Engin siðmenning án íhaldsstefnu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, ávarpaði ráðstefnu flokks Giorgiu Meloni, forsætis­ráðherra Ítalíu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Franski Evr­ópu­þing­mað­ur­inn Marion Maréchal deildi svið­inu með for­manni Mið­flokks­ins en hún var of hægrisinnuð fyrir flokk­inn sem afi hennar, Jean-Marie Le Pen, stofn­aði.

Það væri engin siðmenning eða framþróun án íhalds­stefnu í heiminum, að mati Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, formanns Miðflokksins.

Sigmundur Davíð var gestur á ráðstefnunni Atreju í Róm um helgina en hún er haldin af flokki Giorgiu Meloni, forsætis­ráðherra Ítalíu, sem heitir Fratelli d'Italia, eða Bræðralag Ítalíu.

Fundinn sótti einnig hópur fólks úr röðum Ungra Miðflokks­manna en á meðal fundar­gesta var einnig Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus.

Var Sigmundur Davíð þátt­takandi í pallborðs­umræðum á föstudags­kvöld um áskoranir íhalds­manna. Með honum voru ýmsir leiðtogar ECR flokka í Evrópu frá Póllandi, Rúmeníu, Danmörku og Frakk­landi. ECR hópurinn er samband íhalds- og þjóðernis­flokka, þar á meðal Svíþjóðar­demókrata í Svíþjóð, Laga og réttlætis í Póllandi og flokks Meloni eins og áður segir. Á heimsvísu eru Repúblikana­flokkur Donalds Trump í Banda­ríkjunum og Likud, flokkur Benjamins Netanyahu í Ísrael í flokka­samstarfi með ECR.

Giorgia MeloniFlokkur for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu stóð fyrir …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Eyjólfsson skrifaði
    Sigmundur Fonseca er á heimaslóðum þarna með fasistum andskotans. Hvað var í bjórnum á Klausurbar ?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár