Gyðinglegum friðarsamtökum neitað inngöngu í Ísrael

Meðlimir í friðar­samtökunum Jewish voice for peace eru komnir á svartan lista hjá ísraelskum stjórn­völdum og mega þar af leiðandi ekki fara inn í landið. Nítján önnur samtök eru á listanum.

Jewish voice for peace mótmæla í Seattle árið 2007.
Jewish voice for peace mót­mæla í Seattle árið 2007. Mynd: Wiki Commons

Ísraelsk stjórn­völd birtu síðastliðinn sunnudag lista yfir þau samtök sem fá ekki að koma inn fyrir landamæri þeirra. Svonefndur BDS-bannlisti var gefinn út af öryggismála­ráðuneyti Ísraels [sem stofnað var árið 2006 til að fást við meinta erlenda ógnvalda eins og Íran]. Friðar­samtökin Jewish Voice for Peace eru á þessum lista.

Frá þessu er greint á ísraelska frétta­miðlinum Haaretz.

Meðlimum þeirra 20 landa sem eru á listanum verður varnað inngöngu í landið vegna stuðnings þeirra við hreyfinguna sem stendur fyrir sniðgöngu ísraelskra vara, fjár­losunar­aðgerðum úr landinu og efnahags­legu refsiaðgerðum gegn ísraelsku stjórninni (BDS). Á listanum er fyrst og fremst að finna samtök frá Evrópu og Norður-Ameríku, auk hópa frá rómönsku Ameríku, hóps frá Suður Afríku og alþjóðlegra regnhlífar­samtaka.

Nóbelsverðlaunahafi á listanum

Nafn samtak­anna American Friends Services Committee, kvekara­samtaka sem hlutu Friðar­verðlaun Nóbels árið 1947 fyrir að aðstoða og bjarga fólki sem nasistarnir ofsóttu, er að finna á listanum yfir þau samtök sem ísraelsk stjórn­völd hafa lýst yfir að þau muni neita um aðgang inn í landið. Á laugar­daginn var búið að koma í ljós að gyðinglegu friðar­samtökin Jewish Voice for Peace (JVP) voru á listanum.

„Sú ákvörðun Ísraels­manna að banna JVP sérstak­lega að koma inn í landið er áhyggju­efni en kemur ekki á óvart í ljósi hrörnunar á lýðræðis­legum viðmiðum og aukinnar hræðslu í garð BDS-hreyfingarinnar í Ísrael,“ sagði Rebecca Vilkomerson, framkvæmda­stjóri samtak­anna. „Við látum ekki kúga okkur til hlýðni með þessum tilraunum til að refsa okkur fyrir heilbrigð stjórnmálaleg sjónarmið sem eru að öðlast stuðning æ fleiri gyðinga og annars fólks víðs vegar um veröldina.“

Segjast snúa vörn í sókn

öryggismála­ráðherrann Gilat Erdan sagði að Ísraelar hefði snúið vörn í sókn. „Sniðgöngu­samtökin þurfa að vita að ísraelska ríkið mun streitast á móti þeim og ekki leyfa þeim að fara inn á landsvæði þess til að vinna borgurum þess mein.“

„Ekkert land myndi leyfa gagn­rýnendum sínum að koma inn í landið til að vinna landinu mein,“ bætti hann við.

Innan­ríkis­ráðherrann Arye Dery - en ráðuneyti hans verður gert að fram­fylgja listanum - sagði að þetta fólk væri að reyna að notfæra sér lögin og gestrisni þeirra til að vinna gegn Ísrael og ófrægja landið. „Ég mun vinna gegn þessu með öllum tiltækum ráðum,“ sagði ráðherrann.

Daniel Sokatch, framkvæmda­stjóri samtak­anna New Israel Fund, svaraði á þennan veg. „Það að banna stjórnmála­lega andstöðu er háttalag alræðis­stjórna, ekki lýðræðis­stjórna,“ sagði hann og bætti við að afstaða þeirra væri byggð á heilindum. „Við styðjum ekki BDS-hreyfinguna. Við stöndum gegn ferða­banni ríkis­stjórnarinnar og öllu því sem hún gerir til að refsa þeim sem hún er ósammála.“

Fólki áður verið neitað inngöngu

Áður hefur nokkrum einstaklingum verið neitað um aðgang inn í Ísrael vegna stuðnings þeirra við BDS-hreyfinguna. Isabel Phiri, malavískum ríkis­borgara sem býr í Sviss og er stofn­meðlimur í samtökunum World Council of Churches, var komið fyrir í flugi aftur til síns heima eftir að hún lenti á Ben-Gurion flug­vellinum í desember árið 2016.

Innflytjenda­stofnun innan­ríkis­ráðuneytisins sagði að það hefði verið í fyrsta sinn sem ísraelska ríkið væri beinlínis að neita ferða­manni um aðgang inn í landið „fyrir and-ísraelskar aðgerðir og fyrir stuðning hans við sniðgöngu­aðgerðir gegn landinu á sviði fjármála, menningar­mála og mennta­mála.“

Neituðu á gefa upp listann

Mánuðum saman hefur öryggismála­ráðuneytið neitað að gefa það út hvaða samtök væru á listanum. Þó voru teymi úr öryggismála­ráðuneytinu og innan­ríkis­ráðuneytinu búin að draga upp þær forsendur sem yrðu notaðar til þess að banna aðgerðar­sinnum að koma inn í landið.

Þeim sem eru hátt settir í þeim samtökum sem eru á listanum verður meinaður aðgangur inn í landið, en einnig virkum aðgerðar­sinnum innan samtak­anna hvort sem þeir gegna einhverju embætti þar eður ei. Borgar­stjórum og öðrum stjórn­endum sem styðja sniðgöngu­aðgerðir statt og stöðugt verður líka neitað um aðgang inn í landið, sem og aðgerðar­sinnum sem koma til landsins á vegum einhverra samtaka á bann­listanum eða sem hluti af sendi­nefnd sem eitt þeirra samtaka hefur átt frumkvæði að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár