Brottrekinn forstjóri Boeing fær 7,7 milljarða

Fyrr­verandi forstjóri Boeing mun ekki fara tómhentur frá borði, þrátt fyrir að hafa verið rekinn vegna mikils vandræða­gangs fyrir­tækisins. Nýi forstjórinn fær hátt í milljarð króna í bónus takist honum að koma 737 Max vélunum aftur í loftið.

Dennis A. Muilenberg.
Dennis A. Mui­len­berg. Mynd: Úr safni.

Dennis A. Muilenburg, sem var rekinn úr forstjóra­stóli flugvéla­fram­leiðandans Boeing í desember síðastliðnum, mun fá 62,2 milljónir dali, tæplega 7,7 milljarða króna, í formi hluta­bréfa og lífeyris­réttinda að skilnaði.

Fyrir­tækið greindi frá þessu í gær. Samkvæmt frásögn The New York Times mun Muilenburg hins vegar ekki fá neinar viðbótar starfsloka­greiðslur vegna brott­reksturs síns og Boeing segir að hann hafi gefið eftir viðbótar hlutabréfa­hlunnindi sem metin séu á 14,6 milljónir dali, um 1,8 milljarð króna.

Háar greiðslur Boeing til Muilenburg hafa verið harðlega gagn­rýndar af stjórn­málamönnum í Banda­ríkjunum. Öldungar­deildar­þing­maðurinn Elizabeth Warren, sem sækist eftir því að verða forseta­efni demókrata í forseta­kosningunum síðar á þessu ári, kallaði greiðslurnar til Muilenburg hreina og klára spillingu í stöðu­uppfærslu á Facebook.

Greint var frá því á Þorláks­messu að Muilenburg, sem hafði starfað hjá Boeing í 35 ár, hefði verið rekinn úr starfi. Ástæðan var fyrst og síð­ast ábyrgðin sem for­stjór­inn ber á vand­ræða­gangi Boeing og alvar­legum hönn­un­ar­göllum í fram­leiðslu hjá félag­inu, meðal ann­ars á 737 Max vél­un­um, en talið er að gallar í bún­aði vél­anna hafi verið orsökin fyrir því að tvær slíkar vélar tog­uð­ust til jarð­ar, í Indónesíu og Eþíóp­íu, með þeim afleið­ingum að 346 létu­st, allir um borð.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefndar í fyrra slys­inu, sem varð 29. októ­ber 2018 í Indónesíu, var sú að gallar í MCAS kerfi vél­ar­inn­ar, sem á að sporna gegn ofrisi, hafi leitt til þess að vélin tog­að­ist til jarðar með skelfi­legum afleið­ing­um. Þá komst rann­sókn­ar­nefndin enn fremur af því að Boeing hefði reynt að hylma yfir galla í vél­un­um.

Ennþá er verið að rann­saka seinna slysið í Eþíóp­íu, en sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum er talið að orsökin hafi verið sú sama og í slys­inu í Indónesíu.

Banda­ríkja­þing hefur fram­ferði Boeing til rann­sókn­ar, og það sama á við um alrík­is­lög­regl­una FBI.

Boeing er stærsta útflutn­ings­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna, og stærsti flug­véla­fram­leið­andi heims. Þá er félagið einn stærsti her­gagna­fram­leið­andi heims­ins, og fram­leiðir auk þess vélar­parta fyrir flug- og geim­iðn­að.

Alþjóð­leg kyrr­setn­ing á 737 Max vélunum, sem staðið hefur yfir frá því í mars á síðasta ári, hefur haft miklar afleið­ingar fyrir Boeing, við­skipta­vini þess og jafn­vel heilu þjóð­rík­in, eins og í til­felli Íslands. Icelandair hefur lent í miklum hremm­ingum vegna kyrr­setn­ing­ar­innar á Max vél­un­um, en ekki liggur fyrir hvenær henni verður aflétt. Gert er ráð fyrir að það verði ekki fyrr en á vor­mán­uðum næsta árs, en óvissa ríkir þó um það.

David Calhoun, sem tók við forstjóra­starfinu hjá Boeing, mun fá bónus­greiðslu upp á sjö milljónir dali, um 860 milljónir króna, ef honum tekst að koma 737 Max vélunum aftur í loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár