Gleðst í hvert skipti sem ég sé hann

Þegar Lars Mortensen frétti af fuglum hér á landi sem hafa varla sést í Evrópu skipulagði hann strax ferð hingað. Alla daga fylgist hann vel með fuglum og gleðst í hvert sinn sem hann sér sinn uppáhalds­fugl.

Ég bý í Danmörku þar sem ég vinn með fötluðu fólki, en allt frá því að ég var krakki hef ég haft mikinn áhuga á fuglum og fugla­skoðun. Ég kom hingað til þess að sjá tvo mjög sjaldgæfa fugla, farfugla sem hafa villst hingað frá Banda­ríkjunum á leiðinni til Mexíkó. Þetta er í annað og fjórða skipti sem þessir fuglar sjást í Evrópu svo þetta er virkilega sjaldgæft. Einn þeirra er hér í kringum Reykjavík en hinn er búinn að koma sér fyrir í Mæðra­garðinum við Tjörnina. Um leið og ég frétti af þeim fór ég að skipuleggja ferð hingað til þess að sjá þá og var kominn fimm dögum síðar.

Einn af kostunum við þetta sem áhugamál er að fuglar eru alls staðar í heiminum. Hvar sem þú ert getur þú fylgst með fuglum, hlustað á þá syngja og leyft þeim að vera partur af þínu lífi. Á …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SS
    Sveinn Sveinbjörnsson skrifaði
    Hvaða fuglategundir eru þetta? Ég er mjög forvitinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár