Neitar að svara þingnefnd um „hið svokallaða „lekamál““

Hanna Birna vill aftur á þing en ætlar ekki að gera hreint fyrir sínum dyrum á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar

Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra, vill setjast aftur á þing í apríl en neitar hins vegar að koma á fund stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis til að svara spurningum um lekamálið og framgöngu sína gagnvart þingheimi. Þetta kemur fram í bréfi sem nefndinni barst í dag.

Eins og var marg­staðfest, bæði með dómum héraðs­dóms og Hæstaréttar í fyrra og áliti umboðs­manns Alþingis í janúar, fór Hanna Birna ítrekað með rangt mál þegar rætt var um lekamálið á Alþingi.

Ögmundur Jónasson, formaður nefndarinnar, sendi Hönnu Birnu bréf í janúar síðastliðinn í kjölfar þess að umboðs­maður Alþingis kynnti nefndinni álit sitt um að ráðherrann hefði misnotað vald sitt með ítrekuðum afskiptum af lögreglu­rannsókn leka­málsins og störfum Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­verandi lögreglu­stjóra.

Þing­nefndin hefur beðið eftir svari vikum saman en RÚV greindi frá því í dag að Hanna Birna hefði svarað bréfinu og afþakkað fundar­boðið. 

Milljóna­kostnaður 
Hanna Birna tók sér leyfi frá þing­störfum í lok síðasta þings og þiggur nú biðlaun ráðherra, en þau eru jafnhá ráðherra­launum eða um 1,1 milljón á mánuði. Í ljósi þess að Hanna Birna er í fríi þarf einnig að greiða vara­þingmanni hennar, Sigríði Á. Andersen, þing­fararkaup. Þannig hefur Alþingi greitt tvöföld þinglaun undan­farna mánuði vegna leyfis Hönnu Birnu.

Fram kom þann 10. mars síðastliðinn að innan­ríkis­ráðuneytið hefði greitt markaðs­stofunni Argus ehf. 2,4 milljónir króna vegna ráðgjafar í tengslum við lekamálið á árinu 2014. Hjálpaði fyrir­tækið Hönnu Birnu að bæta ímynd sína í fjöl­miðlum. Lögfræði­ráðgjöfin sem fyrr­verandi ráðherra fékk var einnig kostuð af skatt­greiðendum, en lögmanns­stofan LEX fékk rúmlega eina milljón króna fyrir þjónustu sína. Alls nam beinn kostnaður ráðuneytisins vegna aðkeyptrar ráðgjafar vegna leka­málsins tæpum 3,5 milljónum króna.

Ef meta ætti fjárhags­legan kostnað leka­málsins er þetta auðvitað aðeins brotabrot af honum, ekki síst þegar litið er til dómsmála og rann­sóknar lögreglu, ríkis­saksóknara, umboðs­manns og Persónu­verndar. 

Svokallað „lekamál“
Í bréfinu sem Ögmundur sendi fyrir hönd stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í janúar kom fram að mörgum þing­mönnum hefðu þótt full­yrðingar hennar um lekamálið í þingsal mótsagna­kenndar og ekki geta staðist. Í svarbréfi sínu segir Hanna Birna meðal annars: „Þar sem mér hefur nú borist ítrekun þar sem óskað er svars eigi síðar en 17. mars nk. og ég kem ekki til þing­starfa fyrr en eftir miðjan apríl, vísa ég til þeirra upplýsinga og gagna sem þegar liggja fyrir í umræddu máli.“ 

Þá segist hún „óska nefndinni velfarnaðar í sínum störfum“ og talar um lekamálið innan gæsalappa sem „hið svokallaða „lekamál““.  Þannig skrifar hún í upphafi bréfsins: „Vísað er til bréfs stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, undir­ritað af Ögmundi Jónassyni, þar sem mér, sem fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra, er boðið að koma á fund nefndarinnar til að gera grein fyrir sýn minni á hið svokallaða „lekamál“.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár