Utanríkisráðherra Þýskalands: Hlutverk Bandaríkjanna hefur varanlega breyst

Utan­ríkis­ráðherra Þýska­lands segir Trump Bandaríkja­forseta hafa varanlega breytt stöðu Banda­ríkjanna. Hann hafi stór­skaðað alþjóða­samvinnu, og gefi út skilaboð um að þjóðir heimsins þurfi að bjarga sér sjálfar.

Sigmar Gabriel, utan­ríkis­ráðherra Þýska­lands, segir að breytt stefna í utan­ríkismálum Banda­ríkjanna muni hafa varanleg áhrif á alþjóða­stjórnmál. Staðan muni ekki breyast eftir næstu kosningar í Banda­ríkjunum, hvort sem það verður Donald J. Trump sem verður endur­kjörinn eða ekki.

Staðan sé sú, að þjóðir heimsins geti ekki lengur litið til Banda­ríkjanna sem leiðtoga í því að halda alþjóða­samstarfi um varnir og önnur mikilvæg mál á oddinum.

Eftir að Trump varð forseti Banda­ríkjanna hefur hann öðru fremur horft til þess að Banda­ríkin hugsi fyrst og síðast um sína eigin hagsmuni, en geri kröfu um að aðrir þjóðir borgi fyrir það þegar horft er til Banda­ríkjanna til að gæta öryggis í heiminum.

Þá hefur Trump einnig beitt sér fyrir því að Banda­ríkin hugsi öðru fremur um eigin hagsmuni þegar kemur að alþjóð­legum viðskiptum, og hefur meðal annars slitið Banda­ríkin út úr alþjóða­pólitísku samstarfi um viðskipta­samninga og umhverfismál. Þannig er Banda­ríkin eina landið í heiminum sem hefur slitið sig frá Parísar­samkomu­laginu.

Gabriel segir að Þýskaland þurfi að horfa til Banda­ríkjanna sem banda­manns þegar kemur að alþjóð­legum viðskiptum. En eins og mál hafi verið að þróast, þá sé sýnin á málin gjörólík því sem nú sé ofan hjá Banda­ríkjunum.

Samkvæmt umfjöllun Reuters nefndi hann sem dæmi aðgerðir sem grafa undan kjarnorku­áætlun Íran, sértækar viðskipta­hindranir gagnvart Rússum sem í reynd ógni orku­öryggi Þýska­lands, ógnandi yfir­lýsingar vegna spennu á Kóreu­skaga, ummæli sem draga úr samstöðu NATO ríkja og þá talaði hann alfarið gegn yfir­lýsingum um að Jerúsalem verði höfuðborg Ísraels.

Slíkt geti grafið undan friðar­ferli, á viðkvæmum tímum, og leitt til meiri erfið­leika. Eins og kunnugt er hefur Trump þegar stigið það skref, að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels, og verður sendiráð landsins flutt þangað í nánustu framtíð. Þessi ákvörðun hefur mætt mikilli andstöðu víða um heim, og fer neyðar­fundur fram í öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna vegna hennar á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár