Google hættir við leitarvél sem ritskoðar

Google hefur form­lega hætt við leit­ar­vél­ina Dragon­fly sem átti að vera sér­stök leit­ar­vél fyrir kín­verskan markað. Leit­ar­vél­inni var ætlað að rit­skoða efni í sam­vinnu við kín­versk stjórn­völd og var í kjöl­farið harð­lega gagn­rýnd.

Fram­kvæmda­stjóri Google, Karan Bhatia, hefur nú form­lega stað­fest að hætt hafi verið við fram­leiðslu Dragon­fly leit­ar­vél­ar­innar sem er í fyrsta sinn sem það hefur verið stað­fest opin­ber­lega. Blaða­menn the Intercept ljóstr­uðu upp um leit­ar­vél­ina, en áður hafði mikil leynd hvílt yfir verk­efn­inu.

Skjölin sem blaða­menn­irnir komust yfir sýndu fram á að leit­ar­vélin myndi koma í veg fyrir að hægt væri að skoða ákveðnar vef­síður og leit­ar­orð um mann­rétt­indi, lýð­ræði, trú­ar­brögð og frið­sæl mót­mæli. Í kjöl­farið hefur Google verið harð­lega gagn­rýnt og gagn­rýnendur bent á að leit­ar­vélin gæti nýst kín­verskum yfir­völdum til að stjórna hvað not­endur gætu skoðað og lesið.

Starfsmenn Google ósáttir við leitarvélina

Hundruð starfs­manna Google hafa skrifað undir opin­bert bréf þar sem Dragon­fly verk­efnið er for­dæmt. Starfs­menn­irnir vilja ekki að tækni verði notuð gegn fólki. Leit­ar­vélin gæti orðið for­dæm­is­gef­andi og erf­ið­ara yrði fyrir Google að neita öðrum ríkjum en Kína um hið sama. Þeir taka jafn­framt undir gagn­rýni mann­rétt­inda­sam­tak­anna Amnesty International sem hafa for­dæmt leit­ar­vél­ina.

Íslands­deild Amnesty International sendi til­kynn­ingu frá sér í gær þar sem fagnað var að hætt hefði verið við Dragon­fly. Íslands­deildin tók málið upp í netá­kalli og SMS-aðgerða­neti í des­em­ber 2018 þar sem kraf­ist var að fallið yrði frá verk­efn­inu, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni. Samkvæmt Íslands­deild Amnesty International átti kín­verskum not­endum Dragon­fly að vera mein­aður aðgangur að vef­síðum eins og Facebook og Wikipedia, auk þess sem leit­ar­orð eins og „mann­rétt­indi“ yrðu bönnuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár