5 leiðir að innsæinu

Innsæið er teng­ing okkar við und­ir­vit­und­ina og ákvarð­anir okkar eru að stærstum hluta byggðar á því. Þess vegna er svo mik­il­vægt að læra að þekkja það. Þetta segir Hrund Gunn­steins­dóttir, annar tveggja leik­stjóra heim­ild­ar­mynd­ar­innar InnSæi. Hún gefur les­endum fimm góð ráð til að finna veg­vís­inn að sínu eigin inn­sæi.

Stilla úr InnSæi
Stilla úr InnSæi Nið­ur­staða heim­ild­ar­mynd­ar­innar er að inn­sæið sé lyk­ill­inn að þeim sköp­un­ar­krafti sem nauð­syn­legur er til að takast á við sam­fé­lag nútím­ans og fram­tíð­ar­innar.

Innsæið er teng­ing okkar við und­ir­vit­und­ina, sem tekur við miklu meiri upp­lýs­ingum en okkar vak­andi hugur,“ segir Hrund Gunn­steins­dóttir, annar tveggja leik­stjóra heim­ild­ar­mynd­ar­innar InnSæi. „Þetta þýðir að okkar ein­beitti, vak­andi hugur er hæg­ari og nemur aðeins brota­brot af því sem við erum að nema með allri með­vit­und­inni. Ákvarð­anir sem við tökum eru að stærstum hluta byggðar á inn­sæi. Þess vegna er svo mik­il­vægt að læra að þekkja það.“ 

Hægt er að æfa sig í því að finna inn­sæið, hlusta á það og taka til­lit til þess í dag­legu amstri. InnSæi fjallar öðrum þræði um reynslu Hrundar en hún er sögu­maður mynd­ar­innar og hand­rits­höf­undur. Sjálf keyrði hún sig út á yngri árum og fann, þegar hún var að byggja sig upp aftur, leið­ina að inn­sæi sínu. Hér á eftir fara ráð hennar fimm. 


1.
Athygli okkar er lyk­ill­inn að inn­sæ­inu. Veittu því athygli sem þú veitir athygli og haltu því til haga. Athyglin er auð­lind af skornum skammti í nútíma­sam­fé­lagi sem ein­kenn­ist af hraða og áreiti. Athygli okkar er á víð og dreif og við erum stöðugt að taka eftir, bregð­ast við, taka inn alls konar upp­lýs­ingar, t.d. gegnum fjöl­miðla, skemmti­efni, sam­ræður og inter­netið. Við veitum mörgu athygli í dag­legu lífi – en erum við með­vituð um hvað það er sem við erum að taka eftir? Með öllum lík­am­anum? Heyrum við í inn­sæ­inu í öllum lát­unum? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár