Bank of America veðjar á Dublin

Bandaríski risa­bankinn hefur til þessa verið með aðal­bækistöð sína í Evrópu, í fjármála­hverfinu í London.

Bandaríski bankinn Bank Of America ætlar sér að stýra starfsemi sinni í Evrópu frá Dublin í nánustu framtíð, en um þetta tilkynnti bankinn í gær. Með þessu er bankinn að bregðast við Brexit-áformum breskra stjórn­valda, en Bank Of America hefur verið með höfuð­starfsemi sína í Evrópu í City hverfinu í London.

Bankinn hefur þó einnig verið með starfsemi í Dublin, og í tilkynningu frá bankanum segir að það sér rökrétt skref að stýra starfseminni í Evrópu frá Dublin. Í dag eru um 700 starfs­menn hjá bankanum í Dublin en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi nokkuð á næstu misserum, að því er fram kemur í New York Times.

Margir alþjóð­legir bankar, bæði evrópskir og bandarískir, hafa verið minnka starfsemi sína í London að undan­förnu, þar sem óvissa ríkir um regluverk og fleiri atriði, þegar til þess kemur að Bretland fari úr Evrópu­sambandinu.

Frönsk og þýsk stjórn­völd hafa lagt hart að stórum fyrir­tækjum að færa starfsemi frá London til þeirra. Þá hafa borgar­yfirvöld í París og Frankfurt gert slíkt hið sama, í þeirri vona að draga til sín tugir þúsund hálauna­starfa, sem fylgja alþjóð­lega fjármála­geiranum.

Markaðs­virði Bank of America er nú 236,2 milljarðar Bandaríkja­dala, en meðal dóttur­félaga bankans er eignar­stýringarisinn Merrill Lynch, sem bankinn eignaðist eftir hrunið á fjármála­mörkuðum, 2007 til 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár