Hamfaraástandi lýst yfir í Florída

Milljónir manna eru án rafmagns eftir að felli­bylurinn Irma gekk á land á Florídaskaga. Þó dregið hafi úr styrk hans eru aðstæður á stórum svæðum sagðar lífs­hættur, vegna vatnselgs. Skemmdir eru gífurlegar.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur lýst yfir hamfara­ástandi á Florída eftir að felli­bylurinn Irma gekk yfir skagann og for upp með vestur­strönd hans í gær og í nótt. Bandarísk yfirvöld vinna nú með ríkis­stjórn Florída að því að kort­leggja stöðuna á hverjum tíma, skipuleggja björgunar­starf og bregðast við vanda­málum sem koma upp.

Ljóst er að tjón er gífurlegt, og eru milljónir manna án rafmagns. Um 6,3 milljónir manna í Miami og víðar í Florída fengu leið­beiningar frá ríkis­stjórn Florída um að yfirgefa heimili sín áður en felli­bylurinn skall á.

Samkvæmt fréttum New York Times er styrkurinn felli­bylsins nú á 1. stigi, en hann var í efsta stigi – 5. stigi – þegar hann koma að Florída. Mikið vatns­veður fylgir honum og flóð eru vítt og breitt um þau svæði þar sem áhrifa felli­bylsins gætti mest.

Mikill undir­búningar og rýmingar björguðu tugþúsundum mannslífa, að því er talið er, en veður­fræðingar stýrðu skipulagi rýminga ásamt ríkis­stjórn Florída í aðdrag­anda þess að felli­bylurinn gekk á land.

Irma olli gífurlegu eigna­tjóni á eyjum í Karíbahafi, þar sem milljónir manna misstu heimili sín og innviðir voru lagðir í rúst. Mikið uppbyggingar­starf bíður þeirra svæða þar sem felli­bylurinn fór yfir. Næstu vikur og mánuði mun koma í ljós hversu mikið tjónið verður, í peningum mælt, í en ljóst þykir að langan tíma muni taka að koma hlutunum í þá stöðu að uppbygging og hefð­bundið daglegt líf geti hafist fyrir alvöru.

Rýmingaráætlanirnir í Miami og nágrenni eru með umfangsmestu aðgerðum sem ríkis­stjórnir Banda­ríkjanna hafa þurft að grípa til vegna náttúru­hamfara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár