Mikil niðursveifla á alþjóðamörkuðum

Hræðsla við hækkun vaxta muni er sögð megin­orsökin að baki óvenju­lega mikillar lækkunar á hluta­bréfum í dag, segir Wall Street Journal.

Hlutabréfa­verð hrundi á alþjóða­mörkuðum í dag og segir í Wall Street Journal, að fjár­festar horfi til þess að hækkandi vaxtastig og verðbólga, hafi verið ein ástæða þess að vísitölur féllu nær alls staðar.

Í Banda­ríkjunum féll Dow Jones vísitalan um 2,5 prósent og í bæði Evrópu og Asíu lækkuðu vísitölur á bilinu 1 til 2,5 prósent.

Lækkunin kom hins vegar ekki úr lausu lofti, þar sem töluverð umræða hefur verið um í fjöl­miðlum í Banda­ríkjunum að undan­förnu, að hlutabréfa­verð sé sögulega hátt, og líklegt sé að einhvers konar leið­rétting geti komið fram á markaðnum til lengdar.

Þannig lét yfirmaður hjá Goldman Sachs hafa eftir sér á dögunum, að tölu­verðar líkur væru á því að verð myndi lækka skarpt á næstunni. Sagði hann markaðinn hafa mörg einkenni þess að helstu verð­kennitölur væru „bólgnar“ og ekki ólíklegt að töluverð lækkun kæmi fram á næstunni.

Sagði hann meðal annars að sagan sýndi, að verð gæti lækkað um 13 prósent að meðaltali yfir fjögurra mánaða tímabil, í dæmi­gerðri leið­réttingu á markaði þar sem verð væru orðin of há. Byggði hann þetta á sögulegum gögnum frá Goldman Sachs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár