Krefjast aðgangs að gögnum sem ráðherra telur „spilla fyrir hugmyndafræðinni“

Jón Þór Ólafsson og Björn Leví Gunnarsson, þingmenn Pírata, kalla eftir upplýsingum frá öllum ráðuneytum um tekjur og gjöld málefna­sviða og áætlaða þróun útgjalda samkvæmt fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar.

Jón Þór Ólafsson og Björn Leví Gunnarsson, þingmenn Pírata, hafa kallað eftir upplýsingum frá öllum ráðuneytum um tekjur og gjöld málefna­sviða og áætlaða þróun útgjalda samkvæmt fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar. Hefur Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, fullyrt að með því að byggja á gögnunum í umræðum um fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar væri í raun verið að „skemma ferlið með fjármála­áætlun“ og „spilla fyrir hugmynda­fræðinni.“

Jón Þór fjallaði um mikilvægi þess að fá upplýsingarnar í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma þann 9. maí síðastliðinn og furðaði sig á að hvorki þingmenn né fasta­nefndir hefðu fengið aðgang að gögnunum. „Án þessara upplýsinga er ómögulegt að taka upplýsta ákvörðun um hvort fjármála­áætlun sé farsæl fyrir landsmenn og hvort vel sé farið með skattfé. Tölurnar liggja fyrir en við fáum ekki aðgang að þeim við þessa ákvarðana­töku,“ sagði hann. 

Benedikt svaraði því til að ráðuneytin legðu fram tillögur um ramma útgjalda­sviða í fjármála­áætlun. Haft væri í huga hver fjár­framlögin hefðu verið í fortíðinni þegar gerðar væru tillögur um einstaka liði. Hann sagðist hins vegar sjálfur ekki hafa „aðgang að þessum gögnum, sundur­liðuðum úr einstökum ráðuneytið“ og bætti við: „Ég hef ekki þessi gögn og í sjálfu sér ef við förum að skipa fyrir um það þá erum við svolítið að skemma ferlið með fjármála­áætlun af því að þar erum við að tala um hinn breiða ramma. En við vitum auðvitað hvernig fénu hefur verið varið til þessa. Það vita allir nokkurn veginn í hvað fjárlög fara.“ Loks varaði Benedikt við því að hugmynda­fræðinni á bak við fjármála­áætlun yrði kastað fyrir róða. „Ég tel að það sé í raun og veru verið að spilla fyrir hugmynda­fræðinni bak við þetta ef við förum að hugsa þetta sem einstakar fjár­veitingar á þessu stigi málsins, svo ég svari spurningu háttvirts þingmanns.“

Samkvæmt heimildum Stundarinnar hafa þingmenn minni­hlutans reynt að fá aðgang að upplýsingunum án árangurs, bæði með formlegum og óformlegum hætti. Fyrir­spurnir Jóns Þórs og Björns Levís eru 12 talsins, en spurt er um tekjur og gjöld ráðuneyta og undir­stofnana þeirra, tekjur og gjöld ráðuneyta og stofnana á málefna­sviði einstakra ráðherra og tekjur og gjöld Alþingis og undir­stofnana þess.

„Óskað er eftir sundur­liðun eftir málefna­sviðum og hagrænni flokkun, sundur­liðað í launa­kostnað og rekstrar­kostnað, skipt eftir lögbundnum verkefnum, þ.m.t. tíma­bundnum verkefnum, yfir­standandi og fyrir­huguðum, og öðrum kostnaðar­liðum,“ segir í fyrir­spurnunum. 

Björn Leví bendir á það í samtali við Stundina að samkvæmt lögum um opinber fjármál eigi upplýsingar um þróun gjalda og sundur­liðun þeirra eftir málefna­sviðum og hagrænni flokkun að fylgja fjármála­áætluninni sjálfri.

„Við erum bara að biðja um það sem lögum samkvæmt á að vera í fjármála­áætluninni,“ segir Björn sem gerir athugasemd við þennan skort á upplýsingum í minnihluta­áliti sínu um fjármála­áætlunina sem fulltrúi Pírata í fjár­laganefnd. 

„Eins og hver sér sem skoðar fjármála­áætlunina eru gjöldin vissulega flokkuð eftir málefna­sviðum og árum til þess að sýna þróun gjalda. Það sem vantar hins vegar algjör­lega í fjármála­áætlunina er hagræna flokkunin. Í lögum um opinber fjármál er hagræn flokkun gjalda skilgreind á eftir­farandi hátt: „Greining gjalda í rekstur, tilfærslur og fjár­festingu samkvæmt alþjóð­legum hagskýrslu­staðli um opinber fjármál.“ Ekkert er að finna um þessa greiningu gjalda eða fjár­festingu í fjármála­áætlun,“ skrifar Björn sem telur mikillar greiningar­vinnu þörf vegna skorts á gagnsæi í fjármála­áætlun „Eins og fram kom í umsögn fjármála­ráðs um fjármála­áætlunina er lítið aðgengi að þeim upplýsingum sem þarf til að greina hvað liggur að baki þeim tölum sem settar eru fram í áætluninni, ef þær eru tiltækar á annað borð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár