Sjö orð sem skilgreindu árið 2022

Á ritstjórn Kjarnans voru nú í lok ársins tekin saman sjö orð, sem hvert um sig skilgreindu árið 2022 með sínum hætti.

Á ritstjórn Kjarnans voru nú í lok ársins tekin saman sjö orð, sem hvert um sig skilgreindu árið 2022 með sínum hætti. Listinn er að sjálfsögðu ekki tæmandi.

fagfjárfestir

Ríkið hélt áfram að selja hlut sinn í Íslands­banka undir lok síðasta vetrar sem kunnugt er og hefur sú sala ekki verið án eftirmála. Til stendur að leggja niður Banka­sýslu ríkisins, búið er að liggja yfir ítarlegri skýrslu ríkis­endur­skoðanda um málið og fjármála­eftirlit Seðla­bankans athugar enn ákveðna þætti í ferlinu.

Orðið fagfjárfestir er eitt þeirra sem varð nokkuð fyrirferðar­mikið í umræðu um söluna. Niður­staða Ríkis­endur­skoðunar var að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýslan hefðu ekki upplýst nægi­lega vel hvað fólst í settum skil­yrðum um „hæfa fjár­festa“ við söl­una í Íslands­banka. Upp­lýs­ingar um hvort fjár­festar væru hæfir byggðu í ein­hverjum til­fellum á upp­lýs­ingum frá þeim sjálf­um, en eng­inn mið­lægur gagna­grunnur er til um slíka fjár­festa á Íslandi. Mat sölu­ráð­gjafa á hæfi fjár­festa sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

kynþáttamörkun

Orðið kynþátta­mörkun er íslensk þýðing á enska hugtakinu racial profiling, sem kom inn í umræðuna hér á landi í vor í kjölfar þess að sami unglings­pilturinn þurfti í tvígang að sæta afskiptum lögreglu, einu sinni í strætis­vagni og svo aftur þar sem hann sat í bakarí með móður sinni.

Með hugtakinu er átt við það þegar kyn­þáttur og/eða húð­litur er not­aður til þess að skil­greina ein­stak­linga eða hópa fólks og mis­munun gagn­vart þeim rétt­lætt á þeim for­send­um.

„Slík flokkun fólks bygg­ist oft á ómeð­vit­aðri hlut­drægni. Í lög­gæslu birt­ist þetta með þeim hætti að ein­stak­lingur eða hópur fólks er grun­aður um sak­næmt athæfi vegna kyn­þáttar og/eða húð­litar frekar en sönn­un­ar­gagna. Ýmsar þýð­ingar hafa komið fram á racial profil­ing, t.d. kyn­þátta­miðuð lög­gæsla, kyn­þátta­miðuð grein­ing, kyn­þátta­blóri og sjálf­sagt fleiri. Við teljum ekk­ert þess­ara orða heppi­legt en mik­il­vægt að hafa gott íslenskt orð um þetta hug­tak,“ skrifuðu þau Claudia Ashanie Wilson, Eiríkur Rögnvaldsson, Eliza Reid, Eyrún Ólöf Sigurðar­dóttir, Gísli Pálsson og Sema Erla Serdaroglu í aðsendri grein sem birtist á vef Kjarnans í maí.

stýrivaxtahækkun

Ekki er hægt að horfa fram hjá orðinu stýri­vaxtahækkun þegar litið er yfir árið 2022. Síðasta vaxta­hækkun bankans, þann 23. nóvember, setti megin­vexti bankans upp í 6 prósent, og vaxta­hækkanir bankans eru nú orðnar tíu í röð.

Aðgengi lands­manna að peningum til láns er allt annað en það var í upphafi árs, þegar stýri­vextir Seðla­bankans voru einungis 2 prósentu­stig.

innrás

Á alþjóða­sviðinu hefur fátt farið hærra en innrás Rússa í Úkraínu. Milljónir hafa þurft að leggja á flótta, heilu borgunum hefur verið rústað, en Úkraínu­menn, með stuðningi ríkja Atlantshafs­banda­lagsins, berjast enn fyrir landi sínu.

spretthópur

Á vettvangi íslenskra stjórn­mála eru oftar en ekki margir starfs­hópar að störfum, að mestu skipaðir af ráðherrum, fulltrúum framkvæmda­valdsins, til þess að skoða hin eða þessi mál ofan í kjölinn og leggja fram tillögur að úrbótum eða stefnum á einhverjum sviðum.

Nýtt orð bættist í orða­forðann á þessu ári, nefnilega sprett­hópur, en það er starfs­hópur sem á að vinna tiltekin mál sem þykja einkar áríðandi hraðar en venjan er með starfs­hópa, sem venjulega fá nokkuð rúman tíma til að vinna.

Fyrsti sprett­hópurinn tókst á við alvarlega stöðu í matvæla­framleiðslu á Íslandi og þótti standa undir nafni með kvikum aðgerðum. Síðan þá hafa fleiri sprett­hópar verið stofnaðir, til dæmis einn sprett­hópur sérfræðingur um hvort nýtt hverfi í Skerja­firði ógni flug­vellinum í Vatns­mýrinni og sprett­hópur á vegum borgarinnar um hávaða frá skemmtana­lífi í miðbænum. Lítið hefur þó heyrst frá þeim sprett­hópum, og óljóst hvort þeir muni standa undir nafni.

saurloft

Ástand skóla- og leik­skóla­húsnæðis í Reykja­víkurborg, og raunar öðrum sveitar­félögum höfuð­borgar­svæðisins einnig, hefur verið nokkuð í deiglunni á árinu. Í einhverjum tilfellum virðist viðhaldi hafa verið verulega ábótavant og forsíðu­frétt Frétta­blaðsins skömmu fyrir jól, þar sem orðið saurloft kom fyrir í fyrirsögn, kristallar ef til vill vandann.

Þar var sagt frá því að aðalorsök slæmra loftgæða á leik­skólanum Granda­borg í Vestur­bænum, sem í dag starfar á þremur mismun­andi stöðum í borginni, væri skrið­kjallari undir skóla­byggingunni og hönnun á loftræstikerfi þess.

„Ennfremur kom í ljós að skólprör hafði farið í sundur vegna þess að húsið hefur sigið á liðnum árum. Þar af leiðandi hafði skólp seytlað ofan í jarðveg í kjallaranum. Loftræstikerfið blæs svo lofti úr kjallaranum, upp í húsnæði leik­skólans,“ sagði í minnis­blaði sem tekið var saman af skóla- og frístunda­sviði borgarinnar.

vindorkuver

Á árinu voru sett fram áform um fjöldamörg vind­orkuver á Íslandi og eru sveitar­félög vítt og breitt um landið að skoða slík mál. Hvað framtíðin ber í skauti sér í þessum efnum er nokkuð óljóst, en ljóst er að umræðan um beislun vind­orkunnar á Íslandi er komin til að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár