­sinna á Evrópu­þinginu, sem Repúblikana­flokkur Donald Trump og Likud-flokkur Benjamins Netanyahu eiga aukaaðild að.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Formaður Mið­flokks­ins flutti loka­ávarp Nostos ráð­stefn­unnar í Helsinki 2023 en í bak­grunni er mynd af Ronald Reagan, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta.

Miðflokkurinn er í aðildar­ferli hjá ECR, Evrópu­flokki íhalds­manna og umbóta­sinna, samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar.

ECR er flokkur íhalds­samra stjórn­málaflokka á Evrópu­þinginu sem vilja breyta Evrópu­sambandinu til að draga úr umsvifum þess. Á meðal aðildar­flokka eru Lög og regla í Póllandi, Bræðralag Ítalíu, sem er flokkur Giorgiu Meloni forsætis­ráðherra, og Svíþjóðar­demókratar. Á heimsvísu eru Repúblikana­flokkur Donalds Trump í Banda­ríkjunum og Likud, flokkur Benjamins Netanyahu í Ísrael í flokka­samstarfi með ECR.

Hvorki forysta Miðflokksins né ECR-flokkurinn sjálfur hafa svarað spurningum Heimildarinnar um hver staða flokksins sé innan ECR eins og stendur.

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    En og aftur er merkilegt hvað litlar mannvits brekkur eru viljugar til að viðhalda misvæginu í heiminum og það stórar hluti þeirra á opinberum launum eða styrjum.
    3
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mjög áhugavert og fróðlegt innlegg í umræðunni
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokksins við MAGA-hreyfinguna „full­kominn þvætting“ en staðfesti fund sinn með Repúblikönum í Gautaborg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokkinn og Heritage Foundation en eftir standa spurningar um hver borgaði.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár